Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Eden, The Pharcyde, Theroux og landtökufólkið
    Í verkinu Eden kafa Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Nína Hjálmarsdóttir ofan í sköpunarsöguna og taka sér pláss í sjálfum aldingarðinum upprunalega. Eden er hinsegin fötlunarparadís sem afmiðjar norm samfélagsins og leyfir áhorfendum að finna fyrir hinu erótíska innra með sér. Lóa spjallar við sviðslistakonurnar.
    Við kynnum okkur The Settlers nýja heimildarmynd Louis Theroux um ísraelskar landtökubyggðir á Vesturbakkanum í Palestínu. Theroux fjallaði um samfélög landtökufólks í heimildaþætti fyrir 15 árum síðan en nú heimsækir hann þau aftur og skoðar hvernig málin hafa þróast.
    Hin goðsagnakennda rappsveit The Pharcyde kemur fram á tónleikum í Reykjavík í næsta mánuði. Tónleikaferðin er haldin til að fagna 30 ára afmæli plötunnar Labcabincalifornia. Davíð Roach segir frá sveitinni.
    55 min
  • YouTube 20 ára, vinsælasta teiknimynd allra tíma, göldróttir víkingar
    Við gröfum í kistu Ríkisútvarpsins eftir efni sem fjallar um YouTube, sem fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir. Hugmynd sem kviknaði hjá þremur fyrrum starfsmönnum PayPal átti að gjörbylta stefnumótasíðum. En það gekk illa að fá stelpur til þess að hlaða upp myndböndum af sér, þó greiðslu væri lofað. Í staðinn fengum við YouTube. Og YouTube breytti heiminum.
    Rimmugýgur heldur utan um Víkingaþorp á Galdrafári, lista- menningar- og fræðahátíð á Hólmavík á Ströndum sem er haldin í annað sinn næstu helgi. En Rimmugýgur er áhugamannafélag um menningu, bardaga- og handverkshefðir víkínga. Una Schram ræðir við Jökul Tandra sem fer fyrir hópnum.
    Vinsælasta teiknimynd allra tíma er ekki Frozen, ekki Lion King, ekki Shrek og ekki Inside Out 2. Heldur er það Ne Zha 2, kínversk tölvuteiknimynd sem er að slá öll met þessa dagana. Myndin sem byggir á kínverskri goðsögu um djöfladrenginn Nezha er orðin að þjóðarstolti. Hongling Song, kennari, þýðandi, og samfélagsmiðlastjarna, segir frá myndinni.
    56 min
  • Addison Rae í Iceland, Bjöggi fer í Straff
    Björgúlfur Jes Einarsson úr hljómsveitinni Spacestation átti viðburðarríkan marsmánuð. Hljómsveitin vann lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, gáfu út plötuna RVK Syndrome og spiluðu á tónleikum erlendis. Og næsta skref hjá Björgúlfi eða Bjögga, er að gefa út fyrstu smáskífu nýs sólóverkefnis sem ber heitið Straff. Við frumflytjum svo lag sem kemur út á föstudaginn.
    Hver er Addison Rae? Og hvað er hún að gera í Iceland-versluninni í Vesturbergi í Breiðholti? Eitt sinn TikTok-stjarna en nú að vinna með Arca, A.G. Cook og Charli xcx, kemst hún upp með að skipta um starfsvettvang og fagurfræði og vinahóp?
    57 min
  • Páfinn í bíó, deilur í færeyskum tónlistarheimi, Hvar er Jón?
    Frans páfi, æðsti trúarleiðtogi kaþólsku kirkjunnar, er látinn 88 ára að aldri. Samkvæmt hefðinni verður nýr páfi valinn í leynilegu páfakjöri sem hefst 15 dögum eftir andlátið. Kristján og Lóa ræða tvær nýlegar bíómyndir sem fjalla um páfa og páfakjör, Two Popes og Conclave.
    Í byrjun árs fóru í loftið útvarpsþættirnir Hvar er Jón? sem er samstarfsverkefni RÚV og írska ríkisútvarpsins RTÉ. Þættirnir fjalla um sporlaust hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dublin árið 2019. Jón Þröstur var kominn til borgarinnar til að spila póker en ætlaði svo að ferðast með konu sinni. En snemma morguns þann 9. febrúar 2019 gekk hann út af hótelinu og ekkert hefur heyrst frá honum síðan. Írskir og íslenskir blaðamenn tóku saman höndum til að rannsaka málið og grófu upp ýmsar nýjar vísbendingar. Þættirnir átta - sem voru bæði aðgengilegir á íslensku og ensku - vöktu mikla athygli og hafa fengið um eina og hálfa milljón spilana. Úlfur Eldjárn samdi tónlistina fyrir þættina, og í síðustu viku kom tónlistin út á streymisveitum.
    Færeyskur tónlistarheimur logar þessa dagana. Átökin snúast um rýmið sem ungar tónlistarkonur vilja fá og hafa tekið sér. Katrín Helga Ólafsdóttir ræðir við færeysku tónlistarkonuna Maríönnu Nagata, en samfélagsmiðlafærsla hennar hratt af stað umræðunni.
