Mannlegi þátturinn

Jóel Pálsson föstudagsgestu og franskt matarspjall


Listen Later

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Jóel Pálsson tónlistarmaður og framkvæmdarstjóri. Hann hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi og hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum á ólíkum sviðum tónlistar. Hann hefur leikið á fjölda hljómplatna og komið fram í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Kína á tónleikum og tónlistarhátíðum. Jóel hefur gefið út 7 hljómplötur í eigin nafni með frumsaminni tónlist. Hann hefur verið meðlimur í Stórsveit Reykjavíkur frá stofnun hennar. Jóel hefur hlotið íslensku tónlistarverðlaunin sex sinnum fyrir plötur sínar og verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs tvisvar, árin 2011 og 2016. Auk tónlistarstarfa stofnaði Jóel, ásamt eiginkonu sinni Bergþóru Guðnadóttur, hönnunarfyrirtækið Farmers Market ? Iceland. Hann sinnir rekstri þess meðfram tónlistarstörfum sínum. Við fengum hann til að segja okkur frá æsku sinni og uppvexti og ferðalaginu í gegnum lífið til dagsins í dag.
Í matarspjalli dagsins hringdum við í Sigurlaugu Margréti þar sem hún er stödd í borg ljóssins, París, og fengum hana til að segja okkur aðeins til dæmis frá herra Fernand, sem gerir heimsfrægt beouf bourguignon og svo velti hún því fyrir sér hvað Frakkar tala um þegar þeir fara út að borða. Sem sagt franskt matarspjall frá París í dag.
_________________________________________
Tónlist í þættinum:
Tjörn eftir Jóel Pálsson
Geigun eftir Jóel Pálsson, texti eftir Þórarinn Eldjárn, söngur Valdimar Guðmundsson
Waterfall með hljómsveitinni Hjaltalín, lag eftir Hjört Ingva Jóhannsson og texti eftir Sigríði Thorlacius
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners