Íslenska kvikmyndin Kona fer í stríð var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í síðustu viku og hefur fengið frábæra gagnrýni í erlendum fjölmiðlum og í fyrradag fengu þeir Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson, handritshöfundar myndarinnar, SACD verðlaunin sem veitt eru í flokknum Critic's Week á hátíðinni. Svo í gær hlaut Benedikt önnur verðlaun, Gullnu lestarteinana fyrir leikstjórn. Þeir Benedikt og Ólafur Egill voru föstudagsgestir Mannlega þáttarins og sögðu okkur allt frá myndinni og hvað er framundan eftir þessa frábæru byrjun.
Besti vinur bragðlaukana Sigurlaug Margrét Jónasdóttir kom til okkar í matarspjallið góða og í dag og talaði um jarðaber, kökur, tertur og konunglegar veislur.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson