Kratinn

Kratinn

By SamfylkinginNewsPolitics
Download on the App Store

Kratinn episodes

  • S211: Efnahagsmálin á mannamáli

    Í þættinum fóru Arnar, Ásta, Þórður og Valur yfir fréttir vikunnar. Efnahagsmálin voru fyrirferðarmikil enda gengur vel, tiltekt í ríkisrekstri hefur skilað raunverulegum árangri og nú heldur vaxtalækkunarferlið áfram.


    Í síðari hluta þáttarins ræddi Sonja við Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formann ÖBÍ um löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

    58 min
  • S210: Fagurfræðilega ómöguleg lausn framkallar samsæriskenningu á forsíðu Morgunblaðs

    Í Krata dagsins er kafað ofan í ótrúlega fyndna, ranga og nett brjálaða forsíðufrétt Morgunblaðsins, nýja ásýnd Sjálfstæðisflokksins sem felur í sér að horfa til fortíðar og hvort það sé ekki bara fínt að fá á sig Kristrúnar Frostavetur. Farið er yfir ríkislögreglustjóramálið, eða JYSK-skandalinn, og skýrt af hverju það þurfi að setja lög um snjallsímabann í skólum. Í síðari hluta þáttarins ræðir Sonja Huld Guðjónsdóttir við Sigurrós Elddísi um velferðarmál.

    52 min
  • S206: Maine coon, Laxness og leikskólamál

    Í þættinum í dag fara Ásta, Sonja, Valur og Þórður yfir fréttir vikunnar sem voru nokkuð margar og vítt og breitt um sviðið. Í seinni hluta þáttar heyrum við viðtal við Dagbjörtu Hákonardóttur um þingmannamál sem hún lagði fram í síðustu viku um leikskólamál.


    50 min
  • S205: Varnir Alþingis og varnir Íslands

    Öryggismálin eru á oddi í þessum þætti. Farið var yfir nokkrar fréttir vikunnar, öryggisbrot á Alþingi, Reykjavíkurleiðina og fleira og í seinnipart þáttar heyrum við viðtal við Víði Reynisson, einn helsta varnar- og öryggissérfræðing landsins.

    52 min
  • S204: Veðmálastarfsemi og vendingar vikunnar

    Farið var yfir fréttir síðustu daga, fall Play, ótrúlega frásögn af Birgi Þórarinssyni, frábæran flokksstjórnarfund, hrókeringar í Miðflokknum og það hvort búið sé að eyðileggja Reykjavík eins og sumt stjórnmálafólk virðast halda. Viðmælandi þáttarins var Sigurþóra Bergsdóttir sem ræddi um ólögmæta veðmálastarfsemi við Þórð.

    49 min
  • S202: Kristrún Frostadóttir

    Forsætisráðherra mætti í spjall til Þórðar Snæs og var á nokkuð persónulegum nótum. Á fjórum árum fór hún úr því að verða þingmaður yfir í að gegna embætti forsætisráðherra. Hún fer yfir það og margt fleira.



    56 min

About Kratinn

From the publisher's feed

Vettvangur til að upplýsa um skilaboð jafnaðarfólks.