Já elskan

Já elskan

Download on the App Store

Já elskan episodes

  • 65. Fegurðarsamkeppni barna
    Við systur erum mættar spenntar að rabba við ykkur um himinn og hafið, banana, olnboga og vatnsrennibrautagarða. Viðfangsefni þáttarins byrjar á 12:05: Barna fegurðarsamkeppnir, þar sem hárlengingar, mikill farði, gervitennur, háir hælar, kokteil kjólar og eggjandi dans gefa flestu stigin. Í þessu þætti fylgjum nokkrum keppendum í slíkum fegurðarsamkeppnum og snarklikkuðu mæðrum þeirra.
    ATH oggupons bilun í þættinum, ef þið takið eftir því
    56 min
  • 64. Sértrúarsöfnuður Hitlers
    Við vinkonur sprengjum allar æðar í höfðinu á okkur á meðan við klórum okkur fram úr nasisma en að sjálfsögðu með skemmtilegu cult ívafi.
    Við erum á instagram: Jaelskan - tjékkitout
    32 min
  • 63. Miðilsfundir
    Við fengum aðsend handrit frá miðilsfundum sem fóru fram í apríl/maí 2021. Á miðilsfundunum komu fram ýmsir þjóð- og heimsþekktir karakterar. Við förum yfir það sem fjórir fráliðnir einstaklingar höfðu að segja og veltum steinum í leiðinni. Búið ykkur undir eitt stykki háfleygan þátt.
    44 min
  • 62. Foreign Accent Syndrome
    Hvað myndiru gera ef þú myndir vakna einn daginn með breskan hreim? eða jafnvel kínverskan? Foreign Accent Syndrome er heilkenni sem er til í alvörunni og Karen er ein af þeim sem er bara frekar ánægð með nýja breska hreiminn sinn.
    35 min
  • 61. Am I The Asshole
    Am I The Asshole er reddit þráður þar sem fólk spyr spurningar lífsins og við veltum okkur upp úr þeim. 
    Fyrir meira content, hér er linkur: https://www.reddit.com/r/AmItheAsshole/
    1 hr
  • 60. Near death experience
    Þetta er fyrsti þátturinn í þriggja þátta seríu um líf eftir dauðann. Near death experience eða nærri dauða upplifun er þegar fólk fer á annað tilverustig á meðan hjartað þeirra er stopp. Þú flýtur út úr líkamanum þínum og horfir niður á þig á meðan læknar reyna að hnoða þig til lífs. Það gætu komið til þín fráliðnir ættingjar eða þú getur séð stórkostlegar verur sem uppljóstra leyndarmálum heimsins. Því næst sérð þú göng og á hinum endanum skært hvítt ljós. Það er eitthvað á hinum endanum sem dregur þig að því og skyndilega opnaru augun. Þú ert komin aftur í líkamann þinn.
    Í næstu viku fáum við til okkar mann í viðtal sem að segir okkur frá þessu betur.
    46 min
  • 59. Morðið í sæluhúsinu
    Tvær franskar systur koma til Íslands til þess að ferðast um landið á puttanum en ferðalagið tekur skarpa beygju þegar græni Benzinn stoppar úti í vegkannti og þær fá far í næsta sæluhús. Myndir á instagramminu!
    Ingibjörg á líka afmæli í dag þannig þið knúsið hana með olnboganum (útaf covid) ef þið sjáið hana!
    39 min
  • 58. Rottubörnin í Pakistan
    Rottubörnin í Pakistan eða Rat children of Shah Daulah eru börn sem fæðast heilbrigð en eru gefin af foreldrum sínum til glæpagengja um leið og þau fæðast. Glæpagengin setja járngrímur utan um hausinn á þeim í þeirri von um að höfuðið hætti að vaxa. Börnin fá því mjög sérkennilegt útlit og þannig geta glæpagengin sent þau á göturnar til þess að betla…
    47 min
  • 57. Týnda prinsessan
    Sagan um Princess Latifu byrjar á 21:05. Princess Latifa er dóttir leiðtoga Dubai, Sheikh Mohammed. Latifa er haldið nauðugri af pabba sínum eftir að hún reyndi að flýja land í tvígang. Latifa og systir hennar, Shamsa, hafa þurft að upplifa mikið ofbeldi af höndum föður þeirra en systir hennar hvarf af dularfullum ástæðum árið 2000. Latifa flúði 40 km á uppblásnum bát en á móti henni tók indverska landhelgigælsan, byrlaði henni og flaug henni aftur til Dubai þar sem hún er í einangrun og sætir pyntingum. Eftir að síma var smyglað inn til hennar þá hafði hún tök á því að kalla eftir hjálp. Hvar er Latifa í dag?
    1 hr 3 min

About Já elskan

From the publisher's feed

Ef þig langar að hlusta á eitthvað smá uppbyggilegt, pínu fyndið og sturlað skemmtilegt þá ertu á réttum stað! Kristjana Benediktsdóttir og Ingibjörg Ásta Bjarnadóttir leiða ykkur í gegnum allt og…