Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • HM í handbolta - Gunni Magg og Gústi Jóh
    Íþróttavarpið heilsar í dag frá Kristianstad í Svíþjóð. Þar hefur íslenska landsliðið í handbolta leik gegn Portúgal á HM á morgun. Einar Örn Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fóru yfir málin, en stærsti hlutur þáttarins er hins vegar spjall við aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins. Það eru þeir Gunnar Magnússon og Ágúst Þór Jóhannsson.
    Umjón: Einar Örn Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    29 min
  • HM í handbolta - Björgvin Páll og Ólafur Guðmunds
    Íþróttavarpið er í Þýskalandi í dag og ræðir við landsliðsmenn eftir leikina tvo gegn Þýskalandi um helgina, og spáir í spilin fyrir HM sem hefst á fimmtudag. Viðmælendur dagsins eru reynsluboltarnir Björgvin Páll Gústavsson og Ólafur Guðmundsson.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    36 min
  • HM í handbolta - Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson
    Íþróttavarpið ræðir við landsliðsmenn Íslands í handbolta í aðdraganda HM í Svíþjóð. Gestir þáttarins í dag eru landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson. Þeir eru líka liðsfélagar hjá Kolstad í Noregi og konurnar þeirra eru systur. Þeir eru því mikið saman og eru góðir vinir. Þetta er til umræðu í þættinum ásamt HM sem er framundan, hvernig Sigvaldi valdi að spila fyrir Ísland frekar en Danmörku og skilaboðin sem Þórir Hergeirsson sendir reglulega á Janus Daða. Lengri útgáfu Íþróttavarpsins má finna á helstu hlaðvarpsveitum og í spilara RÚV.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
    29 min
  • HM í handbolta - Aron Pálmarsson
    Heimsmeistaramót karla í handbolta hefst eftir örfáa daga. Af því tilefni verður Íþróttavarpið á fullri ferð í janúar bæði á Rás 2 og í lengri útgáfu á hlaðvarpsveitum. Gestur þessa þáttar er landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson. Aron ræðir upphaf síns landsliðsferils, vonir og væntingar með landsliðinu á HM í janúar, væntanlega heimkomu í FH og ýmislegt fleira.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
    36 min
  • HM í fótbolta: Úrslitastund runnin upp
    Í þætti dagsins, sem var jafnframt sá síðasti á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta, fengum við Hörð Magnússon og Ólaf Kristjánsson til að fræða okkur um hin ýmsu mikilvægu málefni. Er þetta besta HM sögunnar? Ef ekki hvað er þá besta HM sögunnar? Hvernig fer úrslitaleikurinn? Og hverjir hafa staðið sig best á mótinu?
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    54 min
  • HM í fótbolta: Rýnt í 8-liða úrslitin og tekist á um mikilvæg málefni
    Það vantaði ekki upp á skoðanir þeirra Ólafs Kristjánssonar og Harðar Magnússonar sem voru gestir í íþróttavarpi dagsins. Báðir hafa þeir farið mikinn á HM og fáir sem vita meira um þetta mót en einmitt þeir. Farið var yfir 16-liða úrslitin, spáð í spilin fyrir 8-liða úrslitin og mikilvæg málefni tengd mótinu rædd. Hvað er svo stærsti íþróttaviðburður allra tíma?
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    1 hr 1 min
  • HM í fótbolta 2022 - Bestu markverðir í sögu HM
    HM í Katar hefst í dag og við ljúkum upphituninni með því að fara yfir bestu markverðina í sögu mótsins. Sandra Sigurðardóttir, landsliðsmarkvörður, og Guðmundur Hreiðarsson, fyrrverandi markmannsþjálfari íslenska karlalandsliðsins og núverandi markmannsþjálfari Jamaíku, mættu með sína topp fimm lista. Þau ræddu auk þess ýmislegt sem við kemur markvörðum almennt, þróun stöðunnar í nútímaknattspyrnu og vítaspyrnukeppnir svo eitthvað sé nefnt.
    52 min
  • HM í fótbolta 2022 - Þróunin á HM með Silla á Árbæjarsafni
    Íþróttavarpið heldur áfram að hita upp fyrir HM í Katar. Í þessum þætti er gesturinn Sigurlaugur Ingólfsson sagnfræðingur, eða Silli á Árbæjarsafni. Hann fór yfir HM söguna með okkur í þætti dagsins og tók gaf okkur alls kyns áhugaverða HM mola. Þó ekki að rifja upp hvert og eitt heimsmeistaramót lið fyrir lið. Það er um að gera að leggja við hlustir. Fullt af áhugaverðum staðreyndum og sögum í þessum þætti.
    49 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners