Já elskan

Já elskan

Download on the App Store

Já elskan episodes

  • 55. Polybius - Leikurinn sem drap
    Snemma á níunda áratugnum voru spilakassar mjög vinsælir út um allan heim. Árið 1981 kom út leikur sem hét Polybius. Leikurinn var mjög vinsæll, það mynduðust oft langar raðir fyrir framan spilakassann og oft brutust út slagsmál. Spilarar fóru fljótt að finna fyrir aukaverkunum eins og minnisleysi, svefnleysi, martröðum og ofskynjunum. Aðeins mánuði seinna hvarf leikurinn og öll ummerki um hann en aukaverkanirnar gerðu það ekki. Leikurinn á sér mjög svarta sögu og er partur af eitthverju miklu stærra.
    48 min
  • 51. Russian Sleep Experiment
    The Russian Sleep Experiment var tilraun til þess að láta fimm fanga vaka samfleytt í 30 daga. Eftir 5 daga voru þau farin að sýna ummerki um ofsóknarbrjálæði og svo urðu dagarnir þar á eftir sannkallað helvíti á jörðu. Við mælum ekki með að hlusta ef þið eruð viðkæm fyrir gruesome lýsingum. Instagram: Jaelskan
    41 min
  • 50. S21 & Killing Fields
    Í borgarastyrjöldinni í Kambódíu árin 1967 - 1975 var eitt banvænasta fangelsi í heimi starfrækt. Fangelsið hét S21 og af þeim 15,000 -20,000 föngum sem voru vistaðir þar, lifðu aðeins 12 það af. Fólk var sett í fangelsið fyrst og fremst fyrir grun um pólitíska andstöðu, en svo voru enn aðrir teknir fyrir að vökvaði ekki plöntur, að líta út fyrir að vera of klár, ef þú talaðir annað tungumál eða ef þú borðaðir á milli matmálstíma. Við vörum fólk við hrottalegum lýsingum af pyntingum. Myndirnar eru allar teknar af Kristjönu þegar hún heimsótti svæðið árið 2015.
    47 min
  • 49. Stargate Project
    ESP eða Extrasensory Perception er fræðilegt heiti yfir sjötta skilningsvitið. NASA og CIA fjármögnuðu 23 ára rannsókn, Stargate project, þar sem hermenn voru þjálfaðir upp í það að að verða miðlar með aðferð sem kallast remote viewing. Þjálfuðum miðlum tókst að lýsa umhverfi eða fólki hvar sem er í heiminum, í framtíðinni eða í fortíðinni. Þetta varð til þess að remote viewing varð að hernaðarlega mikilvægu vopni. Hver sem er getur þróað með sér miðlahæfileika með þessari aðferð, þetta er jafn náttúrúrulegur hæfileiki og að heyra eða sjá. Sjáðu hvort að þú værir góður Remote viewer með því að prufa – appið heitir ESP Trainer.
    53 min
  • 48. Humi - "Ég var í maníu í tvö ár" Pt.2
    Í þessum þætti heyrum við frá því þegar Humi greindist og hvernig honum tókst að ná sér niður á jörðina eftir áralanga baráttu við geðhvarfasýki. Þessi mikli snillingur talar af einstakri einlægni og við getum svo sannarlega öll dregið lærdóm af frásögninni hans.
    Þetta er annar hluti af ævintýrum Huma.
    Ps. hljómsveitin hans heitir Urmull og Kraðak, tjékkið á þeim á Spotify og YouTube!
    37 min
  • 47. Humi - "Ég var í maníu í tvö ár" Pt.1
    Humi hefur einstaka reynslu af maníum, þunglyndi, öfgafullu ímyndunarafli og skrautlegum uppástungum. Hann var sölumaður hjá Kaupþing í bullandi maníu og læddist svo út á nóttunni til að tala við geimverur út í haga. 
    Þetta er fyrsti hluti af ævintýrum Huma.
    Ps. hljómsveitin hans heitir Urmull og Kraðak, tjékkið á þeim á Spotify og YouTube!
    38 min
  • 46. Reimdi kastalinn
    Houska Castle var byggður á 13 öld í Tékklandi eða Bohamia eins og það hét þá. Kastalinn var byggður ofan á gjá sem íbúar töldu vera hlið að helvíti og var byggður til þess að halda illum öndum inni. Nazistar hertóku kastalann í seinni heimstyrjöldinni en í lok stríðsins brenndu þau öll gögn um hið yfirnáttúrlega sem þau höfðu sankað að sér. Leyndardómar kastalans hafa dregið allskyns fólk að sér en allir eru sammála um að þetta er one scary place. Jarðskjálfti í beinni líka, allir ferskir.
    46 min

About Já elskan

From the publisher's feed

Ef þig langar að hlusta á eitthvað smá uppbyggilegt, pínu fyndið og sturlað skemmtilegt þá ertu á réttum stað! Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir leiða ykkur í gegnum allt og…