Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • HM í fótbolta 2022 - Birkir Már Sævarsson
    Íþróttavarpið er á HM stillingu þessa dagana, enda hefst HM í fótbolta í Katar á sunnudag. Gestur Íþróttavarpsins í dag hefur spilað á HM. Hann spilaði raunar hverja einustu mínútu í öllum þremur leikjum Íslands á HM fyrir fjórum árum. Hann er þriðji leikjahæsti landsliðsmaður karlalandsliðsins frá upphafi með 103 leiki og heitir Birkir Már Sævarsson. Bakvörðurinn ræddi hina ýmsu hluti í þætti dagsins. HM minningar frá því hann var í myndmennt í grunnskóla og svo þegar hann spilaði sjálfur á HM í Rússlandi 2018. Hann sagðist til dæmis hafa sofið mun betur en Alfreð Finnbogason fyrir leikinn við Argentínu á HM. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    29 min
  • HM í fótbolta 2022 - Fyrsta markið - Alfreð Finnbogason
    Íþróttavarpið ræðir í dag við Alfreð Finnbogason, sem skoraði fyrsta mark Íslands á HM í fótbolta. Hann ræðir aðdraganda mótsins, en meiðsli plöguðu hann harkalega í aðdragandanum. Svo svaf hann illa nóttina fyrir leik. Hann ræðir markið og minningar HM og gælunafni Freddi Finnboga.
    25 min
  • HM í fótbolta 2022 - Bestu sóknarmenn í sögu HM
    Margrét Lára Viðarsdóttir og Hörður Magnússon velja fimm bestu sóknarmenn í sögu HM, að sínu mati. Þau ræða svo hvern og einn og útskýra hvers vegna viðkomandi komst á þeirra list. Svo velja þau líka hvaða kosti hinn fullkomni sóknarmaður þarf að hafa að þeirra mati.
    41 min
  • HM í fótbolta 2022 - Heimir Hallgrímsson
    Íþróttavarp RÚV er komið aftur í gang. HM karla í fótbolta í Katar verður til umfjöllunar frá og með þessum þætti og þar til HM lýkur rétt fyrir jól. Í þessum þætti er Heimir Hallgrímsson gestur Íþróttavarpsins. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
    45 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 10: Undrastaðurinn Rotherham...
    Í dag er dagurinn fyrir leik. Fulltrúar Íþróttavarpsins skelltu sér á leikstað morgundagsins og tóku út aðstæður. Svo var fjallað um góðan mat hópsins, hugarástand leikmanna og sitthvað fleira. Bara ekki leik Vals og ÍBV... af því míkrafónninn hjá Eddu Sif bilaði... eða eitthvað.
    29 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 8: Tvöföld skipting
    Tvöföld skipting í podcasti dagsins. Eva Björk og Margrét Lára héldu heim á leið í morgun og kom Edda Sif Pálsdóttir í þeirra stað. Svo fengum við Svövu Kristínu lánaða frá Stöð 2. Við komumst næstum því hjá því að ræða fótbolta en það kom smá í lokin.
    29 min
  • EM í fótbolta 2022 - Dagur 7
    Leikurinn við Ítalíu var krufinn til mergjar í þætti kvöldsins. Enn á ný bar matarpantanir RÚV-hópsins í Crewe á góma og svo var kveðjustund og Lára Jóna var kynnt til leiks.
    29 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners