Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Hvað eiga konur að vera að gera? Phoenician Scheme, einsleikahugmyndin
    Við heimsækjum Unu Þorleifsdóttur og Ebbu Katrínu Finnsdóttur í Gryfjuna í Ásmundarsal þar sem þær hafa verið að rannsaka með aðferðum sviðslistinna bókina Konur sem kjósa - aldarsaga. Kolbeinn Rastrick rýnir í nýjustu mynd Wes Anderson, Pheonician Scheme. Snorri Páll Jónsson flytur pistil um ógnina í einsleikahugmyndinni.
    56 min
  • Snæbjörn í Tjarnarbíó og sviðslistir, bréf til frænku
    Helga Dögg Ólafsdóttir og Salka Snæbrá Hrannarsdóttir binda endi á vikuleg bréfaskrif sín í Lestinni, enda er að koma sumar og komið að kveðjustund.
    Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri Tjarnarbíós, veltir fyrir sér framtíð sviðslista, styrkleika senunnar hér og hlutverk leikhússins.
    55 min
  • Kisutangó
    Kattholt er fullt og á föstudaginn birtu þau færslu á Facebook og óskuðu eftir kattamat. Viðbrögðin leyndu sér ekki, enda elska margir ketti. Við heimsækjum Kattholt og fáum leiðsögn um húsið, sem hefur verið í starfseminni síðan 1991.
    Svo hlustum við á tónlist sem samin er fyrir kisur og förum á vorsýningu Kynjakatta í Officeraklúbbnum í Reykjanesbæ.
    57 min
  • Dyrnar með Birni, vald og tungumál, Blæja
    Rapparinn Birnir ræðir Dyrnar, nýja plötu sem kom út í lok maí. Plötuna vinnur hann með pródúsentinum Marteini Hjartarsyni, Bngerboy.
    Anna Marsibil Clausen segir frá Blæju og Snorri Páll Jónsson fjallar um tengsl valds og tungumáls.
    55 min
  • Gróa droppar pé-inu, 120 dagar í Sódómu
    Það hefur ótalmargt gerst frá stofnun hljómsveitarinnar Gróu, sem steig á svið í Músíktilraunum árið 2017. Fjórar plötur hafa komið út, smáskrífur, tónlistarmyndbönd, gigg spiluð innan landsteina og utan, skólastig kláruð og nýr meðlimur bæst við. Nýjasta platan Drop P, kom út 6. júní síðastliðin.
    Einar Hugi Böðvarsson talar um bókina og bíómyndina Saló, 120 dagar í Sódómu.
    56 min
  • Gervigreind vitnar í Lomma, New Lodge í Belfast, bréf til frænku
    Í ræðu til útskriftarnema í tíunda bekki taldi skólastjóri í Grunnskóla Reyðafjarðar sig vera að vísa í ljóð eftir skáldið Jón Örn Loðmfjörð, eða Lomma eins og hann er kallaður og sagði: “Það sem við gerum í dag, byggir heiminn á morgun. Látum því góðmennsku og kraft vera okkar leiðarljós.” Tilvitnunin reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar og raunar mjög ólíkur því sem Lommi er þekktur fyrir að skrifa. Þetta er þó viðeigandi á einhvern öfugsnúinn hátt því Lommi er frumkvöðull í að nota forritun og ljóðavélar á skapandi hátt í framúrstefnuljóðlist. Við ræðum við Jón Örn Loðmfjörð um ljóð og vélar.
    Alessandra Celesi var heiðursgestur á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði. Eftir hana voru sýndar tvær heimildarmyndir sem gerast með nokkura ára millibili í hverfinu New Lodge í Belfast. Þar er margt sem minnir á fortíðina, The Troubles. Áföllin sitja enn í mörgum íbúanna, þó margt hafi gleymst og borgin hafi breyst. En hvers vegna gerir ítölsk sviðslistakona heimildarmyndir á Norður-Írlandi?
    Frænkurnar Helga Dögg Ólafsdóttir og Salka Snæbrá Hrannarsdóttir halda áfram að skrifast á í Lestinni.
    56 min
  • Dyrnar, spilakassarekstur Háskóla Íslands, Mountainhead
    Snorri Páll Jónsson flytur pistil um spilakassarekstur Háskóla Íslands. Davíð Roach rýnir í nýja plötu rapparans Birnis og André 3000. Við pælum í nýju verki úr smiðju Succession-höfundarins, Jesse Armstrong. Kvikmyndin Mountainhead kom út á dögunum og hefur fengið allskonar viðbrögð. Svo rifjum við upp samtal Gunnars Þórðarsonar og Eiríks Guðmundssonar frá árinu 2016 þegar Brian Wilson, heitinn, kom til landsins.
    54 min
  • Hvalreki, Playlistar, menningarauðmagn Höllu Tómasdóttur
    Háhyrningur strandaði við Grafarvog í gærkvöldi og viðbragðsaðilar voru fljótlega komnir á staðinn. Þangað mætti líka Lóa Björk og fylgdist með björgunaraðgerðunum. Hún segir frá í Lest dagsins.
    Við veltum því líka fyrir okkur hvernig fólk uppgötvar nýja og ferska tónlist í dag, hvort að spilunarlistar á tónlistarveitum - bæði opinberir og heimagerðir - séu orðnir að helsta vettvangi uppgötvunar. Við ræðum við nokkra eldheita tónlistarunnendur um playlista.
    Af hverju var gert grín að listaverkasmekk forseta Íslands í Áramótaskaupinu? Einar Hugi Böðvarsson veltir fyrir sér umræðum um Höllu Tómasdóttur út frá kenningum félagsfræðingsins Pierre Bourdieu.
    58 min
  • Flókið feðginasamband á Skjaldborg, Sly Stone, íslenskt rokk í Berlín
    Jóna Gréta Hilmarsdóttir ákvað að gera heimildarmynd um pabba sinn, en það reyndist vera flókið. Við spjöllum við Jónu um flókið feðginasamband og þráhyggjuna sem eru stef í myndinni Ósigraður sem var sýnd á Skjaldborg um helgina og hlaut dómnefndarverðlaun í flokki stuttmynda.
    Fönkfrumkvöðullinn og hipparokkstjarnarn Sly Stone er látinn 82 ára að aldri. Við ræðum við Samúel Jón Samúelsson, Samma, um kappann.
    Og við förum á tónleikaferð til Berlínar með tveimur íslenskum rokksveitum, Supersport og Space Station. Katrín Helga Ólafsdóttir segir frá.
    58 min