Einar Bjarni Einarsson lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum og stjórnandi Leigjendaaðstoðarinnar ræðir við okkur um þjónustu Leigjendaaðstoðarinnar, réttindi leigjenda og álitaefni sem komið upp í leigusambandi. Við förum yfir réttindi leigjenda eins og þau birtast húsaleigulögunum, algengustu álitaefni sem geta risið á leigutíma og við lok leigusambands.
Við fjöllum líka um hvernig kjör lágtekjuhópa á leigumarkaði hafa þróast á undanförnum árum. Við leitumst við að setja þau í samhengi við þróun á almennu verðlagi og hækkun útborgaðra launa hjá lágtekjuhópum með tilliti til hækkunar á húsaleigu.