Já elskan

Já elskan

Download on the App Store

Já elskan episodes

  • 45. Gay Conversion Therapy
    Gay conversion threapy er meðferð sem miðar að því að breyta kynhneigð og kynvitund fólks. Stutt var við rafstuðsmeðferð, dáleiðslu og heilaskurðlækningar til þess að tengja samkynhneigð við sársauka, veikindi og skömm. Meðferðin var studd af hinum eina sanna Trump árið 2016 og var Mike okkar Pens þar einnig í farabroddi. Við heyrum sögur af þeim Raymond Buys og Garrard Conley, mönnum sem upplifðu slíka meðferð og David Matheson, manni sem stofnaði og hélt uppi slíkum meðferðarbúðum í um 30 ár.
    50 min
  • 44. Getnaðarvörn dauðans
    Hugh Davis fann upp á nýrri getnaðarvarnar lykkju árið 1970 sem var seld til rúmlega 4 milljóna kvenna í Bandaríkjunum og Kanada - seinna til þróunarlanda. Lykkjan var keypt af fyrirtækinu AH Robins sem fór af stað með massíva auglýsingaherferð. Kvartanir og viðvaranir byrjuðu að hrannast inn af því að lykkjan var að valda sýkingum, grindarbotnsbólgum, fósturlátum, samgróningum, fæðingargöllum og dauða kvenna út um allan heim. Engar marktækar rannsóknir höfðu verið gerðar áður en að lykkjan var sett á markað en aðstæðurnar sem hún var framleidd í, upplýsingunum sem var eytt og ógeðfelldu tilraunirnar til þess að þagga niður í þessum skandal er one hell of a story.
    52 min
  • 43. Fatal Familial Insomnia
    Ímyndaðu þér að geta aldrei sofnað.. Fatal Familial Insomnia er mjög sjaldgæfur sjúkdómur sem dregur fólk til dauða á að meðaltali 18 mánuðum. Fólk fer að sjá ofskynjanir, fær kvíðaköst, upplifir algjört minnisleysi, missir mátt og loks gefa líffærin sig.
    Við vörum við eftirfarandi myndbandi: https://www.youtube.com/watch?v=mzHx9xeJ6RI Karl Mercieca hlóð upp þessu myndbandi í gær og er gjörsamlega búinn að gefast upp á sjúkdóminum "this is goodbye. My last video"
    45 min
  • 42. Myrka hlið Stubbanna
    Stubbarnir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir. Þeir eru miklu hávaxnari og stærri en þú heldur og svo eru kanínurnar í þáttunum risavaxnar og deyja hver á fætur annarri. Kanínurnar eru jafn duglegar að fjölga sér og Stubbarnir en þeir hafa eignast stubbabörn, TiddlyTubbies. Já, ég held þú verðir bara að hlusta á þennan til þess að komast að sannleikanum.
    56 min
  • 41. Sniper í Breska hernum
    Sölvi Michael var landgönguliði í Breska hernum í 5 ár. Af þessum 5 árum eyddi hann 7 mánuðum í Afghanistan sem sniper og upplifði það sem við hin höfum bara séð í bíómyndunum. Sölvi var heppinn að koma út úr þessu á lífi og með alla útlimi á meðan vinir hans og kunningjar voru ekki eins heppnir. Sölvi fer út í nákvæmar lýsingar á daglegu lífi í hernum, lífinu í Afghanistan, skotbardögum og hvernig það er að vakna upp um miðjar nætur við sprengju- og byssuhljóð.
    1 hr 7 min
  • 40. Berklar á Íslandi
    María Pálsdóttir segir okkur frá sögu berkla á Íslandi og Berklahælinu á Kristnesi. Eins og segir á heimasíðu Hælisins: "Á Kristnesi var reist berklahæli árið 1927 en þá geysuðu berklar, lífshættulegur smitsjúkdómur og lagðist hann sér i lagi á ungt fólk sem var þá tekið úr umferð og einangrað á berklahælum. Engin lyf voru til við berklum og komu ekki á markað fyrr en um miðja öldina. HÆLIÐ segir sögur af missi, sorg, einangrun og örvæntingu en ekki síður von, æðruleysi, lífsþorsta og rómantík.” www.haelid.is 
    Í þættinum kemur fram frumsamin tónlist eftir Bigga Hilmars. Tónlistin var samin fyrir Tæringu, leiksýning sem var sett upp á Hælinu og hana er að finna á heimasíðunni hans biggihilmars.com
    55 min
  • 39. Geðspítalinn Federico Mora
    Í Guatemala er eitt hrottalegasta geðveikrahæli í heimi. Þar þurfa börn og fullorðnir að þola kynferðislega misnotkun, pyntingar og barsmíðar daglega. Federico Mora er eini ríkisrekni spítalinn ætlaður andlega veiku fólki í Guatemala og hýsir meðal annars glæpamenn, innflytjendur og andlega veikt fólk. Sameinuðu þjóðirnar, Disability Rights International og fleiri alþjóðlegar stofnanir hafa formlega beðið ríkið um að loka spítalanum, án árangurs. Federico Mora er enn starfrækur og skildugar ástandsskoðanir eru aðeins gerðar einu sinni á ári.. þ.e.a.s. áður en Covid stoppaði þær.
    45 min
  • 38. Mandela Effect
    Mandela effect er þegar stór hópur fólks á sameiginlega minningu af atburði sem að gerðist aldrei og man atburðinn í miklum smáatriðum. Hundruðir fólks eru handviss um að það hafi orðið vitni af því þegar Nelson Mandela lést í fangelsi árið 1983 þegar hann í rauninni lést ekki fyrr en árið 2013. Svo er annar hópur sem er handviss um að bíómynd sem að heitir Shazaam hafi verið til en engar upplýsingar eru til um myndina á netinu og Zimbad sem átti að hafa verið aðalhlutverkið heldur því fram að hann hafi aldrei leikið í Shazaam. Mirror mirror on the wall er líka eitthver tilbúinn ruglingur, það er í raun magic mirror on the wall. Ekki treysta heilanum sagði einhver vitringur, aka. Krissa rokk.
    49 min
  • 37. Death row fangar - Síðustu 24klst
    Hvað gerist 24 klukkustundum áður en fangar á Death row eru teknir af lífi? Fangar hringja sín síðustu símtöl og borða sína síðustu máltið, því næst eru þeir færðir inn í the Death Chamber þar sem að fangar bíða örlaga sinna. Ef að þú ert heppinn og átt nógu góðan lögfræðing þá gæti aftökunni verið frestað.
    Mun Lisa Montgomery verða fyrsta konan til þess að vera tekin af lífi í Bandaríkjunum í 70 ár? Ef engar nýjar vísbendingar koma upp í málinu hennar þá mun aftakan á henni fara fram á morgun, 12 janúar, klukkan 18:00.
    1 hr 2 min
  • 36. Spádómar 2021
    Spámenn hafa í aldanna tíð þóst vita hvað bíður okkar. Nostradamus, Baba Vanga og Craig Hamilton-Parker eru meðal þeirra. Í þessum þætti förum við yfir spádóma fyrir 2021 samkvæmt frönskum lækni fæddur 1555, blindri rússneskri ömmu fædd 1911 og breskum sérfræðingi um hið yfirnáttúrulega fæddur 1954.
    53 min

About Já elskan

From the publisher's feed

Ef þig langar að hlusta á eitthvað smá uppbyggilegt, pínu fyndið og sturlað skemmtilegt þá ertu á réttum stað! Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir leiða ykkur í gegnum allt og…