Við ræddum við Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra Hugarafls í þættinum í dag. Hugarró, mikilvægt samtal við almenning, er verkefni sem leit fyrst dagsins ljós í fyrra samkomubanni og vildu samtökin Hugarafl leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að styðja almenning á erfiðum tímum. Um er að ræða beint samtal á facebook síðu félagsins og nú er þetta farið í gang á ný. Auður sagði okkur frá starfi Hugarafls á þessum tímum í þættinum í dag.
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur er nú langt komin með doktorsrannsókn sína sem fjallar um birtingarmynd kvenna í þjóðsögum og sögnum. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, hitti Dagrúnu og fór með henni yfir ýmislegt sem tengist þjóðfræði.
Og lesandi vikunnar að þessu sinni var Stefán Benedikt Vilhelmsson, leikari, leikstjóri, margmiðlunarfræðingur og fleira. Við fengum að vita hvaða bækur eru á náttborðinu hjá honum, hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR