Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 6
    Í hlaðvarpi dagsins frá Englandi var farið yfir allt það helsta sem þarf að vita fyrir leik Íslands og Ítalíu á morgun. Matarpöntunarklúður og sitthvað fleira bar á góma.
    25 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 5: Lestarvesen á frídegi leikmanna
    Leikmenn fengu frí frá fjölmiðlum í dag og nýttu daginn með fjölskyldum sínum. Fjölmiðlafólk skellti sér til Manchester, með mismunandi árangri. Einhver leiddi Team RÚV upp í ranga lest og í ranga borg. Það bjargaðist þó að lokum. Svo voru örlög norska liðsins rædd stuttlega ásamt öðru.
    24 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 4: Ironman, fljúgandi skiptingar og EM
    Íþróttavarpið fór um víðan völl í dag. Meðal þess sem rætt var er yfirvofandi þátttaka Margrétar Láru í Ironaman og hvernig það myndi koma út ef svissað yrði á reglum í handbolta og fótbolta. Svo heyrðum við í landsliðsfólki og -þjálfara og ræddum leikinn við Ítalíu. Eitthvað fleira bar á góma líka.
    36 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 2
    Dagurinn fyrir leik. Á morgun mætir Ísland Belgíu í Manchester og var á ýmsu að kjamsa í þætti dagsins. Love Island spilaði talsverða rullu en líka taktík Íslands og Belgíu og hugarfar íslenska liðsins.
    31 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 1
    Íþróttavarpið heldur á EM í fótbolta á Englandi. Einar Örn Jónsson og Eva Björk Benediktsdottir fóru yfir flest tengt EM með markadrottningunni Margréti Láru Viðarsdóttur.
    34 min
  • ÓL - Dagur 13
    Helga Margrét Höskuldsdóttir og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson litu við og fóru yfir uppáhalds augnablik sín á leikunum hingað til. Fórum nánar út í málefni Mikaelu Shiffrin, ræddum Eileen Gu, veðrið og næstu leika.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    37 min
  • ÓL - Dagur 11 - Mál Kamilu Valievu
    Fórum í saumana á máli rússnesku skautdrottningarinnar Kamilu Vailevu eftir að hún féll á lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í Beijing með Völu Rún Magnúsdóttur og Einari Erni Jónssyni. Ræddum helstu úrslit dagsins og fórum yfir hvað væri fram undan.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    39 min
  • ÓL - Dagur 8 - Ingólfur Hannesson
    Ræddum allt milli himins og jarðar við Ingólf Hannesson sem farið hefur víða á sínum langa starfsferli og m.a. starfað í tengslum við vetraríþróttir síðan hann hóf störf hjá EBU fyrir tæpum 20 árum síðan. Hann hefur átt stóran þátt í uppgangi skíðaskotfiminnar erlendis og þá miklu aukningu í sjónvarpsréttarsamningum og öðru. Áhugavert tímalaust spjall við mann sem farið hefur víða, allt frá RÚV til Infront og aftur heim. Alveg hægt að mæla með þessu áhugaverða spjalli.
    Umsjón: Ingólfur Hannesson
    57 min
  • ÓL - Dagur 6
    Fórum yfir víðan völl í Íþróttavarpi dagsins, gesturinn var ekki af verri endanum enginn annar en fyrrum Ólympíufarinn frá Lillehammer 1994 og fyrrum formaður Skíðasambands Íslands, Daníel Jakobsson. Ræddum helstu viðburði á Ólympíuleikunum hingað til, fórum yfir hvað Ísland þarf að gera til að eiga keppendur í fremstu röð, af hverju skíðaskotfimin hefur tekið fram úr skíðagöngunni í áhuga og áhorfi og fleira skemmtilegt.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    48 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners