Mannlegi þátturinn

Janina Kryszewska, Hrútadagurinn og Ólafur Engilbertsson


Listen Later

Það spunnust miklar umræður á facebook síðu RÚV English á dögunum undir frétt um íslenskukennslu og íslenskukunnáttu fólks af erlendum uppruna á Íslandi. Þar kom til dæmis fram hversu erfitt það getur verið að fá vinnu á Íslandi við hæfi út frá menntun og reynslu ef viðkomandi er með erlent nafn, eða vegna þess að það talar t.d. íslensku með erlendum hreimi. Þar var jafnvel talað um að það gæti verið kostur að breyta nafninu sínu og taka sér íslenskt nafn til að eiga meiri möguleika á því að atvinnuumsókn sé tekin alvarlega. Við fengum Janinu Magdalenu Kryszewska, sem vinnur hjá Fjölmenningarsetri, til að gefa okkur innsýn inn í reynsluheim fólks af erlendum uppruna.
Hrútadagurinn á Raufarhöfn er haldinn fyrsta laugardag í október ár hvert í Faxahöllinni á Raufarhöfn. Það var hópur framtakssamra bænda í Þistilfirði, Sléttu og Öxarfirði sem ákváðu að safna saman á einn stað söluhæfum hrútum af svæðinu. Þetta var meðal annars gert til að auðvelda kaupendum valið, að hafa hrútana alla á einum stað til að geta borið þá saman. Einnig er þetta gott tilefni til að koma saman, bændur af svæðinu og þeir sem eru lengra að komnir í kauphugleiðingum, ásamt öðru áhugafólki um sauðfjárræktun. Við fengum Ingibjörgu Hönnu Sigurðardóttur, formann Hrútadagsnefndar, til að segja okkur meira frá Hrútadeginum í ár.
Ólafur Engilbertsson menningarmiðlari hefur sett upp sýningar af ýmsu toga á sinni starfsævi en löngu liðnir atburðir í nágrenni æskuheimilis hans höfðu mikil áhrif á hans líf. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum hitti Ólaf og ræddi við hann.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners