Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • ÓL - Dagur 4 - Viðtal við heimsmeistara
    Farið yfir fjórða keppnisdag leikanna í Beijing og tekið viðtal við heimsmeistarann í norrænni tvíkeppni, Norðmanninn Jarl Magnus Riiber, sem á sterka tengingu til Íslands þar sem hann á íslenska konu. Hann smitaðist af kórónuveirunni þegar hann kom til Kína og þykir ekki líklegt að hann nái að keppa á leikunum og segir það mikið áfall fyrir sig. Heyrðum einnig í Eddu Sif Pálsdóttur sem sagði okkur frá öllu því sem hefur verið að gerast á leikunum hjá íslensku keppendunum undanfarna daga.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    32 min
  • ÓL - Dagur 3
    Fyrstu keppnisgreinar alpagreinahluta Ólympíuleikanna voru til umræðu, Jakob Helgi Bjarnason lýsir alpagreinunum á leikunum en hann var um tíma gríðarlega efnilegur skíðamaður. Farið vítt og breitt yfir sviðið, skautahlaup, skíðaskotfimi, grímuklæddar íshokkí konur og fleira skemmtilegt.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    35 min
  • ÓL - Dagur 2
    Annar dagur Vetrarólympíuleikanna í Beijing gerður upp með Helgu Margréti Höskuldsdóttur, íþróttafréttakonu og umsjónarmanni Ólympíukvölds sem hefst á morgun. Snorri Einarsson reið á vaðið fyrir hönd Íslands á leikunum og jafnaði besta árangur Íslendings frá upphafi í skíðagöngu þegar hann endaði í 29. sæti. Heyrðum í Sturla Snæ Snorrasyni sem var sóttur með sjúkrabíl og farið með á kórónuveirusjúkrahús í Beijing þegar í ljós kom að hann væri smitaður af kórónuveirunni. Sturla á að keppa eftir slétta viku og vonast til þess að ná því, fyrstu gullverðlaun Nýsjálendinga og Simon Ammann er ennþá í fullu fjöri í skíðastökkinu 20 árum eftir að hann vann fyrst til verðlauna í greininni.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    52 min
  • ÓL - Dagur 1
    Farið yfir fyrsta dag Ólympíuleikanna í Beijing í Kína þar sem norrænu greinarnar voru fyrirferðamiklar. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fór yfir skíðastökkið og leikana almennt og Edda Sif Pálsdóttir sagði frá erfiðu ferðalagi til Beijing auk þess sem ferðalögin á milli keppnisstaða eru lyginni líkust.
    Umsjón: Gunnar Birgisson
    44 min
  • EM í handbolta - Logi Geirsson
    Farið yfir víðan völl eftir svekkjandi niðurstöðu úr leik Danmerkur og Frakklands sem þýða að Ísland leikur um 5. sætið á mótinu. Jákvæðir punktar frá Loga Geirssyni, gesti þáttarins, skoðum heildarmyndina og ræðum frammistöðu Íslands á mótinu hingað til. Ræðum framtíð Guðmundar Guðmundssonar með landsliðið, hvaða leikmenn komu mest á óvart, stærstu sigrarnir og súrustu töpin. Upphitun fyrir erfiðan leik gegn Noregi á morgun.
    Umsjón: Gunnar Birgisson og Helga Margrét Höskuldsdóttir.
    41 min
  • EM í handbolta - Karen Einarsdóttir
    Karen Einarsdóttir eiginkona Björgvins Páls Gústavssonar, sem sjálf er fyrrverandi markvörður hjá Fram var gestur Íþróttavarpsins í dag. Hún ræddi við okkur um tapið grátlega fyrir Króatíu í gær, leikinn við Svartfellinga á morgun og um síðustu daga. Karen fór líka almennt yfir sviðið hvernig er að vera ein heima með fjögur börn meðan eiginmaðurinn er á stórmóti í næstum heilan mánuð. Það komi þó aldrei til greina að hennar hálfu Björgvin Páll fái ekki leyfi til að spila fyrir íslenska landsliðið, ekki einu sinni í fyrra þegar Björgvin fór frá fimm daga gömlu barni á HM í Egyptalandi. Karen hefur bullandi trú á því að leikirnir í lokaumferð riðlakeppninnar spilist vel á morgun, þannig Ísland komist í undanúrslit og þá sé aldrei að vita nema hún skelli sér til Búdapest á úrslitahelgina.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    33 min
  • EM í handbolta - Guðjón Valur Sigurðsson
    Ísland vann ótrúlegan sigur á Frakklandi, 29-21 í milliriðlakeppni EM karla í handbolta í Búdapest í gærkvöld. Guðjón Valur Sigurðsson markahæsti landsliðsmaður sögunnar, næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, fyrrverandi landsliðsfyrirliði og núverandi þjálfari Gummersbach í Þýskalandi er á línunni hjá okkur í Íþróttavarpi dagsins. Hann fer yfir leikinn við Frakka, spáir í spilin fyrir leikinn við Króata á morgun og fer vítt og breitt yfir sviðið.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    46 min
  • EM í handbolta - Patrekur Jóhannesson
    Patrekur Jóhannesson fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, fyrrverandi landsliðsþjálfari Austurríkis og núverandi þjálfari Stjörnunnar var gestur Íþróttavarpsins í dag. Patrekur ræddi leik Íslands við Danmörku í gær, stöðuna í íslenska liðinu með COVID vofandi yfir, og leikinn við Frakka á morgun. Hann talaði líka um Duranona, Alfreð Gísla, Jóa Pé, bróður sinn, Guðna Th. Jóhannesson forseta Íslands og margt fleira.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    52 min
  • EM í handbolta - Kristjana Arnarsdóttir
    Aukaþáttur: Kristjana Arnarsdóttir kom í Íþróttavarpið í dag og fór yfir tíðindi síðasta sólarhrings og þau skakkaföll sem orðið hafa á íslenska landsliðinu í handbolta á EM.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    31 min
  • EM í handbolta - Ólafur Stefánsson
    Ólafur Stefánsson er að flestra mati besti handboltamaður Íslandssögunnar. Ólafur hefur farið á kostum í EM stofunni á RÚV núna það sem af er Evrópumóti. Ólafur mætti fullur eldmóðs í Íþróttavarpið í dag. Hann vill að strákarnir í landsliðinu láti sig dreyma um undanúrslit. Þá segir Ólafur að hann sé á góðum stað í lífinu eftir sjö ára ferðalag og vilji fara að tengjast handbolta aftur. Hann sé jafnvel spenntur fyrir að þjálfa á ný. Þáttur dagsins er eiginlega skylduhlustun.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    1 hr 6 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners