Nú um helgina verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Umhverfishátíð í Norræna húsinu sem kallast Gerum heimilin grænni! Markmiðið er að kynna einfaldar og skemmtilegar lausnir sem stuðla að umhverfisvænna og grænna heimili. Boðið upp á viðburði sem kynna leiðir til að nýta betur verðmætin allt í kringum okkur og draga úr sóun á ýmsum sviðum. Dr. Sophie Jensen doktor í lyfjafræði og sérfræðingur í efnagreiningum kom í þáttinn og sagði frá.
Írsku hjónin Andrew og Lorri Stevenson hafa á undanförnum fjórum árum komið yfir þrjátíu sinnum til Íslands. Lorri hefur gríðarlegan áhuga á íslenskri popptónlist og hefur náð góðum tökum á íslenskri tungu meðal annars með því að hlusta á lög eftir Eyjólf Kristjánsson, Stefán Hilmarsson, Björgvin Halldórsson, Magna Ásgeirsson og fleiri þjóðþekktar poppstjörnur. Heima hjá þeim í Írlandi er nánast bara spiluð íslensk tónlist, fylgst með íslenskum fréttum í sjónvarpinu og hlustað á íslenskar útvarpsstöðvar. Mikill vinskapur hefur skapast með hjónunum og tónlistarmönnunum Stebba og Eyfa. Viktoría Hermannsdóttir hitti þau Lorri og Eyjólf Kristjánsson á Akureyri um helgina, en þá voru þau hjónin að aðstoða Stebba og Eyfa á páskatónleikaferðalagi þeirra.
Húsnæðismálin eru ofarlega í huga okkar í dag, enda margir í vandræðum hér á landi. Búseturéttur er einn kostur og kannski ekki svo vitlaus, fólk greiðir 20% af verði íbúðar, og síðan mánaðarlega greiðslu, svipað og leigu. En fyrir hvað er greitt og hvernig eignast maður búseturétt. Lísa Pálsdóttir hitti Bjarna Þór Þórólfsson framkvæmdastjóra Búseta.
Umsjón í dag, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson