Mannlegi þátturinn

Innflytjendaumræða með Jasminu Vajzovic og póstkort


Listen Later

Jasmina Vajzovic vakti mikla athygli í umræðuþættinum Torgið sem var í beinni útsendingu fyrir rúmri viku hér í Sjónvarpinu. Þar var rætt um hvernig okkur hefur gengið í inngildingu þegar kemur að innflytjendum, auk þess sem rædd voru málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks. Jasmina er stjórnmálafræðingur og hefur áralanga reynslu af því að vinna í þessum málefnum innflytjenda, hælisleitenda og flóttafólks, bæði hjá Reykjavíkurborg og svo rekur hún nú eigið ráðgjafafyrirtæki. Hún var alin upp í gríðarlega fjölbreyttu fjölmenningarsamfélagi í Bosníu og þegar hún var táningur þurfti fjölskylda hennar að flýja heimkynni sín undan stríðsátökum og eftir erfitt ferðalag voru þau stöðvuð á landamærum, þegar þau héldu að þau væru komin í örugga höfn en voru send aftur til baka á stríðsátakasvæði, áður en þau á endanum komust til Íslands. Jasmina sagði okkur sína sögu og ræddi við okkur um stöðuna í þessum málefnum af innsýn og reynslu sem fáir hafa.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og það barst frá Vestmannaeyjum að þessu sinni. Magnús er kominn heim frá Grænhöfðaeyjum en hugurinn er ennþá þar. Hann segir frá hinni miklu uppbyggingu sem á sér stað á eyjunum, ekki bara vegna vaxtar í ferðaþjónustunni, ekki síður vegna fjárausturs stórveldanna Kína, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins sem öll seilast eftir áhrifum á Grænhöfðaeyjum vegna legu eyjanna sem þykir hernaðarlega mikilvæg. Hann segir í lokin frá ungri söngkonu sem varð að velja á milli fastrar vinnu eða hugsanlegs frama í tónlistinni.
Tónlist í þættinum í dag:
Í draumum og söng / Ellý Vilhjálms og Raggi Bjarna (Ásta Sveinsdóttir og Magnús Pétursson)
White rabbit / Jefferson Airplane
Við Mánagötu í mýrinni / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners