Mannlegi þátturinn

Íris Stefanía og Kynveran og netnámskeið Geðverndarfélagsins


Listen Later

Íris Stefanía Skúladóttir kom í þáttinn í dag. Hún er að fara af stað með námskeiðið Kynveran í Kramhúsinu. Hún hefur þróað það í tvö ár í framhaldi af lokaverkefni hennar frá LHÍ sem kallaðist „Þegar ég fróa mér“. Eftir útskrift hefur verkefnið lifað góðu lífi og vaxið og dafnað. Hún hefur meðal annars farið með það á leiklistarhátíð í Finnlandi nýlega, einnig til Hollands og Akureyrar. Íris sagði okkur frá því hvernig þetta verkefni varð til, þær viðtökur sem hún fékk þegar hún sýndi þessum málum áhuga ung að aldri og því hvernig þau misgóðu viðbrögð gerðu hana enn ákveðnari í að rannsaka kynveruna í okkur og að láta ekki skömmina stjórna sér. Eins og hún segir, því betur sem við tengjumst kynverunni í okkur sjálfum, því fyrr byrjum við að elska okkur og sættast við okkur sjálf.
Við fræddumst svo um ný netnámskeið sem verða tekin í gagnið á næstunni. Þau eru á vegum Geðverndarfélags Íslands í samvinnu við bresk heilbrigðisyfirvöld. Námskeiðin, sem eru sem sagt á vefnum https://inourplace.co.uk/iceland/ og verða opin fyrir alla án endurgjalds. Þau eru hugsuð fyrir fjölskyldur, foreldra, aðstandendur, ömmur og afa og einnig verða námskeið eingöngu fyrir unglinga. Námskeiðin eru 17 talsins og verða öll á íslensku, en fyrsta námskeiðið sem búið er að þýða á íslensku er „Að skilja barnið - frá smábarni til unglings“. Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Geðverndarfélagsins, kom í þáttinn og sagði okkur frekar frá þessum námskeiðum og hvernig þau virka.
Tónlist í þættinum:
Ég bíð við bláan sæ / Anna Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson (Phil Spector, texti Jón Sigurðsson)
Unforgettable / Aretha Franklin (Irwing Gordon)
Grasaferð / Snorri Helgason (Snorri Helgason)
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners