
Sign up to save your podcasts
Or


Í þætti vikunnar fóru strákarnir yfir skánandi verðbólguhorfur, ársreikning Reykjavíkurborgar og yfirprjón helstu andstæðinga okkar í gagnrýni á hann. Þá ræddu þeir skattalækkun á bensíni og olíu sem tekur gildi 1. maí og afhverju það er mikilvægt að geta ráðist í verðlagseftirlit á þessum markaði.
Arnar sagði frá ferð á eilítið einhliða ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu þar sem skortur á jákvæðri framtíðarsýn fyrir höfuðborgarsvæðið var ríkjandi og einn þeirra sem sat í pallborði virtist harma það að Fossvogsdalurinn hefði ekki verið malbikaður á sínum tíma.
Í seinni hluta þáttarins er svo rætt við Sigurjón Vídalín Guðmundsson oddvita okkar fólks í Árborg um stöðu mála í sveitarfélaginu.
Myndi eitthvað stórfyrirtæki ráða bæjarstjórann á Seltjarnarnesi sem framkvæmdastjóra með hliðsjón af rekstri og þjónustu bæjarins síðustu ár?
Þessari spurningu og ýmsum öðrum er velt upp í spjalli við þau Auði Höllu Rögnvaldsdóttur frambjóðanda S-listans á Seltjarnarnesi og Sigurð Vopna Vatnsdal oddvita Samfylkingarinnar í Akraneskaupstað. Arnar Þór og Þórhallur Valur tóku þau tali.
Gunnsteinn R. Ómarsson oddviti Samfylkingar og félaga í Ölfusi er svo gestur í síðari hluta þáttarins og fer yfir stöðu mála fyrir kosningar í sveitarfélaginu.
Oddviti Samfylkingar í Kópavogi, Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir sem skipar 2. sæti listans kíktu í heimsókn og ræddu málin við þá Arnar og Val.
Farið var yfir nýtt útspil Samfylkingarinnar sem kynnt var í síðustu viku og ber heitið Tökum ábyrgð hvert á öðru en Jónas leiddi þá vinnu. Barnaskatturinn í Kópavogi er eitthvað sem þau vilja afnema og þau vilja breyta opnunartíma sundlauga.
Kosningabaráttan sem er að hefjast var auðvitað fyrirferðamikil og nú er mánuður í herlegheitin.
Frambjóðendurnir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Regína Ásvaldsdóttir sem sitja í 3. og 7. sæti lista Samfylkingarinnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar komu í spjall um borgina og kosningabaráttuna framundan.
Rætt var um jákvæða hluti í borginni eins og frístundamiðstöðvar og græn svæði, reksturinn og leikskólamálin.
Nú eru fimm vikur til kosninga og baráttan er að fara á fullt. Þær hvetja alla hlustendur Kratans til að leggja baráttunni lið!
Krati vikunnar er þéttpakkaður af oddvitum og gæðaefni. Pétur H. Marteinsson, leiðtogi Samfylkingarinnar í Reykjavíkurborg, er gestastjórnandi í þetta sinn og fer yfir það hvernig takturinn er í framboðinu nú þegar einn og hálfur mánuður er til kosninga.
Pétur ræðir meðal annars um Breiðholtið, mikilvægi íslenskukennslu, hvað sundlaugar og íþróttastarf sem miðja hverfa gefur Íslandi mikla sérstöðu í heiminum þegar kemur að lífsgæðum og allt sem hann er búinn að læra um karate. Svo er rætt um fjármálaáætlun, efnahagslega helgarpabbann Sjálfstæðisflokk sem er að reyna að gera allt til að láta engan taka sig alvarlega og öfugar dyggðarskreytingartilraunir Miðflokksins sem eru orðnar að aðhlátursefni og fórnarlambavæðingu gremjupólitíkusa á jaðrinum, svo fátt eitt sé nefnt.
Í síðari hluta þáttarins mætir Kjartan Atli Kjartansson, oddviti Samfylkingarinnar í Garðabæ og Álftanesgoðsögn, í viðtal við Arnar Þór Ingólfsson og segir honum frá því hvað hann ætli að gera til að kratavæða Garðabæ.
Um helgina fór fram afar vel heppnaður flokksstjórnarfundur.Hvað er flokkstjórnarfundur? Við fórum yfir það og stæla í stjórnarandstöðunni varðandi vindmyllur og bændamóttökur ásamt almennri Evrópu-umræðu.
Viðmælandinn í dag er oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, Ólafur Ingi Óskarsson.
Í nýjasta þætti Kratans förum við yfir helstu mál vikunnar. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti bæði vegna innri og ytri þátta. Þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu var ein sú lengsta í sögunni og Evrópumálin því aðeins rædd aftur.
Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal Arnars Þórs við oddvita Samfylkingarinnar á Akureyri.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu hefur verið sett á dagskrá þann 29. ágúst. Stjórnarandstaðan er hrædd um sumarfríið sitt. Við fórum yfir hegðun og atferli stjórnarandstöðunnar undanfarna daga ásamt því að ræða um kosti Evrópusambandsins.
Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Kristinn Ólafsson “Seltjarnarneskempu” sem leiðir S listann þar.
Í þætti dagsins fórum við yfir þær kannanir sem birtar voru í síðustu viku, lögðum mat á niðurstöðurnar og ræddum nýjustu tíðindi af framboðslistum. Þá sérstaklega ferskleika Framsóknar og framboð Brynjars Níelssonar sem bætti síðast við sig fylgi árið 2017.
Björgunarsveitin Kofri í Súðavík fær „shoutout“ fyrir frækna frammistöðu við björgun þingmanna í Skötufirði í síðustu viku og sú saga sögð frá fyrstu hendi. Þórður Snær sagði frá fundinum þegar Davíð Oddsson var kynntur sem ritstjóri Morgunblaðsins.
Í seinni hluta þáttar mætti Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður flokksins og oddviti í Hafnarfirði, og fór yfir víðan völl. Meðal annars framboðslistann í Hafnarfirði, helstu málefni í bænum, handabandið hans Obama og hvernig hann öðlaðist virðingu Davíðs Oddssonar.
Það er kjördæmavika og þingmenn og starfsfólk því á fleygiferð um kjördæmin. Farið var yfir dagskrána framundan og það sem hefur drifið á daga okkar undanafarið.
Rætt var um Vinstrið, Brynjar Nielsson og Loga Einarsson sem virðist hafa komið heim á töfrateppi frá Indlandi.
From the publisher's feed