Íþróttavarp RÚV

Íþróttavarp RÚV

By RÚV
Download on the App Store

Íþróttavarp RÚV episodes

  • Aron Pálmarsson mætir á Biðstofuna
    Óvæntur leynigestur mætir á svæðið, Aron Pálmarsson, einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar. Farið verður um víðan völl, íslenska liðið í dag, hvar hann sér okkar möguleika, sögur og augnablik úr ferlinum.
    1 hr 1 min
  • Biðstofan: Krafa á undanúrslit?
    Helga, Óli, Logi og Kári fara yfir árangur íslenska landsliðsins á síðasta móti, ræða stöðu  þjálfarans Snorra Steins komandi inn í þetta mót. Hverjar eru kröfurnar á liðið og hvað er ásættanlegur árangur á mótinu?
    42 min
  • Mýtan um beinbrot Jóhannesar á Borg
    Eitt stærsta „Hvað ef“ í íslenskri íþróttasögu er: Hvað ef Jóhannes Jósefsson hefði ekki viðbeinsbrotnað í undanúrslitum grísk-rómversku glímunnar á Ólympíuleikunum í London árið 1908? Hefðu Íslendingar þá mögulega eignast gullverðlaunahafa í frumraun sinni á Ólympíuleikum?
    Jóhannes gat ekki beitt sér í undanúrslitaviðureign glímunnar vegna meiðsla sinna og mætti svo ekki til leiks í bronsglímuna, enda með brotið viðbein.
    Í áratugi hefur verið fjallað um það á fjölmörgum stöðum hvernig viðbeinsbrot Jóhannesar kostaði Ísland sennilega verðlaun á Ólympíuleikunum 1908 og sagan því mjög lífsseig. En er hún sönn? Viðbeinsbrotnaði Jóhannes kannski bara alls ekki neitt á Ólympíuleikunum? Í þættinum Mýtan um beinbrot Jóhannesar á Borg kafar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður og sagnfræðingur ofan í málið.
    48 min
  • Stofan: HM draumar
    Ólafur Stefánsson, Logi Geirsson og Kári Kristján Kristjánsson sérfræðingar Stofunnar á RÚV fara yfir víðan völl í upphitun fyrir HM í handbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur Íslands á HM er 16. janúar.
    Umsjónarmaður: Helga Margrét Höskuldsdóttir
    1 hr 45 min
  • Gunnar Huseby
    Ein af fyrstu íþróttastjörnum Íslands, Gunnar Huseby, fæddist 4. nóvember 1923 eða fyrir 100 árum. Hann var tvöfaldur Evrópumeistari í kúluvarpi en vandamál með áfengi varð til þess að hann keppti aldrei á Ólympíuleikum. Síðar setti hann þó tappann í flöskuna alveg sjálfur. Gunnar setti fjölda Íslandsmeta í kúluvarpi og kringlukasti og var landsfrægur. Í þessum þætti er saga Gunnars Huseby sögð og spiluð brot úr viðtölum við hann. Rætt er við íþróttafréttamennina Ómar Ragnarsson og Bjarna Felixson, Sigurbjörn Árna Arngrímsson frjálsíþróttasérfræðing og Jón Þ. Ólafsson fyrrverandi Íslandsmethafa í hástökki. Lesarar í þættinum eru Hreinn Valdimarsson og Birgir Þór Harðarson. Tæknimaður var Úlfhildur Eysteinsdóttir.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson.
    30 min
  • Anton Sveinn McKee
    Gestur Íþróttavarpsins í dag er sundkappinn Anton Sveinn McKee. Anton fer yfir víðan völl um andlegu hliðina, um Ólympíuleikana í París á næsta ári og mánuðina og mótin fram undan, en gerir líka upp síðustu mót auk þess að ræða almennt um lífið og tilveruna.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Ingi Þór Ágústsson
    51 min
  • HM í fótbolta 2023 - Úrslitaleikurinn fram undan
    Það er komið að endastöð á heimsmeistaramótinu í fótbolta árið 2023, úrslitaleikurinn er fram undan nú á sunnudag en þar mætast Spánn og England eftir sigra í fjörugum undanúrslitaleikjum. Hér í þætti dagsins ætlum við að fara yfir undanúrslitaleikina tvo og kryfja úrslitaleikinn. Gestir Íþróttavarpsins að þessu sinni eru Gunnar Birgisson og Albert Brynjar Ingason, þeir velja líka leikmann mótsins hingað til og nudda kristalskúluna fyrir úrslitin.
    Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir
    34 min
  • HM í frjálsíþróttum - Sigurbjörn Árni fer yfir líklega hápunkta á HM
    Heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum hefst í Búdapest á laugardaginn. Við tókum hús á Sigurbirni Árna Arngrímssyni á Laugum í Reykjadal. Sigurbjörn mun af sinni alkunnu snilld lýsa HM í frjálsíþróttum. Spurningin er hins vegar hvort hann verði búinn að finna símann sinn fyrir mótið. Ísland á þrjá keppendur á HM, sleggjukastarann Hilmar Örn Jónsson, kringlukastarann Guðna Val Guðnason og kúluvarparann Ernu Sóleyju Gunnarsdóttur. Rætt er líka við þau í þessum þætti en Sigurbjörn Árni fer svo ítarlega yfir líklega hápunkta mótsins í þættinum.
    Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
    1 hr 39 min
  • HM kvenna í fótbolta 2023 - 8-liða úrslitin gerð upp
    8-liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta voru spiluð um helgina og eftir standa fjögur lið fyrir undanúrslitin sem eru framundan. Adda Baldursdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir fara yfir nýjustu leikina og spá í spilin fyrir framhaldið. Verður það Spánn/Svíþjóð eða Ástralía/England sem leika til úrslita? Geta heimakonur farið alla leið? Og svo er það stóra spurningin; hefði Ísland átt erindi á þetta mót?
    Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir
    33 min

About Íþróttavarp RÚV

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþættir um íþróttir.

More shows like Íþróttavarp RÚV

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Beint í bílinn by Sveppalingur1977

Beint í bílinn

27 Listeners