Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikkonan Kristbjörg Kjeld. Hún hefur á löngum og farsælum ferli leikið gríðarlegan fjölda eftirminnilegra hlutverka á sviði, í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu. Við spurðum hana út í lífið og listina og ferðalagið í gegnum lífið til dagsins í dag. Einnig sagðu hún okkur frá leiklestrum í Þjóðleikhúskjallaranum á leikritum eftir eiginmann Kristbjargar, Guðmund Steinsson heitinn.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir var hjá okkur í dag með sitt vikulega matarspjall. Í dag talaðu hún um hvað sé best að matreiða og borða á kuldalegum dögum og við ætlum líka að ræða um hvernig hinn fullkomni bolli af heitu súkkulaði er lagaður.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON