Mannlegi þátturinn

Jólaminningar Jónu Hrannar, Berlín Þrastar og póstkort


Listen Later

Við höfum verið með gesti hjá okkur í desember sem rifja upp áhugaverðar jólaminningar og sögur tengdar jólunum. Í dag var það séra Jóna Hrönn Bolladóttir sem kom í þáttinn og rifjaði upp með okkur jólin, en hennar jól eru auðvitað sérstök að því leyti að hún hefur alla ævi verið á prestsheimili og það litar auðvitað hátíðirnar mikið. Hún rifjaði upp afrek móður sinnar, sem hélt um alla strengi í skipulagi, matreiðslu og í raun öllu sem snéri að jólahaldi fjölskyldunnar.
Þröstur Ólafsson lærði hagfræði í Berlín snemma á sjöunda áratugnum, þegar múrinn var nýreistur og spennan milli austurs og vesturs í algleymingi. Enn var skuggi yfir þýsku þjóðinni eftir Seinni heimstyrjöldina og framundan voru uppreisnarár æskunnar með ?68 kynslóðina í fararbroddi. Þetta voru merkilegir tímar sem eðlilega höfðu mikil áhrif á Þröst sem átti svo eftir að eiga langan starfsferil á sviði menningar, verslunar og stjórnmála. Við fengum Þröst til að segja okkur frá tímanum í Berlín, ferðum yfir til austurhluta borgarinnar og fleiru markverðu sem hann skrifar um í nýútkominn bók sinni Horfinn heimur ? Minningaglefsur.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Magnús hefur verið í einum átta mismunandi löndum um jól. Hann segir frá mismunandi jólum erlendis og ber soldið saman við jólahaldið hér. Í framhaldinu talar hann um leitina að æskulindinni, lífselexírnum, leit sem hefur staðið í þúsaldaraðir en aldrei eins vísindalega og tæknilega og nú. Í lokin fjallaði Magnús aðeins um jólamúsík og jólatexta.
Tónlist í þættinum í dag:
Jingle Bell / Haukur Morthens með hljómsveitum Björns R. Einarssonar og Gunnars Ormslev, hljóðritað 1951 (James Lord Pierpont)
Jólastjarnan / Sigurður Guðmundsson (erlent lag, texti Bragi Valdimar Skúlason)
Jólin með þér / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
Desember / SamSam, Hólmfríður og Gréta Mjöll Samúelsdætur (Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners