Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • HM kvenna í fótbolta 2023 - 16-liða úrslitin gerð upp
    Það er hlé á heimsmeistaramótinu í fótbolta í dag og á morgun og 8-liða úrslitin fara af stað aðfaranótt föstudags. Albert Brynjar Ingason og Hörður Magnússon fara yfir 16-liða úrslitin og spá í spilin fyrir 8-liða úrslitin með Helgu Margréti Höskuldsdóttur. Hrun Bandaríkjanna, sannfærandi japanskt lið og fleira er til umræðu í þættinum þar sem Albert og Hörður spá líka fyrir um heimsmeistara.
    Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir
    31 min
  • HM kvenna í fótbolta 2023 - riðlakeppnin búin
    Riðlakeppninni á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta er lokið. Sextán lið eru komin áfram og útsláttarkeppnin hefst á laugardag. Edda Sif Pálsdóttir, Gunnar Birgisson og Adda Baldursdóttir fara yfir allt sem þið þurfið að vita eftir riðlakeppnina og spá í spilin fyrir framhaldið. Bestu liðin, þjálfararnir, það sem hefur komið á óvart, hverjar eru efni í heimsmeistara, hverjar hafa valdið vonbrigðum o.s.frv.
    Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir
    40 min
  • HM í fótbolta 2023 - Spáum í spilin
    Heimsmeistaramót kvenna í fótbolta 2023 hefst á fimmtudaginn, 20. júlí. Allir leikir mótsins verða í beinni útsendingu á RÚV og flautað verður til leiks á fimmtudagsmorgun klukkan 7:00. Í þessum þætti Íþróttavarpsins förum við yfir riðlana átta með sérfræðingum RÚV á mótinu, Alberti Brynjari Ingasyni og Öddu Baldursdóttur. Hvaða lið verða best, hvaða lið koma á óvart, verða einhver lið í brasi? Við skoðum líka leikmenn sem vert er að fylgjast með þegar veislan hefst. Allar upplýsingar um mótið og leikjadagskrá má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/ithrottir/hm-i-fotbolta-2023
    Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir
    51 min
  • Martin Hermannsson
    Martin Hermannsson er besti körfuboltamaður landsins og þarf varla að kynna. Hann sleit krossband í leik með félagsliði sínu, Valencia, í maí 2022 en er kominn á gott skrið með liðinu á nýjan leik. Meiðslin tóku á andlegu hliðina en á sama tíma gafst tími fyrir fjölskyldu og vini. Martin fer yfir lífið í Valencia, grátlegan endi á undankeppni HM og lífið utan vallar í íþróttavarpi dagsins.
    Umsjón: Kristjana Arnarsdóttir
    29 min
  • Kjartan Atli Kjartansson
    Kjartan Atli Kjartansson stýrði á síðasta tímabili körfuboltaliði Álftaness upp í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Kjartan hefur undanfarin átta ár stýrt Körfuboltakvöldi, sjónvarpsþætti sem fjallar einmitt um efstu deild á Íslandi en stígur nú frá borði. Hann hefur komið víða við í fjölmiðlum, til að mynda stýrt eigin útvarpsþætti, verið umsjónarmaður í Íslandi í dag og komið að þáttagerð á Stöð2Sport. Hann hefur auk þess þjálfað yngri flokka í körfubolta frá 17 ára aldri, kennt í grunnskóla og skrifað skáldsögur og bækur um körfubolta.
    Kjartan Atli er viðmælandi Íþróttavarpsins í þessari viku þar sem hann ræðir meðal annars fjölmiðlastarfið, þjálfarahlutverkið og knattspyrnuferilinn.
    Umsjón: Almarr Ormarsson
    46 min
  • Halli Egils og Vitor Charrua
    Gestir Íþróttavarpsins í dag eru pílukastararnir Halli Egils og Vitor Charrua en þeir eru á leiðinni til Frankfurt þar sem þeir munu keppa fyrir Íslands hönd á Heimsbikarmótinu í pílukasti eða World Cup of Darts. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland er með þátttökurétt á mótinu og óhætt að segja að þetta sé stærsta pílukeppni sem Íslendingar hafa tekið þátt í. Halli og Vitor fara yfir mótið, stöðu pílukasts á Íslandi og ýmislegt fleira í þættinum.
    Umsjón: Almarr Ormarsson.
