Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • EM í handbolta - Óskar Bjarni Óskarsson
    Óskar Bjarni Óskarsson sem var aðstoðarlandsliðsþjálfari Guðmundar Guðmundssonar á árunum 2008 til 2012 þegar silfrið í Peking vannst og bronsið í Austurríki var gestur Íþróttavarpsins í dag. Óskar Bjarni var líka aðstoðarlandsliðsþjálfari hjá Geir Sveinssyni 2016-2018 og þekkir vel til landsliðsins, auk þess að hafa þjálfað flesta leikmenn liðsins. Hann fór yfir sigurinn á Hollandi í gærkvöld, rýndi í leikinn framundan við Ungverjaland og rifjaði upp ýmislegt frá sínum tíma með landsliðinu. Þá lenti Óskar í spurningakeppni um ættar- og makatengsl landsliðsmanna.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    52 min
  • EM í handbolta - Logi Geirsson og handboltalög með Helgu
    Logi Geirsson var gestur í Íþróttavarpinu í dag. Hann fór yfir sigur Íslands á Portúgal á EM í gærkvöld og spáði aðeins í spilin fyrir leikinn við Holland á morgun og um framhaldið á mótinu. Logi ræddi líka eigin landsliðsferil og það hve erfitt er að stjórna honum. Í seinni hluta þáttarins kom svo Helga Margrét Höskuldsdóttir og greindi handboltalög.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    1 hr 16 min
  • EM í handbolta - Dagur Sigurðsson
    Dagur Sigurðsson er gestur Íþróttavarpsins í dag. Dagur er eini Íslendingurinn sem hefur unnið EM karla í handbolta. Það gerði hann 2016 þegar hann stýrði Þýskalandi til sigurs. Dagur fór yfir víðan völl í þætti dagsins og rýndi meðal annars í mótherja Íslands á morgun, lið Portúgals. Í þættinum kom líka fram að Dagur bætist við sérfræðingahóp EM stofunnar á RÚV. Hann verður þar með Loga Geirssyni og Ólafi Stefánssyni undir styrkri stjórn Kristjönu Arnarsdóttur.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    49 min
  • EM í handbolta - Kristjana Arnarsdóttir og Einar Örn Jónsson
    Íþróttavarp RÚV er helgað EM karla í handbolta í janúar. Í þáttunum fá Gunnar Birgisson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson til sín góða gesti til að fara yfir mótið og öllu því helsta sem því við kemur. Einar Örn Jónsson og Kristjana Arnarsdóttir komu í þennan þátt til að spá í spilin. Kristjana upplýsti meðal annars um að Ólafur Stefánsson verði með henni og Loga Geirssyni í EM stofunni í ár.
    44 min
  • Viðtal við Emil Pálsson - 12. nóvember
    Fótboltamaðurinn Emil Pálsson hefur verið mikið í fréttum að undanförnu. Emil sem hefur leikið sem atvinnumaður í Noregi frá 2018 hné niður í leik Sogndal og Stjördals-Blink mánudaginn 1. nóvember og fór í hjartastopp. Hröð viðbrögð á vellinum björguðu lífi Emils, því hann var endurlífgaður á vellinum og var svo flogið með þyrlu á sjúkrahúsið í Bergen þar sem hann lá svo í átta daga. Emil er nú kominn heim og við settumst niður með honum og ræddum atburði síðustu daga.
    28 min
  • Gunnar Huseby, 100 ára
    Ein af fyrstu íþróttastjörnum Íslands, Gunnar Huseby, fæddist 4. nóvember 1923 eða fyrir 100 árum. Hann var tvöfaldur Evrópumeistari í kúluvarpi en vandamál með áfengi varð til þess að hann keppti aldrei á Ólympíuleikum. Síðar setti hann þó tappann í flöskuna alveg sjálfur. Gunnar setti fjölda Íslandsmeta í kúluvarpi og kringlukasti og var landsfrægur. Í þessum þætti er saga Gunnars Huseby sögð og spiluð brot úr viðtölum við hann. Rætt er við íþróttafréttamennina Ómar Ragnarsson og Bjarna Felixson, Sigurbjörn Árna Arngrímsson frjálsíþróttasérfræðing og Jón Þ. Ólafsson fyrrverandi Íslandsmethafa í hástökki. Lesarar í þættinum eru Hreinn Valdimarsson og Birgir Þór Harðarson.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
    30 min
  • 17. þáttur - 7. ágúst
    Síðasta Íþróttavarpið frá Tókýó fór um víðan völl. Við völdum eitt og annað best, ræddum atburði dagsins og eitt og annað smálegt. Kertafleytingar á Laugarvatni, leikmaður Fálkanna frá Winnipeg, mismunandi upplifanir af hinum ýmsu leikum og margt annað bar á góma. Svo er áskorun. Ef Sigurbjörn fær 1000 læk á Twitter-færslu verður bónuspodcast á morgun líka.
    1 hr 7 min
  • 16. þáttur - 6. ágúst
    Misklíð kom upp í Íþróttavarpinu. Einar Örn var hrekktur af samstarfsfólki sínu. Að öðru leyti voru ævintýri Þorkels á hótelinu í nótt rædd, veitingastaðaferð umsjónarfólks bar á góma, sem og huldumanninn David. Já, og svo var það helsta frá deginum í Tókýó krufið og tillögur að þjóðsögn fyrir Ólympíunefnd Rússlands kynntar.
    30 min
  • 15. þáttur - 5. ágúst
    Íþróttavarpið fór mikinn í dag. Við ræddum magnaðan árangur San Marínó á leikunum og fórum yfir verðlaunatöflu -stan landanna. Frjálsar voru krufnar, afrek Frakka í liðsíþróttum og við þökkuðum starfsmönnum aðalstjórnar RÚV fyrir þeirra þátt í öllu saman. Svo voru tækninýjungar reyndar og afrek þáttastjórnenda í að slefa í sýnatökuglas tíunduð.
    45 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners