
Sign up to save your podcasts
Or


Þessa stundina er Karfan stödd í Kisakallio í Finnlandi þar sem að Norðurlandamót yngri 16 og 18 ára landsliða fer fram. Leikar hófust í dag gegn Noregi, en þegar að þessi frétt er skrifuð er enginn leikja Íslands búinn.
Mikið af þjálfurum fylgja liðunum fjórum, þrír í heildina fyrir hvert lið. Karfan settist niður með aðalþjálfara undir 16 ára liðs drengja, Hjalta Vilhjálmssyni og ræddi við hann um verkefnið sem er í hönd og það sem tekur við hjá honum eftir að landslið hans lýkur leik í sumar, en hann tók við liði Keflavíkur í Dominos deildinni í byrjun sumars.
Umsjón: Davíð Eldur & Ólafur Þór
Dagskrá:
00:00 - Létt hjal
01:30 - Ferill Hjalta
12:00 - Meistari með KR
19:00 - Hjalti tekur við Keflavík
30:00 - U16 verkefni drengja
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Sigurbjörn Daði Dagbjartson settist niður með þjálfara KR og kvennalandsliðs Íslands, Benedikt Guðmundssyni, til þess að ræða boltann. Til þeirra kemur svo góður gestur að nafni Eiríkur Sigurgeirsson í frekara spjall, en hann lék Axel Bónusvíking í kvikmyndinni Nýju Lífi árið 1983.
Upptakan er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndbandi hér fyrir neðan.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Þessa stundina er Karfan stödd í Kisakallio í Finnlandi þar sem að Norðurlandamót yngri 16 og 18 ára landsliða fer fram. Leikar hófust í dag gegn Noregi, en þegar að þessi frétt er skrifuð er enginn leikja Íslands búinn.
Mikið af þjálfurum fylgja liðunum fjórum, en ásamt þeim þremur sem fylgja hverju liði er þar einnig yfirþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson. Við hann ræddi podcast Körfunnar í gærkvöldi á meðan hann fylgdist með æfingu undir 18 ára drengja í Susi 1 æfingasalnum á svæðinu.
Finnur fer yfir víðan völl í viðtalinu. Ræðir hver innkoma hans sé í þetta nýja starf yfirþjálfara, hver framtíð landsliðana sé, sem og hver framtíð hans sé, en hann tók við liði Horsens í dönsku úrvalsdeildinni á dögunum.
Umsjón: Davíð Eldur & Ólafur Þór
Dagskrá:
00:30 - Starf yfirþjálfara og framtíð landsliða
20:00 - Framtíð Finns í Danmörku
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Toronto Raptors tryggðu sér í nótt sinn fyrsta NBA titil með 4-2 sigri á Golden State Warriors í einvígi liðanna.
Í þessari upptöku er farið yfir fyrstu viðbrögð af þessum síðasta leik, einvíginu í heild og hvað þetta þýði fyrir liðin í næstu framtíð.
Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.
Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður Orri
Dagskrá:
00:00 – Létt hjal
02:00 - Raptors meistarar 2019
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Farið er yfir viðureign Toronto Raptors og Golden State Warriors í úrslitum NBA deildarinnar í fyrri hlutanum. Í þeim seinni er svo spáð fyrir hvað muni gerast á leikmannamarkaði sumarsins.
Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.
Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður Orri
Dagskrá:
00:00 - Létt hjal
02:00 - Raptors v Warriors
29:00 - Hvert fara menn með lausa samninga í sumar?
44:00 - Eru einhver leikmannaskipti í kortunum?
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Sigurbjörn Daði Dagbjartson settist niður með Svala Björgvinssyni, fyrrum leikmanni og þjálfara, núverandi körfuknattleikslýsanda og stjórnarmeðlim Vals til þess að ræða boltann.
Upptakan er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndbandi hér fyrir neðan.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Meistarar síðustu sex ára í KR gengu í gær frá smningum við þrjá nýja leikmenn. Fá þeir Brynjar Þór Björnsson úr Tindastóli, Jakob Sigurðarson frá Boras í Svíþjóð og bróðir hans Matthías Sigurðarson úr ÍR. Allt eru þetta uppaldir leikmenn KR, sem eru eftir mislangan tíma að snúa aftur heim í Vesturbæinn.
Sigurbjörn Daði Dagbjartson settist niður með formanni KR, Böðvari Guðjónssyni eftir að blekið hafði þornað í höfuðstöðvum Alvogen í gær og ræddi við hann um uppgang KR og framtíðina.
Upptakan er hluti af Sibbaspjalli, en það er bæði aðgengilegt sem podcast inni á iTunes og öðrum veitum, sem og á myndbandi hér fyrir neðan.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Komandi fimmtudagskvöld fara af stað lokaúrslit NBA deildarinnar. Verður það verkefni ríkjandi meistara að verja titilinn gegn Toronto Raptors, sem eru í fyrsta skipti komnir í úrslitin.
Leið liðanna í úrslititin nokkuð ólík. Þar sem að í úrslitum Austurstrandarinnar þurftu Raptors að kljást við sterkt lið deildarmeistara Milwaukee Bucks í sex leikjum á meðan að Warriors fóru nokkuð létt, eða í fjórum leikjum, í gegnum lið Portland Trail Blazers í úrslitum Vesturstrandarinnar.
Til þess að ræða þetta og margt, margt fleira fékk podcastið Tómas Twittah Steindórsson í heimsókn til sín, en eins og allir vita, þá er hann harðasti stuðningsmaður Warriors í heiminum.
Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður Orri
Dagskrá
00:00 - Létt hjal
02:00 - Bucks v Raptors
15:00 - All NBA liðin
29:00 - Warriors v Trail Blazers
32:00 - Úrslitaeinvígi Raptors & Warriors
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Þórsarinn Baldur Þór Ragnarsson ákvað á dögunum að kveðja sitt uppeldisfélag í Þorlákshöfn eftir að hafa verið aðalþjálfari þess í eitt ár og taka við Tindastóli.
Gerði Baldur nokkuð vel á sínu fyrsta ári með liðið, skilaði þeim meðal annars í undanúrslit úrslitakeppni Dominos deildarinnar, þar sem þeir lutu í lægra haldi fyrir Íslandsmeisturum KR. Ef ekki hefði verið fyrir mjög svo óvæntan árangur ÍR, sem fóru alla leiðina í oddaleik um titilinn, hefði spútniklið, eða það sem kom mest á óvart alveg klárlega verið lið Baldurs í Þorlákshöfn.
Sigurbjörn Daði Dagbjartson settist niður með þjálfaranum á sólríkum degi í Þorlákshöfn og ræddi við hann um viðskilnaðinn við Þór, nýja starfið í Skagafirði og framtíðina.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Í þessari síðustu upptöku af NBA podcasti Körfunnar er farið yfir helstu fréttir dagsins og viðureignir úrslitakeppninnar.
Lotterí deildarinnar fyrir nýliðavalið, nýjir þjálfarar hjá Lakers og þá eru gerð upp tímabil liðanna sem að duttu út á dögunum, Philadelphia 76ers, Boston Celtics, Denver Nuggets og Houston Rockets.
Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.
Gestur: Baldur Beck
Umsjón: Davíð Eldur & Sigurður Orri
Dagskrá
00:00 - Létt hjal
01:30 - Lotteríið og Lakers
31:00 - Austurströndin
72:00 - Vesturströndin
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
From the publisher's feed
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

469 Listeners

140 Listeners

21 Listeners

129 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

9 Listeners

28 Listeners

17 Listeners

35 Listeners

15 Listeners

25 Listeners

12 Listeners

1 Listeners