Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Konungssinnar í Kísildal #10 - Sæðisgjafinn Elon Musk
    Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14?
    Efni sem var notað við gerð þáttarins:
    Ævisagan Elon Musk eftir Walter Isaacson (2023)
    Viðtöl við Elon Musk og fleira:
    Elon Musk: War, AI, Aliens, Politics, Physics, Video Games, and Humanity | Lex Fridman Podcast #400
    https://www.youtube.com/watch?v=JN3KPFbWCy8
    Elon Musk at Qatar Economic Forum
    https://www.youtube.com/watch?v=76nZJbiSTqQ
    Joe Rogan Experience #2281 - Elon Musk
    https://www.youtube.com/watch?v=sSOxPJD-VNo
    Elon Musk delivers SpaceX update on Starship, Mars goals and more at Starbase
    https://www.youtube.com/watch?v=0nMfW7T3rx4
    Í ljósi sögunnar:
    Ættir og ævi Elon Musk
    https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sch
    Elon Musk í Norður-Ameríku
    https://www.ruv.is/utvarp/spila/i-ljosi-sogunnar/23795/b78sci
    Annað efni:
    We Went To The Town Elon Musk Took Hostage
    https://www.youtube.com/watch?v=5cZEZoa8rW0
    The Tactics Elon Musk Uses to Manage His ‘Legion’ of Babies—and Their Mothers
    https://www.wsj.com/politics/elon-musk-children-mothers-ashley-st-clair-grimes-dc7ba05c
    On the Campaign Trail, Elon Musk Juggled Drugs and Family Drama
    https://www.nytimes.com/2025/05/30/us/elon-musk-drugs-children-trump.html
    Longtermism:
    https://www.williammacaskill.com/longtermism
    Áhrifarík umhyggja - umfjöllun í Lestinni
    https://www.ruv.is/utvarp/spila/lestin/23619/b72p37/georg-ludviksson-um-effective-altruism
    54 min
  • Besta bíómynd ársins, Sátan í Stykkishólmi, Audible, annað bréf til frænku
    Útlendingar halda oft að þungarokkshátíðin Sátan í Stykkishólmi heiti eftir myrkrahöfðingjanum sjálfur. En Sátan er líka fjall í nágrenni bæjarins. Degi áður en hátíðin hefst í annað sinn hringjm við vestur og ræðum við Gísla Sigmundsson sem skipuleggur hátíðina ásamt konu sinni og dóttur og góðum vinahópi. Hann spilar á hátíðinni ásamt hljómsveit sinni Sororicide, en þetta eru allra síðustu tónleikar þeirrar goðsagnakenndu dauðarokksveitar.
    Við höldum áfram að fylgjast með bréfaskriftum frænkanna Helgu Daggar Ólafsdóttur og Sölku Snæbrár Hrannarsdóttur. Í öðru bréfinu ræða þær meðal annars covid-tímann, mennskuna og nostalgíu.
    Kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, Kolbeinn Rastrick, segir frá bestu mynd sem hann hefur séð á árinu.
    Og Kristján vill segja upp áskriftinni sinni að hljóðbókaveitunni Audible, en getur það ekki, sama hvað hann reynir.
    54 min
  • Reservatet, Space Odyssey, orð yfir ólýsanlegan hrylling, Páll Skúla
    Við heimsækjum plötubúðin, fatabúðina og tónleikarýmið Space Odyssey í Bergstaðastræti. Þar hittum við Pan Thorarensen sem situr bakvið búðarborðið og ráðleggur fólki hvaða sveimtónlist það á að hlusta á hverju sinni. Hann er líka að skipuleggja fjórfalda útgáfutónleika sem fara fram í Iðnó á fimmtudag.
    Snorri Páll Jónsson flytur pistil um orðin sem eru notuð til að lýsa hinu ólýsanlega: stríð, mannúðarkrísa, þjóðarmorð eða helför.
    Dularfullt hvarf Au Pair-barnfóstru hjá ríkri fjölskyldu í Danmörku kemur af stað spennandi atburðarás í Netflix-þáttunum Reservatet - sem nefnist Secrets We Keep á ensku. Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
    Svo heyrum við brot úr gömlu viðtali við Pál Skúlason heimspeking.
    56 min
  • Fríd fer hærra
    Við hittum tónlistarkonuna Fríd, sem er listamannsnafn Sigfríðar Rutar Gyrðisdóttur. Hún hefur alltaf sungið en í Lýðháskóla í Danmörku komst hún að því að hún elskaði líka að semja tónlist. Í maí gaf hún út stuttskífuna Hærra.
    Svo heyrum við viðtal frá því í desember, Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi.
    56 min
  • Grok vill tala um þjóðarmorð, skrímslamjólk SiGRÚNar, bréf til frænku
    Undir lok síðasta árs kom út platan Monster Milk, sem er fyrsta breiðskífa tónlistarkonunnar Sigrúnar Jónsdóttur, sem á sviðinu kallar sig einfaldlega SiGRÚN. Sigrún er þó alls enginn nýliði heldur hefur gefið út fimm stuttskífur undir eigin nafni undanfarinn áratug, en hún hefur einnig unnið sem hljóðfæraleikari, söngvari og pródúser, og spilað undir með Sigur Rós, Björk og Florence and the machine svo einhverjir séu nefndir. Monster Milk fékk Grammy-verðlaun íslensku grasrótarinnar, Kraumsverðlaunin, og í kvöld fagnar Sigrún plötunni með útgáfutónleikum í Iðnó. Við ræðum við Sigrúnu í Lest dagsins.
    Einar Hugi Böðvarsson flytur okkur sinn fyrsta pistil í Lestinni. Meðal þess sem kemur við sögu er spjallmennið Grok sem vill aðeins tala um þjóðarmorð á hvítum í Suður Afríku, gervigreindarsmíðaðar bækur á Amazon og lítill vængbrotinn þrastarungi.
    Næstu vikur ætlum við að fylgjast með bréfaskriftum frænkanna Helgu Daggar Ólafsdóttur og Sölku Snæbrár Hrannarsdóttur. Í fyrsta bréfinu ræða þær meðal annars bréfaskriftir og valdaleysið sem þær upplifa varðandi hryllinginn á Gaza.
    56 min
  • Skjaldborg, vinur okkar Vematsu
    Það styttist í Skjaldborgarhátíðina sem er haldin ár hvert á Patreksfirði. Góðvinur hátíðarinnar og Lestarinnar, Ásgeir H. Ingólfsson, sem féll frá í janúar, verður heiðraður á hátíðinni. Heimildamyndin Menningarsmygl sem fjallar um Ásgeir verður líka sýnd, en hún er í vinnslu. Ragnar Ísleifur Bragason og Kristín Andrea Þórðardóttir hita upp fyrir Skjaldborg.
    Við rifjum upp Vematsu, mann sem býr í Japan en á þó nokkuð marga vini á Íslandi sem hann kynntist á Twitter fyrir að verða áratug síðan.
    56 min
  • Konungssinnar í Kísildal #9 - Guðfræðingurinn J.D. Vance
    Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hlaut Vance inngöngu í laganám hins virta Yale-skóla. Þar kynntist hann örlagavaldi í sínu lífi, fjárfestinum Peter Thiel. Vance á marga vini í Kísildalnum og það mætti segja að hann tengi saman tæknigeirann og þjóðernispopúlistana sem fylkja sér á bak við Trump.
    58 min
  • Metnaðarfull skólahljómsveit og forn-grísk heimspeki
    Árið 2005 kom út fyrsta platan með hljómsveit Benna Hemm Hemm, 12 laga plata samnefnd tónlistarmanninum. Síðan þá eru liðin 20 ár og Benni kennir nú tónlist í Hagaskóla, og Ingi Garðar Erlendsson, básúnuleikari í hljómsveitinni, stýrir þar skólahljómsveitinni, Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar, SVoM. Á laugardag ætla SVoM og benni að leiða saman hesta sína og leika plötuna í heild sinni á tónleikum í Háskólabíó. Mér lék forvitni á að vita hvernig indí-fólk krútttónlist fyrsta áratugarins færi ofan í unglinga dagsins í dag og kíkti niður í Hagaskóla.
    Alkibíades var einhver alræmdasti stjórnmálamaður Grikklands til forna, einstaklega fagur, hrífandi og vel að máli farinn. Hann leiddi Aþenu út í tilgangslaust stríð og endaði á því að gera út af við lýðræðið í borgríkinu. Fyrir jól kom út íslensk þýðing á samræðunni Alkibíades eftir Platón, en þar segir frá fundi heimspekingsins Sókratesar og stjórnmálamannsins unga. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, bókmenntafræðing, þýðanda og bókaútgefanda.
    56 min
  • Odee og Samherji, útrýming eldhússins, A Different Man
    Við ræðum við listamanninn Odee Friðriksson, um námið í Bergen og Samherja-gjörninginn. Mál Samherja gegn listamanninnum hefur nú staðið yfir í um tvö ár. Ástæða málsóknarinnar er lokaverkefni Odee úr Listaháskóla Íslands, þar sem hann þóttist vera Samherji og baðst afsökunar.
    Við hlýðum svo á pistla, Kolbeinn Rastrick færir okkur kvikmyndagagnrýni um myndina A Different Man og Guðrún Úlfarsdóttir syrgir eldhúsið.
    54 min
  • Menningarleg uppreisn Dogma 25, Millileikur Sally Rooney
    Fimm skandinavískir kvikmyndagerðarmenn kváðu sér hljóðs á kvikmyndahátíðinni í Cannes á dögunum og kynntu nýtt manifesto sitt, Dogma 25. Þetta er nákvæmlega þremur áratugum eftir að Lars Von Trier og Thomas Vinterberg hristu upp í kvikmyndaheiminum með Dogma 95 stefnuyfirlýsingunni. Dogma 25 er björgunleiðangur og menningarleg uppreisn segja þau og setja sér 10 skýrar reglur um hvernig bíó þau ætla að búa til - meðal annars ætla þau ekki að nota internetið og handskrifa handritin sín.
    Í mars kom út í íslenskri þýðingu fjórða skáldsaga Sally Rooney, Intermezzo eða Millileikur. Lóa fær til sín annan aðdáanda írska rithöfundarins, Ingunni Snædal, til að ræða þemun sem koma fyrir í bókinni: sorgina, trúnna, skákina og samböndin.
    57 min