Mannlegi þátturinn

Hremmingar Svavars, hamingjustjórar og Afkomendur Borgarfjarðar


Listen Later

Svavar Viðarsson fékk blóðtappa í heila og greindist fyrir um ári með hjartagalla og voru honum ekki gefnar miklar líkur á bata. Þannig fór hins vegar að Svavar náði fullum bata og eltir nú ástríðu sína í tónlist því í kjölfarið gaf hann út plötu með tónlist eftir sig. Svavar sagði okkur sögu sína af hremmingum síðasta árs og hvernig hann tók það jákvæða í lífinu út úr þeim.
Héðinn Sveinbjörnsson ber titilinn aðalhamingjustjóri og er meðlimur í samtökum sem kalla sig Chief Happiness Officers þar sem hann fór á námskeið árið 2019. Hann hefur verið að vinna í þessum málum síðan. Það er mikilvægt að starfsfólk upplifi hamingju á vinnustaðnum, finni tilgang og að það sé metið að verðleikum og samtökin vilja stuðla að þessu með sínu starfi og að svokallaður hamingjustjóri sé ávallt innan starfshópsins til að tryggja þetta. Núna er verið að safna gögnum um hamingju vinnandi fólks á alþjóðavísu og Héðinn vill að sem flestir Íslendingar taki þátt í henni til að hægt verði að bera saman niðurstöður annara þjóða. Við hringdum í Héðinn þar sem hann var í vinnunni á veitingastaðnum Bjargarsteini í Grundarfirði.
Elsa Katrín Ólafsdóttir ljósmyndari hefur sýnt undanfarið myndaröð sína, Afkomendur Borgarfjarðar, í Hafnarhúsinu Borgarfirði Eystri. Myndaröðin er nokkurskonar skrásetning á andlitum Borgfirðinga, en allir sem eiga ættir að rekja, eru búsettir eða hafa sterkar taugar til staðarins voru boðnir velkomnir í portrett myndatöku. Þátttakendur verkefnisins urðu rétt tæplega 200 sem fór fram úr vonum. Hugmyndin kviknaði hjá Elsu út frá myndaröð Jóhannesar Kjarvals, Hausarnir hans Kjarvals. Kjarval teiknaði þá andlitsmyndir af fullorðnum Borgfirðingum á þriðja áratug síðustu aldar. Við fengum Elsu til að segja okkur frekar frá þessu verkefni í þætti dagsins.
Tónlist í þættinum í dag:
Ástarkveðja (Frá Tjörninni að Öskjuhlíð) / Ingibjörg Þorbergs og Hljómsveit bandaríska flughersins (Ingibjörg Þorbergs og Þorsteinn Sveinsson)
Gömul sár / Svavar H. Viðarsson (Svavar Hafþór Viðarsson)
Hamingjan / Björgvin Halldórsson (Bob Merill og Þorsteinn Eggertsson)
Litla lagið / Sigrún Harðardóttir (Ómar Ragnarsson, Bennet, Orion, Welch, Marvin, Rostill)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners