Leikfangavélin

Leikfangavélin

Download on the App Store

Leikfangavélin episodes

  • Mark Knopfler & Dire Straits
    Mark Knopfler er einn af betri gítarleikurum heims ásamt því að vera frábær laga og textahöfundur. Hann var frontmaður hinnar mögnuðu hljómsveitar Dire Straits sem hann stofnaði ásamt bróður sínum og fleirum árið 1977, og allt þar til bandið pakkaði saman árið 1995. Saga Mark Knopfler og Dire Straits í þessum þætti Leikfangavélarinnar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 10 min
  • Baldur Ragnarsson
    Hann er atvinnumaður í hlaðvarpsgerð og er sem slíkur m.a helmingurinn af hinum vinsælu Draugum fortíðar. En hann er líka afburða tónlistarmaður og hefur þar komið víða við. T.d Skálmöld, Ljótu hálfvitarnir, Dætrasynir, Innvortis, Morðingjarnir o.fl. Þá er hann einn af stofnendum Leikhópsins Lottu. Baldur Ragnarsson er fæddur á Húsavík og hér förum við yfir hans líf og feril í frábærum og líflegum þætti.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 59 min
  • Rottur, Kettir & Langi Seli
    Gestur þessa þáttar af Leikfangavélinni gefur í raun ekki oft færi á sér í viðtal sem þetta, en hann gaf sig loks eftir rúmlega árs viðreynslu. Hann er vatnsgreiddur með sólgleraugu, í leðurjakka og kragann uppi, enda er hann forsprakki einnar svölustu hljómsveitar sem Ísland hefur alið af sér. Þar erum við að tala um „pönka-billy“ sveitina Langa Sela & Skugganna. Þeir félagar slógu í gegn árið 1988 með laginu „Breiðholtsbúggí“ en árið 1990 kom svo fyrsta breiðskífan þeirra út, hin magnaða plata „Rottur & Kettir“. Hér fer sjálfur Langi Seli (Axel Hallkell) yfir þessa plötu í frábæru spjalli okkar sem teygði svo anga sína mun víðar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 35 min
  • Bein Leið með KK
    KK kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf þegar platan Lucky One kom úr árið 1991. Þessi fyrsta plata hans lagði svo sannarlega grunninn að glæsilegum tónlistarferli hans sem ekki sér fyrir endan á enn þann dag í dag, sem betur fer. Ári síðar, eða 1992 kom svo út platan Bein Leið sem er plata þessa þáttar. KK mætti í stúdíó Leikfangavélarinnar einn morgun í febrúar 2021 og við hlustuðum saman á plötuna, ræddum hana og komum víða við. Sannkölluð gæða stund með KK.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 35 min
  • Ray Manzarek, The Doors & Jim
    Ray Manzarek var arkitektinn að hljómi The Doors. Framúrstefnuleg og dáleiðandi spilamennska hans á hljómborðið þar sem hann blandaði saman rokki, djass, blús, klassík og fjölda annarra stíla var einstök. Þannig varð til einhver ævintýralegur hljómur sem ekki hafði heyrst áður, eitthvað alveg nýtt og töfrandi. Ray kynntist Jim Morrison í kvikmyndanámi í UCLA skólanum og í sameiningu stofnuðu þeir The Doors og í sameiningu lögðu þeir heiminn að fótum sér ásamt þeim John Densemore og Robby Krieger. En með Jim Morrison um borð var þetta ekki allt dans á rósum, síður en svo. Saga The Doors í Leikfangavélinni í síðasta þætti ársins, en með áherslu á hinn einstaka Ray Manzerek.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 32 min
  • Wayne Static X - Metal Saga
    Í miðri þriðju bylgju COVID faraldursins er lítið um gestagang í vélarúmi Leikfangavélarinnar. Þessi þáttur er því „sóló“ þar sem við kynnum okkur Bandarísku sveitina STATIC-X og þá sérstaklega söngvara þeirra, sjálfan Wayne Static. STATIC-X sem sendu frá sér frumburð sinn, hina stórgóðu plötu Wisconsin Death Trip árið 1999 gáfu út sína sjöundu breiðskífu sumarið 2020. Það er meira að segja von á þeirri áttundu líka sem er í raun stórmerkilegt..... „út af dottlu“. Frábært band sem við gerum góð skil ásamt fullt af tónlist í bland. Metall og fyrsta flokks iðnaðarrokk úr Leikfangavélinni í þetta skiptið.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 18 min
  • Bitið fast í vitið með Jakobi Smára Magnússyni
    Bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon á að baki ótrúlegan feril. Eftir að hafa verið meðlimur í böndum eins og Tappa Tíkarrass, Das Kapital, MX-21, Stríð & Friður, Grafík, SSSól, Egó, Reiðmenn vindanna og mun fleirum fékk hann tækifærið sem hann, líkt og flestir aðrir tónlistarmenn, þráði alltaf. Það var þegar John Grant tók hann með á túr þar sem hann spilaði með honum á stórum tónleikum hér og þar um heiminn. En allt byrjaði þetta í raun með Tappa Tíkarrass. Hér hlustum við Jakob saman á frumburð þeirrar sveitar sem ber heitið „Bitið fast í vitið“ frá árinu 1982 og komum víða við á ferli þessa magnaða tónlistarmanns. Bassaskáldið í Leikfangavélinni í þetta skiptið.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 50 min
  • Haraldur F. Gíslason og 25 ára gamalt Drullumall
    Hafnarfjarðarsveitin Botnleðja var stofnuð með það að markmiði að vinna Músíktilraunir árið 1995 sem gekk svo eftir. Að launum fengu þeir nokkra tíma í hljóðveri þar sem þeir tóku upp sína fyrstu skífu, Drullumall. Átján mánuðum síðar voru þeir komnir á tónleikaferð um Bretland ásamt Blur. Halli trommari Botnleðju kíkti í Leikfangavélina og rifjaði upp Drullumallið ásamt öðru frá Botnleðju árunum. Þá kemur Pollapönkið við sögu, Eurovision og reyndar svo margt fleira.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    1 hr 38 min
  • Rúnar Þór og Eyðimerkurhálsar
    Rúnar Þór Pétursson gaf út plötuna Eyðimerkurhálsa til styrktar SÁÁ árið 1988. Hér förum við yfir þessa 10 laga plötu saman lag fyrir lag ásamt því að gera upp líf og feril Rúnars en hann hefur starfað við tónlist allt sitt líf. Skemmtilegt spjall sem fer allt frá því þegar Rúnar sótti Bjarnastaða beljurnar syngjandi 1.12.87 í huganum þá 12 ára, gegnum unglingsárin á Ísafirði, tónlistina, drykkjuna, Bítlana og þar til hann var mættur sjálfur ásamt hljómsveit í Abbey Road hljóðverið.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    2 hr 51 min

About Leikfangavélin

From the publisher's feed

Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og…

More shows like Leikfangavélin

The Hidden History of Los Angeles by Robert Petersen

The Hidden History of Los Angeles

235 Listeners