Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Kristín Eysteinsdóttir, Piff, heppni eða hæfileikar
    Kristín Eysteinsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands, leikstjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri. Lóa Björk fær Kristínu í samtal um framtíð sviðslista.
    Við hringjum á Ísafjörð og forvitnumst um kvikmyndahátíðina PIFF sem fer fram í fimmta sinn í dag.
    Atli Bollason heldur áfram að setja purningamerki við þrá nútímamannsins eftir viðurkenningu og ríkidæmi, í pistlaröð sinni Ekki slá í gegn.
    57 min
  • Taylor veldur vonbrigðum, M Can og götudans-einvígi
    Í síðustu viku kom út nýjasta plata Taylor Swift, Life of a Showgirl. Að venju var mikil eftirvænting eftir nýrri tónlist frá þessari skærustu poppstjörnu samtímans. Viðbrögðin hafa hins vegar ekki verið á einn veg, dómar frekar neikvæðir og sumir Swifties - sem eru þekktir fyrir að standa við bakið á sinni konu í blíðu og stríðu - hafa orðið fyrir vonbrigðum. Nína Hjálmarsdóttir, Swiftie og sviðslistakona, er ein þeirra sem er svekkt með sýningarstúlkuna. Við ræðum við Nínu.
    Rapparinn M Can hefur verið hálfgerður huldumaður í íslenskri rappsenu undanfarin fimm ár, en hann hefur gert tónlist með Birgi Hákoni og Yung Nigo Drippin svo einhverjir séu nefndir. Hann hefur tengingu við Tyrkland, Bretland og Ísland og rappar á ensku. Þórður Ingi Jónsson hitti á M Can og forvitnaðist um ferilinn og fyrstu plötuna hans, Paint a Picture.
    57 min
  • RIFF-rýni, er Metoo búið, lag um Friðrik Margrétar
    Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, lýkur um helgina. Gunnar Theodór Eggertsson rýnir í þrjár myndir: Sorry Baby, White Snail og All That's Left Of You.
    Stundum heyrist að #MeToo-hreyfingin heyri sögunni til, sé orðin úrelt og eigi ekki erindi við nútímann. Er þetta rétt? Á þriðjudag standa þátttakendur í rannsóknarverkefninu Flæðandi siðfræði: Femínísk siðfræði og #MeToo fyrir umræðufundi þar sem þessi mál verða rædd. Við forvitnuðumst um málið.
    Við höldum áfram umræðum sem hófust í síðasta þætti um lagið Elli Egils með Herra Hnetusmjör. Við förum yfir nokkur góð rapplög sem eru nefnd eftir raunverulegum lifandi Íslendingum. Og við frumflytjum nýtt lag sem er nefnt eftir tónskáldinu og poppkrufningarmanni Lestarinnar, Friðriki Margrétar Guðmundssyni. Það er Drengurinn Fengurinn sem samdi lagið og sendi okkur eftir þátt gærdagsins.
    56 min
  • Brjánn, Elli Egils með Herra Hnetusmjöri
    Bankareikingur með tuttugu og sjö og ég er bara tuttugu og sjö syngur Herra Hnetusmjör. Friðrik Margrétar Guðmundsson, poppsérfræðingur og tónskáld, kryfur lagið Elli Egils til mergjar.
    Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi rýnir í nýja þætti sem eru nú í sýningu á streymisveitu Sýnar, þættirnir Brjánn í leikstjórn Sigurjóns Kjartanssonar.
    56 min
  • Bad Bunny á Superbowl, State of the Art, Ekki slá í gegn
    Hvers vegna er það strax orðið umdeilt val að Bad Bunny skuli hafi verið bókaður til að spila í hálfleiknum á Superbowl? Við kynnum okkur þennan Puerto Ríkanska tónlistarmann sem sló fyrst í gegn árið 2016 og hefur síðan orðið einn sá frægasti í heimi, þó hann sé ekki endilega öllum íslendingum kunnugur, en hann rappar einvörðungu á spænsku.
    Magnús Jóhann og Sverrir Páll segja frá State of the Art hátíðinni sem hefst eftir viku. Þar eru ólíkum tónlistarstefnum og tónlistarfólki stefnt saman og list sýnd í óhefðbundnum rýmum. Útkoman er eitthvað alveg nýtt og spennandi.
    Atli Bollason flytur pistil undir yfirskriftinni 'Ekki slá í gegn'.
    55 min
  • Texas Jesús, RIFF, leiðinlegur AI-vinur
    Við rýnum í Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hófst á fimmtudag. Gunnar Theodór Eggertsson, RIFF-rýnir, segir frá þremur myndum sem hann sá um helgina: Mömmusóló, Þríleikur um skipbrot, og Kim Novak's vertigo.
    Texas Jesús er snúin aftur. Þessi keflvíska sveit starfaði frá 1993 til 1996 og hljómar ekki eins og nein önnur hljómsveit: þetta er teiknimyndatónlist úr helvíti, krúttlegur mikki refur á sveppum. Við fáum til okkar tvo meðlimi þessarar költsveitar.
    Og við fylgjumst með gervigreindarbólunni springa smám saman. Lóa segir frá fúski fyrirtækisins Friend.com sem framleiðir óþolandi gervigreindarvin.
    57 min
  • Riff, menningarvefur Morgunblaðsins
    Við flettum í Riff-bæklingnum og förum yfir þær myndir sem við erum spennt að sjá. Kristján heimsækir Morgunblaðið í Hádeigismóum og skoðar nýjasta menningarvef landsins.
    Þau koma svo þrjú til okkar, Harpa Hjartardóttir, Brynjar Leó Hreiðarsson og Bergur Árnason, kvikmyndagerðarfólk ungt og upprennandi sem eru öll að sýna stuttmynd á Riff í ár.
    56 min
  • Jón Atli Jónasson um leikhús, Alien: Earth
    Jón Atli Jónasson er höfundur fjölda leiksýninga en fæst nú aðallega við bóka- og sjónvarpsþáttaskrif. En hvers vegna gerir hann ekki leikrit lengur?
    Brynja Hjálmsdóttir spjallar við okkur um nýja sjónvarpsþætti sem eru með íslandstengingu. Ugla Hauksdóttir leikstýrir nokkrum þáttum af Alien: Earth.
    56 min
  • Intervision, Birnir í höllinni, Ekki slá í gegn!
    Alþjóðlega söngvakeppnin Intervision fór fram um helgina og bar framlag Víetnama sigur úr bítum. Keppnin er andsvar Rússlands við Eurovision, keppni sem á að vera ópólitísk og hampa hefðbundnum fjölskyldugildum. Við kynnum okkur keppnina.
    Við spjöllum um stórtónleika Birnis í Laugardalshöllinni þar sem hljóð, mynd og ljós fóru fullkomlega saman í mögnuðu sjónarspil.
    Í dag hefst ný pistlaröð sem nefnist „Ekki slá í gegn.“ Atli Bollason setur spurningamerki við þrá nútímamannsins eftir viðurkenningu og ríkidæmi, hann veltir því fyrir sér hvernig áhersla á frama hefur áhrif á líðan okkar og sjálfsvirðingu, hann pælir í tilgangi sköpunarinnar, tilburðum markaðarins til að fletja allt út, og hvers vegna vinsældir og gæði fari svo sjaldan saman.
    55 min
  • Vinstri- og hægriöfgamaður ræða saman
    Undanfarið hefur mikið verið rætt um þöggun og skort á samræðu milli fólks með ólíkar skoðanir. Lestin ætlar að bregaðst við ákallinu um aukið samtal.
    Internetið og samfélagsmiðlar eru slæmur vettvangur fyrir pólitískt samtal, en í þætti dagsins mætast augliti til auglitis tvær manneskjur sem hafa gert sig gildandi í umræðum á samfélagsmiðlinum X - og hafa mjög ólíkar pólitískar skoðanir. Fríða Þorkelsdóttir, sem segist vera sósíalisti, og Sverrir Helgason, sem kallar sjálfan sig hægri-öfgamann, setjast saman inn í hljóðver og ræða saman um skoðanir sínar.
    53 min