Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • Rúnar Kárason og Hanna Guðrún Stefánsdóttir
    Íþróttavarpið er handboltatengt þessa vikuna. Gestir eru Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Rúnar Kárason. Hanna lagði skóna á hilluna í síðustu viku eftir heil 28 ár í meistaraflokki. Hún fer yfir ferilinn og boltann.
    Rúnar Kárason stendur svo bæði í ströngu og á tímamótum. Hann er kominn í úrslit Olísdeildarinnar með ÍBV en skiptir á næsta ári í sitt uppeldisfélag, Fram. Hann fer yfir langan og viðburðaríkan feril.
    46 min
  • Logi Gunnarsson og Agnes Suto
    Íþróttavarp vikunnar er tvískipt. Við spjöllum við Agnesi Suto, fimleikakonu. Á þessu keppnistímabili hefur Agnes ekki aðeins keppt á stærstu mótunum í áhaldafimleikum hér heima, heldur líka á öllum stærstu hópfimleikamótunum.
    Svo förum við yfir ferilinn með Loga Gunnarssyni, körfuboltamanni úr Njarðvík sem lagði skóna á hilluna nýverið. Logi er fjórði leikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var á Evrópumótinu 2015 og 2017. Hann sló í gegn sem ungur maður í Njarðvík og vann þar sína fyrstu titla áður en hann fór á flakk um Evrópu og sneri loks aftur heim.
    Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir og Einar Örn Jónsson
    35 min
  • Gummi Ben og Villi í Steve Dagskrá
    Það er búið að vera mikið um að vera í íþróttum hérlendis og erlendis undanfarið. Við fengum til okkar lífskúntstnerana Vilhjálm Frey Hallsson úr hlaðvarpinu Steve Dagskrá og Viaplay og Guðmund Benediktsson af Sýn sem hafa fylgst vel með. Við ræðum landsliðsþjálfaramál HSÍ og KSÍ og förum yfir það sem stendur upp úr í íþróttunum hér heima.
    51 min
  • Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir
    Gestir Íþróttavarpsins að þessu sinni eru Rut Jónsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir landsliðskonur í handbolta. Fram undan eru tveir umspilsleikir við Ungverjaland um laust sæti á HM. Þeir eru ræddir, en líka farið yfir víðan völl.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    29 min
  • Vésteinn Hafsteinsson verðandi afreksstjóri ÍSÍ
    Gestur Íþróttavarpsins þessa vikuna er Vésteinn Hafsteinsson nýráðinn afreksstjóri ÍSÍ. Vésteinn tekur við starfinu 1. maí, en er þegar byjraður að vinna á bak við tjöldin. Fram undan hjá honum er stórt og viðamikið verkefni við að auka vægi afreksíþrótta á Íslandi og gera afreksstarfið betra og faglegra. Vésteinn ræddi þetta allt saman fram og til baka í þættinum.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson.
    56 min
  • HM í handbolta - Ásgeir Örn Hallgrímsson
    Þátturinn að þessu sinni var tekinn upp strax eftir tapið fyrir Svíum í gærkvöld. Ísland er nú nær örugglega úr leik í baráttunni um að komast í 8-liða úrslit HM og þar með í Ólympíuforkeppnina. Ásgeir Örn Hallgrímsson fyrrverandi landsliðsmaður Íslands og einn af sérfræðingum HM stofunnar á RÚV var gestur Íþróttavarpsins og fór yfir sviðið rétt eftir leik.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    30 min
  • HM í handbolta - Seinni bylgjan í heimsókn
    Þáttur dagsins var tekinn upp á hóteli fjölmiðlafólks í Gautaborg. Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar á Stöð 2 Sport, leit í heimsókn. Sigurinn á Grænhöfðaeyjum var til tals en aðaláherslan var á leik Íslands og Svíþjóðar á morgun. EInnig voru gamlir stórleikir gegn Svíum rifjaðir upp.
    Umsjón: Einar Örn Jónsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir.
    30 min
  • HM í handbolta - Henry Birgir Gunnarsson
    Tapið fyrir Ungverjum í gær svíður sárt. Það þýðir þó ekkert að gefast upp, enda nóg eftir af mótinu og enn vel hægt að komast í 8-liða úrslit. Henry Birgir Gunnarsson íþróttafréttamaður hjá Vísi og Stöð 2 var gestur Íþróttavarpsins í dag og fór yfir sviðið með okkur. Henry hefur farið á annan tug stórmóta. En þar sem tapið í gær svíður svona mikið ákváðum við að snúa hnífnum í sárinu og rifjuðum upp sárustu töp íslenska landsliðsins á stórmótum í gegnum tíðina.
    Umsjón: Einar Örn Jónsson og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    39 min
  • HM í handbolta - Ólafur Stefánsson
    Gestur Íþróttavarpsins í dag er Ólafur Stefánsson fyrrverandi landsliðsfyrirliði Íslands í handbolta. Við fórum yfir tilfinninguna daginn eftir sigurinn á Portúgölum, samanburð við Óla og félaga og gamla liðið, karakterana í liðinu og svo útlitið fyrir morgundaginn þegar Ísland mætir Ungverjum.
    Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson
    46 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners