
Sign up to save your podcasts
Or


Í Kratavarpinu þessa vikuna er rætt ítarlega um nýtt formannskjör í Framsóknarflokknum, hvort formaður stjórnmálaflokks geti virkilega setið utan þings árum saman og því velt upp hvort að það hlutskipti að verða formaður í þeim flokki sé sambærilegt og að erfa vídjóleigu árið 2026. Önnur framboðsmál eru rædd, Píratahornið er á sínum stað, velt er upp hvert Sjálfstæðisflokkurinn ætti helst að flytja og línur lagðar fyrir kjördæmaviku.
Í seinni hluta þáttarins er rætt við Skúla Helgason borgarfulltrúa um þær nýjungar í leikskólamálum sem kynntar voru í höfuðborginni í vikunni og hafa mælst afar vel fyrir.
Í Kratanum í dag er rætt um prófkjör í Kópavogi og áhyggjur af verðskrárhækkunum í gusum landsins. Miðflokkurinn ber á góma og misheppnaðar tilraunir Framsóknar til að vera "hip og kúl".
Í seinni hluta þáttarins má heyra viðtal Arnars Þórs Ingólfssonar við Jónas Má Torfason, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, þar sem farið er nánar yfir prófkjörið og næstu skref.
Í Kratanum í dag er farið raunveruleikatengt yfir stöðu mála í efnahagsmálum, þann gríðarlega stuðning sem Samfylkingin er með í landsmálunum og mjög sterka stöðu flokksins í borginni eftir vel heppnað prófkjör. Þá er farið á dýptina í umræðu um hvort Íslendingar séu meðvitaðir neytendur og þáttastjórnendur skilgreina sig út frá þeim menntaskóla þeir voru í.
Í seinni hluta þáttarins er rætt við Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ.
Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Þórður og Valur yfir vikuna. Þar bar helst á góma flokksvalið síðasta laugardag. Farið var yfir framboð til sveitarstjórnarkosninga hjá Viðreisn og yfirferð á nýlegri könnun Maskínu. Í síðari hluta þáttar má heyra viðtal við Pétur H. Marteinsson, verðandi borgarstjóra Reykjavíkur.
Arnar, Ásta, Sonja og Þórður fóru yfir mál sem gengið hafa á undanfarna daga. Rætt var um hálku og handbolta, tilraun vinstrisins til að sameinast og sýn Miðflokks og sumra Sjálfstæðismanna á Borgarlínuna. Í síðari hluta þáttarins má heyra viðtal við Guðmund Ara Sigurjónsson um menntamálin.
Kratinn er mættur aftur eftir jólafrí og í þessari viku voru þau þrjú, Arnar Þór Ingólfsson, Sonja Huld Guðjónsdóttir og Þórður Snær Júlíusson. Þau ræddu komandi sveitarstjórnarkosningar, breytingar á ráðherraskipan og kostnað við hvert atkvæði hjá flokkunum í kosningabaráttunni í hittiðfyrra en stjórnarandstaðan greiddi þrefalt meira fyrir hvert atkvæði en flokkar í stjórn.
Síðasti þáttur fyrir jól. Í tilefni af því fórum við yfir þingveturinn, krýndum best klædda þingmanninn, besta þingmannamálið, verstu ræðuna og ýmislegt fleira.
Hlökkum til að mæta með nýtt kratakrydd eftir áramót.
Gleðileg jól!
Í þættinum fóru Sonja, Ásta, Valur og Þórður yfir helstu fréttir vikunnar. Viðbætur sem samþykktar voru í 2. umræðu um fjárlögin, samgönguáætlun sem var kynnt fyrir viku og svo var því velt upp hvort að Sjálfstæðisflokkurinn væri í raun orðinn að Pírataflokki.
Í seinni hluta þáttar kom Jóhannes Óli Sveinsson, forseti ungs jafnaðarfólks, í viðtal til Vals og ræddi um forprófkjör til sveitarstjórnakosninga.
Ár er liðið frá því að þjóðin kaus breytingar. Í tilefni af því fara þau Arnar, Ásta, Sonja og Þórður yfir það besta sem ríkisstjórnin hefur gert hingað til.
Svo er verðbólga að lækka, er sleggjan mætt? Þetta og ýmislegt fleira.
Í seinni hluta þáttar er viðtal við Örnu Láru Jónsdóttur sem er formaður efnahags- og viðskiptanefndar og situr einnig í fjárlaganefnd.
Stór hluti þáttar fór í að ræða verndaraðgerðir ESB gegn kísilframleiðslu. Guðrún Hafsteinsdóttir talaði um glæpamennina í Evrópusambandinu, Sigurður Ingi stakk upp á að fara í tollastríð og Miðflokkur sagði EES samninginn í uppnámi.
Í seinni hluta þáttar ræðir Arnar Þór Ingólfsson við Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur um loftslagsmálin en hún er nýlega komin heim af COP30 í Brasilíu.
From the publisher's feed