Í gær var dagur íslenskrar tónlistar, því á vel við að föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaður sem á bæði langan feril sem slíkur, auk þess að vera í einni vinsælustu hljómsveit landsins, hefur hann einnig átt farsælan sólóferil. Hann hefur stjórnað upptökum á tónlist fyrir margt af okkar þekktasta tónlistarfólki. Hann á einnig langan feril sem útvarpsmaður, hann hóf störf á Rás 2 fljótlega eftir að rásin fór í loftið og hefur lagt sig sérstaklega eftir því að spila íslenska tónlist, auk þess að standa fyrir viðburðum bæði í sjónvarpi og á sviði þar sem hann tekur viðtöl við íslenskt tónlistarfólk. Þetta er auðvitað hinn geðþekki, Jón Ólafsson, maðurinn með IKEA röddina, eins og hann segir sjálfur.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, var hjá okkur með sitt vikulega matarspjall í dag. Í þetta sinn fjallaði hún um súpur. Er í lagi t.d. að bjóða bara uppá súpu og brauð í veislum? Hvers konar súpur eru betri en aðrar í slíkar samkomur og hvernig á að bera þær fram? Föstudagsgesturinn, Jón Ólafsson er sérstakur súpuáhugamaður og sat áfram með okkur í matarspjallinu.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON