Karfan
Download on the App Store

Karfan episodes

  • Boltinn Lýgur Ekki: Haukur Helgi í ítarlegu spjalli um ferilinn og framtíðina “Þú tekur þínar eigin ákvarðanir”

    Haukur Helgi Pálson Briem, leikmaður íslenska landsliðsins og Unics Kazan, var gestur í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Í þættinum fór hann yfir ferilinn til þessa, stöðuna í dag, framtíðina og margt fleira. Haukur var spurður út í þau kynslóðaskipti sem hafa verið að eiga sér stað í landsliðinu og hvernig honum lítist á framtíð liðsins.


    Þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gamall í dag, þá hefur Haukur spilað meira en minna fyrir utan landsteina Íslands síðustu 12 ár. Haukur fer í þættinum í gegnum þennan fjölbreytta feril og segir sögur frá hverjum einasta stað sem hann var á, en meðal annarra liða sem Haukur hefur verið á mála hjá er Montverde akademían og Maryland háskólinn í Bandaríkjunum, nokkur lið í ACB á Spáni, deildir í Svíþjóð, Frakklandi og Rússlandi, sem og að sjálfsögðu árið sem hann tók með Njarðvík í Dominos deildinni.


    Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.


    Gestur: Haukur Helgi Pálsson Briem


    Umsjón: Davíð Eldur og Sigurður Orri


    Dagskrá


    00:00 - Létt Hjal

    04:00 - Upphafið og Fjölnir

    12:00 - Montverde og Maryland

    24:00 - Sögur úr mennskunni - ACB, Þýskaland og Svíþjóð

    41:00 - Árið með Njarðvík

    48:00 - Þrjú ár í Frakklandi

    55:00 - Barist við birni í vestur Rússlandi og boð í Summer League

    01:17:00 - Líf atvinnumannsins

    01:29:00 - Vonlaus áhrifavaldur

    01:31:00 - Besta lið sem Haukur hefur spilað með

    01:37:00 - Þróun landsliðsins síðustu ár og framtíðin

    01:53:00 - Hvert er Haukur að fara?

    01:58:00 - Lögreglumaðurinn Haukur Helgi

    02:02:00 - Hvern er erfiðast að dekka?

    02:05:00 - Draumalið samherja

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    2 hr 16 min
  • Aukasendingin - Símaútgáfa: Trausti, Baldur Þór og Jóhann Árni um stöðuna í samkomubanni

    Ný þáttur af aukasendingunni er mættur, en það er sérstök útgáfa í þetta sinn. Við tókum upp símtólið og hringdum í nokkra aðila tengda körfuboltanum. Sjáum hvernig staðan er á liðunum í samkomubanni.

    Á næstu vikum ætlum við okkur að hringja um hvippinn og hvappinn, ræða við allskonar fólk tengt körfuboltanum, leikmenn, þjálfara, stjórnarmenn, stuðningsmenn eða bara hvað sem er. 

    Fyrstu gestirnir voru þeir Trausti Eiríksson, Baldur Þór Ragnarsson og Jóhann Árni Ólafsson.

    Aukasendingin er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.


    Umsjón: Ólafur Þór Jónsson


    1:00 - Trausti Eiríksson, leikmaður ÍR

    13:20 - Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls

    30:30 - Jóhann Árni Ólafsson, þjálfari Grindavíkur


    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    44 min
  • (Endurútgefið - Maí 2018) Raggi Nat í spjalli - Stóri bekkjartrúðurinn frá Hveragerði

    Ragnar Nathanaelsson var gestur vikunnar í Podcasti Körfunnar í Maí 2018, þar sem hann gerði upp ferilinn, en hann hefur komið víða við. Það eru margar stórskemmtilegar sögur sem Raggi segir frá í þessum þætti auk þess sem 2017-18 tímabilið er gert upp.

    Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur

    11:45 - Nýjustu fréttir - Danero í Tindastól

    16:50 - Ágúst dregur Ragga á æfingar í Hveragerði

    13:30 - Veðrið kom í veg fyrir flutning til Ísafjarðar

    15:30 - Raggi fer til Þór Þ

    18:15 - Ævintýri í Svíþjóð- Fjörug sambúð með Ægi

    27:30 - Endurkoma til Þór Þ

    30:20 - Try-out hjá Dallas Mavericks

    34:00 - Pick-up bolti með Isaiah Thomas

    43:10 - Nat til Spánar - Siesta og kjötveisla

    57:15 - Raggi kemur heim - Atvinnumennskan á hilluna

    1.00:00 - Vonbrigðatímabil í Njarðvík

    1.08:30 - Viðskilnaðurinn við Njarðvík og samið við Val

    1.21:00 - Mikilvægt að hafa góðan móral

    1.26:10 - Landsliðsferillinn og framtíðin

    1.33:15 - Dominos deild karla gerð upp

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 45 min
  • (Endurútgefið - Ágúst 2018) 1 á 1: Kristófer Acox í einlægu spjalli

    Í þessum fyrsta þætti af 1 á 1 hjá Körfunni frá ágúst 2018 er gesturinn Kristófer Acox. Kristófer var þá nýjasti atvinnumaður Íslendinga í körfubolta. Í þættinum er rætt um agann í Bandaríkjunum, titlana hjá KR, landsliðið, ævintýrin í Filipseyjum og B5 svo einhver dæmi séu tekin.

    Umsjón: Ólafur Þór Jónsson

    Efnisyfirlit:

    1:45 - Uppeldið í Vesturbænum - Upprennandi framherji í fótbolta

    8:30 - Miðskóli í Bandaríkjunum - „Sprakk í loft upp”

    17:30 - Vinsæll í Furman, næstum farinn heim eftir eitt ár

    25:45 - Sambandið við foreldrana - „Væri ekkert í dag ef það væri ekki fyrir mömmu“

    32:00 - Endurkoman í KR - „Gat ekki orðið allt öðruvísi leikmaður á þessu eina ári“

    43:00 - Heimsfrægur í Filipseyjum - Elskaður og hataður

    55:15 - Síðasta tímabil: „MVP viðurkenningin var titlingaskítur hliðin á Íslandsmeistaratitlinum“

    1.04:30 - Næstum farinn til ÍR í sumar en endaði í Frakklandi

    1.11:30 - Landsliðið: „Kynslóðaskipti er þreyttasta orð sem ég veit um“

    1.16.00 - Umræða um komandi tímabil í Dominos deild karla

    1.21:00 - „Mér finnst gaman að geta gefið til baka“

    1.22:45 - B5 og umræðan um Kristófer

    1.26:30 - „Planið að koma ekki heim næstu 10 ár“

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 29 min
  • Boltinn Lýgur Ekki: Martin Hermannsson “Maður er í þessu til þess að sjá hvað maður getur náð langt"

    Körfuknattleiksmaður ársins, leikmaður íslenska landsliðsins og Alba Berlin í Þýskalandi, Martin Hermannsson gerði sér ferð vestur í bæ og sat fyrir svörum í síðustu upptöku af Boltinn Lýgur Ekki. Fór Martin yfir ferilinn til þessa, rýndi í framtíðina og svaraði spurningum hlustenda.


    Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.

    Gestur: Martin Hermannsson

    Umsjón: Davíð Eldur og Sigurður Orri

    Dagskrá:

    00:00 - Létt Hjal

    03:20 - Byrjunin og yngri flokkar

    09:00 - Meistaraflokkur KR

    13:00 - Háskólaárin í New York

    21:30 - Sem atvinnumaður til Evrópu

    46:10 - Íslenska landsliðið

    59:00 - Áhrif Jóns Arnórs á íslenskan körfubolta

    01:02:30 - Laus samningur og framtíðin

    01:17:00 - Hvað gerir atvinnumaður í samkomubanni?

    01:19:00 - Aðsendar spurningar

    01:35:00 - Draumalið samherja

    01:39:00 - Áhugi annarra liða og tenging til Íslands

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 48 min
  • (Endurútgefið - Júlí 2019) Off-season: Siggi Hjörleifs "Við eigum ekki að vera brjóta reglur"

    Nú fyrst að körfuboltatímabilið er í pásu ætlum við hjá Körfunni að taka fyrir nokkra stólpa innan körfuboltahreyfingarinnar. Þessir aðilar munu koma úr öllum áttum; þetta verða leikmenn, þjálfarar, stuðningsmenn, sjálfboðaliðar og fleiri sem munu ræða hvernig þeir koma að og þrífast í þessari móður allra íþrótta.

    Viðmælandi dagsins er Sigurðu Hjörleifsson, yfirleitt kallaður Siggi Hjörleifs. Siggi hefur verið í kringum körfuna á Íslandi í fjöldamörg ár og hefur marga fjöruna sopið. Hann ræðir synina sína, Matthías Orra og Jakob, hans eigin leikmanna- og þjálfaraferil og minnist líka á Íslandsmet sem að hann á utan körfuboltans. 

    Siggi hefur á seinni hluta ferilsins síns einbeitt sér að því að vera umboðsmaður fyrir erlenda körfuboltaleikmenn. Hann hefur komið með helling af stórum nöfnum til landsins og þar má nefna menn eins og Brenton Birmingham, Darrell Lewis og Justin Shouse. Hann þjálfaði '82 landsliðið fræga, gerði kvennalið Breiðabliks að Íslandsmeisturum fyrir aldamótin og hefur byggt upp körfubolta á fjölmörgum stöðum á Íslandi. 
    Undir lokin förum við um víðan völl og tölum m.a. um hvernig körfuboltinn hér á landi er einmitt núna og hvert hann stefnir. Njótið vel!

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 18 min
  • (Endurútgefið - Janúar 2020) Boltinn Lýgur Ekki: Kobe Bryant 1978-2020

    Þær sorgarfréttir bárust í janúar að körfuboltagoðsögnin Kobe Bryant sem lék sinn feril með Los Angeles Lakers hefði látist í þyrsluslysi.


    Í þessari upptöku af Boltinn Lýgur Ekki er farið yfir feril leikmannsins og hvaða áhrif hann hafði á íþróttina, bæði sem leikmaður, sem og eftir að hann hætti að spila.


    Gestur þáttarins er Hrafn Kristjánsson, þjálfari Álftnesinga í fyrstu deildinni og aðdáandi Los Angeles Lakers til margra ára.


    Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 11 min
  • Podquiz Körfunnar: Annar þáttur – 30 spurningar um íslenskan körfubolta

    Véfréttin, eins og aðrir í samkomubanni saknar Dominos deildarinnar mikið. 


    Til þess að skemmta hlustendum Körfunnar hefur hún því hent í spurningakeppni sem er tilvalin fyrir vini, vinahópa og pör. 


    Podquiz er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.


    30 spurningar. Allar tengdar íslenskum körfubolta.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    25 min
  • Boltinn Lýgur Ekki: Mate og Hraunar í heimsókn, ákvarðanir, útlendingamál og framtíðin

    Véfréttin fékk reiðustu menn körfuboltafjölskyldunnar í heimsókn í Boltinn Lýgur Ekki. Þá Mate Dalmay og Hraunar Guðmundsson. Þeir fóru yfir nýjustu vendingar varðandi ákvörðun KKÍ, hvernig fyrsta deildin spilaðist í vetur, hvernig útlendingamál muni þróast á næsta ári og margt fleira.

    Boltinn lýgur ekki er í boði Dominos og eru hlustendur minntir á að nota afsláttarkóðann “karfan.is” þegar pantað er með Dominos appinu eða á dominos.is. Þá er upptakan einnig í boði Kristalls, sem er það eina sem stjórnendur drekka á þeim dögum sem upptökur fara fram.

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    1 hr 25 min
  • The Uncoachables: Game Over, Man. Game Over

    The season has ended prematurely in the Icelandic leagues in light of the global pandemic of the Corona virus, Covid-19. The Icelandic Basketball Federation announced last Wednesday (18th of March) that all basketball in Iceland is over until next season. Although we are sad about this unprecedented turn of events we understand that a difficult decision had to be made.


    This is our wrap-up episode for the 2019-2020 season in the Men's and Women's Leagues where we discuss the last couple of games, the decision to call it all off and if the decisions of who gets relegated and promoted are fair. We discuss what might happen with regards to the coaches next year and in general just try and wrap our heads around this unfulfilling end to a magnificent season. Enjoy!

    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson and David Patchell

    Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

    Hér heimsækir þú Körfuna



    56 min

About Karfan

From the publisher's feed

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

More shows like Karfan

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Endalínan by Podcaststöðin

Endalínan

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Boltinn Lýgur Ekki by SiggiOrri

Boltinn Lýgur Ekki

1 Listeners