MANNEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 19.sept
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Margrét Blöndal
Eftir einn mánuð verður kannabis lögleyft til neyslu í Kanada. Kannabis er nú þegar löglegt í níu ríkjum Bandaríkjanna og í þrjátíu ríkjum þess er kannabis löglegt til neyslu í lækningaskyni, þrátt fyrir að lítið sem ekkert hafi verið sannað um lækningamátt þess. Í þessum pistli segir Magnús frá nokkrum af þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar vestan hafs á áhrifum kannabis á neytendur og samfélagið í heild.
Breytingaskeiðið , matur,jurtir og jóga er blanda sem við ætlum að fjalla um í dag. Þær koma hingað Jóhanna Briem jóga nidra sérfræðingur og Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir og þær segja að matur og jógastöður fyrir orkustöðvarnar stuðli að betra jafnvægi.
Við heimsækjum líka Bókasafn Árborgar á Selfossi - en þar eru margar skemmtilegar hugmyndir viðraðar á hverjum degi. Sumar koma til framkvæmda og ein sú frumlegasta tengist bakstri og kökuformum. Meira um það á eftir.