    29 min
  • Arnór Þór Gunnarsson
    Gestur Íþróttavarpsins í dag er handboltamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson. Arnór leikur á sunnudaginn síðasta handboltaleikinn á ferlinum þegar hann spilar með Bergischer í lokaumferð efstu deildar Þýskalands á móti Erlangen. Arnór fer yfir ferilinn á þessum tímamótum í Íþróttavarpinu.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    29 min
  • Atli Eðvalds: 40 ár frá afreki sem varla verður leikið eftir
    Hinn 4. júní árið 1983 vann Atli Eðvaldsson ótrúlegt afrek, því þann dag skoraði hann öll fimm mörk Fortuna Düsseldorf í 5-1 sigri liðsins á Eintracht Frankfurt í efstu deild Þýskalands í fótbolta. Strax daginn eftir skoraði svo Atli sigurmark Íslands í 1-0 sigri á Möltu í undankeppni EM á Laugardalsvelli og toppaði þar með hreint ótrúlegan sólarhring á sínum ferli.
    Atli rifjaði upp þennan magnaða sólarhring í áður ófluttu viðtali við RÚV sem tekið var vorið 2016. Aðrir viðmælendur eru Pétur Ormslev, Samúel Örn Erlingsson, Skapti Hallgrímsson og Sif Atladóttir.
    Þar sem hin óvenjulega staða kom upp að það væri landsleikur degi eftir deildarleik tókst KSÍ að útvega litla flugvél til að sækja Atla og Pétur Ormslev sem báðir léku með Fortuna Düsseldorf. Með í þessa för fóru svo blaðamennirnir Skapti Hallgrímsson fyrir Morgunblaðið, Samúel Örn Erlingsson fyrir NT og Friðþjófur Helgason ljósmyndari DV auk Helga Daníelssonar sem var formaður landsliðsnefndar KSÍ.
    Atli varð fyrsti erlendi leikmaðurinn til að skora fimm mörk í einum deildarleik í efstu deild Þýskalands. Síðan þá hafa aðeins tveir aðrir leikið það eftir. Pólski markahrókurinn Robert Lewandowski skoraði öll mörkin í 5-1 sigri Bayern á Wolfsburg í september 2015. Serbneski framherjinn Luka Jovic skoraði svo fimm mörk í 7-1 sigri Eintracht Frankfurt á Fortuna Düsseldorf í október 2018. Þar áttust semsagt sömu lið og þegar Atli skoraði mörkin sín fimm árið 1983.
    Hvorki Lewandowski né Jovic, eða þess þá heldur Gerd Müller, Jupp Heynckes, Jürgen Klinsmann eða þeir Þjóðverjar skoruðu einhvern tímann fimm mörk í deildarleik í Þýskalandi, tókst að spila landsleik daginn eftir eins og Atli gerði í júní 1983.
    Dagskrárgerð: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
    36 min
  • Ragnheiður Júlíusdóttir
    Gestur Íþróttavarpsins í dag er ein besta handboltakona landsins, sem þó hefur ekki spilað handboltaleik síðan í lok janúar í fyrra. Ragnheiður Júlíusdóttir hefur verið stórskytta í liði Fram undanfarinn áratug og algjör lykil kona í sigursælu liði Fram. Þá hefur hún einnig verið hluti af íslenska landsliðinu og átti meðal annars sinn besta landsleik á Ásvöllum í október 2021 gegn Serbíu þegar hún endaði markahæst með sjö mörk í sigri sem kom Íslandi í góða stöðu í undankeppni EM. Í lok janúar í fyrra var Ragnheiður lang markahæst í liði Fram það sem af var Íslandsmótinu, en þá dundi ógæfan yfir og hún hefur ekki spilað handbolta síðan 29. janúar 2022. Ragnheiður Júlíusdóttir er gestur Íþróttavarpsins að þessu sinni.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    28 min
  • Þórir Hergeirsson
    Þóri Hergeirsson þarf ekki að kynna fyrir mörgum en hann hefur stýrt norska kvennalandsliðinu í handbolta við góðan orðstýr síðastliðin 14 ár. Með liðinu hefur hann unnið heimsmeistaramót, evrópumót og Ólympíuleika og virðist hvergi nærri hættur. Þórir kom til landsins í vikunni til að halda fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík um vegferð sína með norska landsliðinu. Við settumst niður með Þóri eftir fyrirlesturinn og ræða aðeins við hann um þjálfarastarfið, hvernig hann heldur sér í æfingu og ýmislegt annað, eins og stöðu íslensku landsliðana í handbolta.
    Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir
    31 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners