Leðurblakan

Leðurblakan

By RÚVEducation
Download on the App Store
  • Favorites

    34

    Followers

  • Typical duration

    27 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Leðurblakan episodes

  • 22. Blýgrímurnar
    Í ágúst árið 1966 fundust lík tveggja rafmagnsverkfræðinga í rjóðri efst á hæð nokkurri í grennd við Ríó de Janeiro í Brasilíu. Mennirnir voru báðir klæddir í snyrtileg jakkaföt og regnkápur utan yfir, með undarlegur grímur úr blýi fyrir andlitunun. Engin leið var að segja til um hvers vegna mennirnir hefðu látið lífið - á þeim voru engir áverkar og engin merki um eitrun af neinu tagi, en í jakkavasa annars þeirra fannst miði með dularfullum fyrirmælum.
    2 hr 42 min
  • 21. Axarmorðin í Villisca
    Leðurblakan fjallar um dularfullt morðmál í smábæ í Iowa í Bandaríkjunum árið 1912. Sumarnótt eina braust einhver inn á heimili Moore-fjölskyldunnar í bænum Villisca, og myrti allt heimilisfólkið með exi á hrottalegan hátt. Í gegnum tíðina hafa margir verið grunaðir um glæpinn, allt frá keppinautum fjölskylduföðursins í viðskiptum til grunsamlegra farandpredikara. En nýjustu rannsóknir benda til þess að sannleikurinn í málinu gæti verið langtum verri.
    2 hr 17 min
  • 20. Réttlátu dómararnir
    Leðurblakan fjallar um einn alræmdasta óleysta glæp í sögu Belgíu, og jafnframt í listasögunni.
    Árið 1934 var einni plötu úr altaristöflu Jan Van Eycks í dómkirkjunni í Gent í Belgíu stolið - en altaristaflan er álitin eitt af helstu meistaraverkum evrópskrar málaralistar.
    Þrátt fyrir að belgíska lögreglan hafi rannsakað þjófnaðinn óslitið í átta áratugi hefur stolna platan aldrei fundist og alls ekki öll kurl komin til grafar.
    1 hr 23 min
  • 19. Börnin sem fuðruðu upp
    Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu inn í eldhafið.
    Eftirlifandi fjölskyldumeðlimir urðu þó fljótt handviss um að börnin hefðu ekki farist í brunanum - enda fundust líkamsleifar þeirra aldrei í brunarústunum.
    Þá bentu ýmsir dularfullir atburðir sem fjölskyldan varð vitni að, fyrir og eftir brunann, til þess að kveikt hefði verið í, og börnunum rænt.
    54 min
  • 18. Vitaverðirnir á Flannan eyjum
    Flannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi.
    Þar eru engir mannabústaðir og engin mannvirki að finna fyrir utan það að á einni eyjunni, þeirri stærstu, stendur viti. Í þessum vita gerðist dularfullur atburður í desembermánuði árið 1900.
    Í miklu illviðri slökknaði á vitanum og þrír vitaverðir hurfu sportlaust. Hrifsaði sjórinn mennina til sín - eða gerðist eitthvað ennþá verra á þessum afskekkta stað?
    27 min
  • 17. Týnda borgin í Amazon
    Árið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina Zetu.
    Þessarar borgar er einungis getið í einu gulnuðu handriti frá átjándu öld, en Fawcett var handviss um að hana væri að finna einhverstaðar djúpt inni í regnskógarþykkninu - og varð heltekinn af þeirri tilhugsun um að sjá borgina með eigin augum.
    28 min
  • 16. Líkið í álminum
    Vorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrind ungrar konu, sem var falin inni í holum álmi í útjaðri skógarins.
    Nokkru síðar birtust svo torkennilegt veggjakrot í bæjum í nágrenni skógarins og ljóst einhver vissi meira um líkið í álminum en hann lét uppi. Rannsókn lögreglu stóð í áratugi, og komu þar við sögu nornir, njósnarar og kabarettsöngvarar.
    28 min
  • 15. Dauðsfallið á Suðurskautslandinu
    Það er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu.
    Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar.
    Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið.
    Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni.
    28 min
  • 14. Aleppó handritið
    Eitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem.
    Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna.
    29 min
  • 13. Eitraða konan
    Kvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu á bráðamóttökuna fyrr um kvöldið. Grunur lék á að einhverskonar dularfullar eiturgufur hafi lagt frá konunni, en enginn botn fékkst í málið fyrr en kjarnefnafræðingar voru fengnir til rannsóknar.
    29 min

About Leðurblakan

From the publisher's feed

Leðurblökur eru skuggaleg og skringileg dýr sem hafast við í dimmum hellum og skúmaskotum. Þær eru sjaldséðar hér á landi en slæðast þó hingað af og til. Í Leðurblökunni er fjallað um ýmsar ráðgátur…

More shows like Leðurblakan

Criminal by Vox Media Podcast Network

Criminal

37,534 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Crime Junkie by Audiochuck

Crime Junkie

369,130 Listeners

ILLVERK Podcast by Inga Kristjáns

ILLVERK Podcast

120 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Já OK by Fjölnir Gísla & Vilhelm Neto

Já OK

12 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

73 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

22 Listeners

Short History Of... by NOISER

Short History Of...

2,828 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Harrisons dramatiska historia by Historiska Media | Acast

Harrisons dramatiska historia

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

17 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners