Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Þaggað niður í Kimmel, ástarstelpan Laufey, Leonard Cohen
    Gísli Marteinn Baldursson ræðir brotthvarf Jimmy Kimmel í kjölfar ummæla hans um morðið á Charlie Kirk. Valur Gunnarsson segir frá Leonard Cohen, en á sunnudag stendur hann fyrir tónleika og sagnakvöldi í Tjarnarbíó sem fjallar um Cohen.
    Friðrik Margrétar Guðmundsson tónlistarspekúlant þáttarins kryfur lagið Lover Girl, af nýútkominni plötu Laufeyjar, A Matter of Time.
    1 hr 1 min
  • The Studio og Rúnar Guðbrandsson um leikhúsið
    Við rýnum í grínþættina The Studio eftir Seth Rogen sem rökuðu til sín verðlaunum á Emmy-sjónvarpsverðlaunahátíðinni í byrjun vikunnar. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi, tekur sér far með Lestinni.
    Lóa fær svo til sín Rúnar Guðbrandsson, sem hefur áratugum saman verið einn afkastamesti leikstjórinn í grasrót íslenskra sviðslista. Þau ræða framtíð leikhússins, jaðarsenuna og hvort það hafi einhvern tímann verið hægt að lifa vel af leiklist.
    56 min
  • Samtal, Eldarnir, gerenda-gervigreind
    Erum við orðin ófær um að eiga í samtali við fólk sem við erum ósammála? Morðið á Charlie Kirk og umtalað Kastljósviðtal í byrjun mánaðarins hafa orðið kveikjan að umræðu um þöggun, rökræður og samfélagslegt samtal. Við ætlum að halda áfram að ræða um samtalið eða skortinn á því. Við spjöllum við Vilhjálm Árnason, prófessor emiritus í heimspeki, sem hefur í gegnum árin velt fyrir sér samtalinu, lýðræðinu og samræðusiðferði.
    Kolbeinn Rastrick flytur rýni um Eldana, nýja íslenska bíómynd í leikstjórn Uglu Hauksdóttur.
    Einar Hugi Böðvarsson ræðir gervigreind og agentíska-gervigreind við okkur.
    58 min
  • Pólitískt morð í beini streymi, Brjánn
    Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur hvað launmorðið á bandaríska áhrifavaldinum Charlie Kirk í síðustu viku og viðbrögðin við því segja okkur um stjórnmálaumræðuna og pólitísk átök á tímum samfélagsmiðla.
    Við kynnum okkur líka nýja íslenska grínþætti um Brján sem er frábær í Football Manager en fær óvænt starf aðallþjálfara Þróttara í meistaraflokki karla. Sigurjón Kjartansson, Sólmundur Hólm, Karen Björg og Halldór Gylfason koma öll að þáttunum. En hugmyndin kviknaði hjá knattspyrnumanninum Erlingi Jack Guðmundssyni fyrir meira en 15 árum síðan.
    55 min
  • Charlie Kirk, Ásta blokkarbarn, Gonster
    Charlie Kirk var íhaldsmaður og aktivisti, stonfandi samtakanna Turning Point sem voru stofnuð í þeim tilgangi að breiða út íhaldsöm gildi í Bandarískum háskólum. Hann var myrtur í háskóla í Utah í Bandaríkjunum í gær og er morðingja hans enn leitað. Kirk var afar vinsæll og náinn bandamaður Trump bandaríkjaforseta. Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaði, hefur fylgst með Kirk undanfarin ár.
    Síðastliðinn föstudag kom út platan Blokkarbarn sem tónlistarkonunni Ástu. Platan er búin að bíða tilbúin í meira en tvö ár, en óttinn við berskjöldun varð til þess að hún beið tilbúin ofan í skúffu í allan þennan tíma.
    Hvað er heilafúi? Hvað er Gonster? Og er Gonster heilafúi? Hanna Sigþrúður Birgisdóttir er háskólanemi og hlaðvarpsstjórnandi Lof mér að tala. Hún hefur smakkað Gonster.
    54 min
  • IceGuys og Þorleifur Örn um leikhúsið
    Þorleifur Örn villist þegar hann heimsækir ný leikhús. Það er vegna þess að þau eru hönnuð í kringum tóm. Þorleifur Örn Arnarsson er einn reynslumesti leikstjóri landsins. Hann hefur leikstýrt víða um Evrópu, aðallega Þýskalandi, verið yfirmaður leikhúsmála hjá Volksbühne í Berlín, og svo sett upp fjölda sýninga á Íslandi, Njálu, Íslandsklukkuna og Engla Alheimsins svo fátt eitt sé nefnt. Við ræðum við hann um leikhúsið og spyrjum í lokin, hvers vegna ætti ungt fólk að stefna á leikstjórn í dag?
    Súkkulaðistrákarnir í strákahljómsveitinni IceGuys hafa gert þrjár sjónvarpsþáttaseríur sem sýndar eru á Sjónvarpi Símans. Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi, fellir dóm um þá þriðju og nýjustu.
    57 min
  • Tölvuleikir í þjóðarmorði, andlát Heklínu, BKPM
    Við kynnum okkur Skjöld Davíðs, nýjan ísraelskan áróðurs-tölvuleik sem gerist á Gaza, og rekjum furðulega langa sögu tölvuleikja sem hafa tekist á við átök Palestínu og Ísraels.
    Hálf-íslenska dragdrottningin Heklína fannst látin við ískyggilegar aðstæður fyrir rúmum tveimur árum. Þóra Tómasdóttir í fréttaskýringaþættinum Þetta helst segir frá.
    Við heyrum svo í fönk-pönksveitinni BKPM sem gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Bíddu ha? Una Schram ræddi við sveitina í sumar.
    55 min
  • Gagnrýni á gagnrýni
    Lestin heldur áfram að taka stöðuna á menningarástandinu í dag og beinum sjónum okkur að gagnrýni. Listgagnrýni hefur verið mikilvægur þáttur í menningarumræðunni svo öldum skiptir. En fjölmiðlalandslagið, umræðuvettvangurinn og menningin öll hefur breyst mikið á 21. öldinni. Internetið og samfélagsmiðlar áttu að lýðræðisvæða menningarumræðuna, en eru kannski að ganga að henni dauðri. Við fáum til okkar þrjá gesti sem hafa allir setið beggja vegna borðsins, verið gagnrýndir og starfað sem gagnrýnendur: Atli Bollason, Auður Jónsdóttir og Magnús Jochum Pálsson.
    56 min
  • Tár niður læri Sabrinu Carpenter
    Við kryfjum lagið Tears með Sabrinu Carpenter til mergjar með poppsérfræðingi Lestarinnar Friðriki Margrétar Guðmundssyni. Textinn er klúr og kaldhæðnisslegur og tónlistin er diskó-leg. En Carpenter öðlaðist sennilega heimsfrægð með laginu Espresso, sem var eitt vinsælasta lag ársins í fyrra. Í dag er það Manchild sem er spilað mikið í útvarpinu, en það er fyrsti singúllinn á glænýrri plötu hennar, Man's Best Friend.
    Þóranna Björnsdóttir er ein þeirra listamanna sem koma fram á Extreme Chill, sem fer fram í 16. sinn núna um helgina. Við ræðum við hana í lok þáttar.
    56 min
  • Baltasar í miðju menningarstríði, harmsaga úr rappheiminum, hinsegin bíó
    King and conquerer nefnast nýir sögulegir drama og spennuþættir frá BBC. Þeir fjalla um valdabaráttu í Bretlandi á 11.öld - átök sem enduðu með orrustinni við Hastings árið 1066. James Norton og Nikolaj Coster-Waldau leika þá Harald Guðnason og Vilhjálm sigursæla, en mikill fjöldi Íslendinga kemur að þáttunum, bæði sem leikarar og fólk í ýmsum stórum hlutverkum bakvið tjöldin. Þættirnir hafa fengið misjafnar viðtökur og meðal annars hefur verið rifist um það hvernig fólk talaði árið 1066, hvernig hártískan var á sögutímanum og það hvort leikaravalið sé of fjölbreytt. Við spjöllum við Baltasar Kormák, listrænan stjórnanda þáttanna, um þessar spurningar og aðrar.
    Við fáum innslag af ysta jaðri tónlistarheimsins. Þórður Ingi Jónsson rekur harmsögu rapparans unga Lil EBG og læriföður hans Glock40spaz.
    Við kíkjum líka í Bíó Paradís og heyrum um íslensku hinsegin kvikmyndahátíðina sem hefst á morgun.
    55 min