Já elskan

Já elskan

Download on the App Store

Já elskan episodes

  • 75. 10 cent beer night
    Cleveland Indians aðdáendur fylltust æsingi þegar þeir heyrðu af því að bjórinn átti að vera á 10 cent á næsta hafnaboltaleik á móti Texas Rangers. Leikurinn hófst með saklausri brjóstasýningu og endaði í hópslagsmálum. Það sem gerðist þar á milli er saga sem þið verðið að heyra. Þetta er frásögn af engum venjulegum íþróttaleik, enda vitum við ekkert um íþróttir.
    56 min
  • 74. Hrollvekja í Heiðmörk pt.2
    Það er spooky season sem þýðir bílferð í Heiðmörk til þess að gera spooky þátt ennþá meira spooky.Við vorum með hroll niður í vajayjay í þessum tveimur pörtum af hrollvekjusögum.
    36 min
  • 73. Hrollvekja í Heiðmörk pt.1
    Það er spooky season sem þýðir bílferð í Heiðmörk til þess að gera spooky þátt ennþá meira spooky.Við vorum með hroll niður í vajayjay í þessum tveimur pörtum af hrollvekjusögum. 
    Ps. Eitt rosalegt spooky sound clip í byrjun (sem fékk ekki að fljóta með í pt.2)
    58 min
  • 72. Cheesman park
    Cheesman park er einn flottasti almenningsgarður Bandaríkjanna en undir honum liggja rúmlega 2000 lík. Í garðinum hafa sést börn á hjólum með keðjur í eftirdragi, maður í læknaslopp með brotinn kjálka og útataður í blóði, ásamt öðru spooky stuffi sem við ætlum ekki að spilla hér.
    51 min
  • 71. Playboy
    Við stöllur förum yfir sögu Playboy í þætti vikunnar. Úr því að vera strögglandi klámblað yfir í það að vera fjölþjóðlegt skemmtanafyrirtæki sem var virði 200 milljón bandaríkjadollara. Hugh Hefner og Bobby Arnstein aðstoðarkona hans verða bendluð við stórt eiturlyfjasmygl sem á sér sorglegan enda. Við byrjum á Playboy á 12:50
    1 hr
  • 70. Slímrigningin í Oakville
    Árið 1994 byrjaði skyndilega að rigna slími yfir heilann bæ í Washington ríki. Ógleði, svimi, óskýr sjón og alvarleg veikindi voru þau einkenni sem hrjáðu íbúa eftir að þeir komust í snertingu við slímið.. stórundarlegur atburður sem við ræðum í þaula.
    Hættum að baula í þaula á 13:25
    43 min
  • 69. Marilyn Monroe
    Marilyn Monroe var one hell of a Kona. Hún átti klikkaða æsku sem fáir kæmust heilir úr. Karlmenn tuskuðu hana til en alltaf stóð hún aftur upp. Mögnuð.
    hehe þáttur númer 69 - Myndir á instagram!
    1 hr 7 min
  • 68. Nafnlausar játningar
    Anonymous confessions er þráður á reddit sem inniheldur ótrúlegustu játningar fólks. Játningar sem hefðu annars aldrei litið dagsins ljós nema af því þær eru nafnlausar. 
    Hin trúlofaða Brynhildur Karlsdóttir er mætt með okkur frá Póllandi = umræðuefni hefst á 22:41
    1 hr 4 min
  • 67. Fyrsta blikið - ”Sorrý pabbi”
    Sandra Sif Agnarsdóttir er Bárðardalsmær sem að tók þátt í stefnumótaþættinum Fyrsta Blikið. Hún fer með okkur á bakvið tjöldin og gefur okkur the gory but great details. Voru þau i samskiptum eftir þáttinn? Var koss? Fóru þau ein heim? …Tune in for some hot gossip
    44 min
  • 66. Talídómíð börn
    Talídómíð er lyf sem var upphaflega hannað til þess að minnka morgunógleði hjá ófrískum konum. Nokkrum árum síðar höfðu fæðst um 15þúsund vansköpuð börn. Lyfjafyrirtækið Grunenthal neitaði öllu og hélt áfram að auglýsa lyfið þrátt fyrir endalausar tilkynningar.
    Umræðuefnið byrjar á 8:25
    Myndir á Instagram!
    48 min

About Já elskan

From the publisher's feed

Ef þig langar að hlusta á eitthvað smá uppbyggilegt, pínu fyndið og sturlað skemmtilegt þá ertu á réttum stað! Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir leiða ykkur í gegnum allt og…