    56 min
  • Anna María Tómasdóttir, LucasJoshua, Salóme Katrín á Aldrei
    Anna María Tómasdóttir leikstjóri vill hafa húmor í leikhúsi. Það er ekki nauðsynlegt að vera í hláturskasti allan tímann, en það verður að vera eitthvað fyndið. Hún vill sjá fleiri íslensk leikrit, því þau eru það besta, og henni þætti einnig sniðugt ef Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið myndu stilla saman strengi sína. En fyrst og fremst vantar hér leiksvið.
    LucasJoshua er 17 ára gamall raftónlistarmaður. Hann hlaut verðlaunin Rafheili Músíktilrauna í ár. Þórður Ingi Jónsson sló á þráðinn til hans.
    Salóme Katrín Magnúsdóttir er í bíl á leiðinni vestur og í dag kom út lagið hennar Always and forever. Una Schram spjallar við Salóme um Aldrei fór ég suður, sem fer fram um páskana á Ísafirði.
    56 min
  • Merkantílismi, stórtónleikasumarið, drama í breskri sálartónlist
    Undanfarna mánuði hafa hrúgast í innhólfið mitt tilkynningar um þekkta erlenda tónlistarmenn sem ætla sér að leika á tónleikum á Íslandi í sumar. Þessar hljómsveitir eru þó flestar komnar af léttasta skeiði, og markhópurinn kannski líka. Við ætlum að kynna okkur hvaða stóru erlendu listamenn eru að spila á Íslandi í sumar og reikna út meðalaldur markhópsins.
    Við ætlum líka að kynna okkur drama í bresku tónlistarlífi, deilur rapparans Little Simz og samstarfsmanns hennar InFlo. Þau hafa unnið saman að einhverri mest spennandi tónlist undanfarinna ára í bretlandi, framsækinni rapptónlist og svo pólitískri nýsálartónlist í verkefninu Sault. En nú virðist vinskapurinn kominn á endastöð. Una Schram segir frá.
    Og svo ætlum við að velta fyrir okkur hagstjórnarstefna úr sögubókunum, Merkantílismi, sem sumir segja að sé snúin aftur með Donald Trump.
    55 min
  • Konungsinnar í Kísildal #8 - Þeir ætla að lifa að eilífu
    Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla að lifa að eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-húmanisma við MAHA-hreyfinguna svokölluðu, Make America Healthy Again.
    52 min
  • White Lotus, hugleiðingar hirðfífls, hönnun um hagvöxt, Jóhanna af Örk
    Nú um helgina fór í loftið síðasti þátturinn í þriðju þáttaröð White Lotus, hinna vinsælu þátta sem gerast á lúxusdvalarstöðum víða um heim sem eru þó allir hluti af hótelkeðju Hvíta Lótussins. Brynja Hjálmsdóttir gagnrýnandi Lestarinnar saknar Tanyu McQuoid úr seríunni.
    Við ætlum líka að heimsækja Gallerí Port þar sem nú stendur yfir sýningin Hagvextir og saga þjóðar. Fjórir einstaklingar sem vinna á mörkum hönnunar og listar koma þar saman og fást við töluleg gögn, gröf og hagfræðilegar stærðir. Við hittum Búa Bjarmar Aðalsteinsson forsprakka hópsins.
    Högni Egilsson segir frá upplifun sinni af því að koma fram á ráðstefna Karls Bretakonungs um loftslagsmál sem fór fram í Hampton Court höllinni í síðasta mánuði, Sustainable Markets Initiative. Högni kom þar fram ásamt Andra Snæ Magnasyni, og hefur reynslan og mótsagnirnar setið í honum: loftslagsmál og kapítalismi, viðskipti og menning. Högni flytur hugleiðingar hirðfífls.
    Og svo ætlum við að fræðast um Píslarsögu Jóhönnu af Örk - klassíska kvikmynd danans Carls Theodors Dreyers frá 1928, sem verður sýnd á Bíótekinu nú um helgina.
    55 min
  • Kolfreyja Sól er Alaska1867, Rauða serían kvödd
    Í febrúar kom út spennandi plata með tónlistarkonunni Alaska1867. Kolfreyja Sól byrjaði að gera tónlist undir teppi úti í bíl með vinkonum sínum þegar hún var 18 ára. Það er mikið að gera hjá Alaska, fleiri lög á leiðinni og senan hefur tekið vel á móti henni, enda kemur hún sem ferskur andblær inn í íslenskt rapp.
    Árið 2023 hætti Rauða serían að koma út eftir 38 ára langa sögu. Við heimsóttum konuna sem stendur að baki útgáfunni, sem hefur svo sannarlega sett sitt mark á íslenska bókaútgáfu, Rósa Vestfjörð hefur margar sögur að segja.
    57 min
  • Geðbrigði sigra Músíktilraunir, Hönnunarmars, Stockfish
    Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram um helgina en þá léku tíu hljómsveitir í Hörpu. Það var drungapönksveitin Geðbrigði sem bar sigur úr býtum. Við ræðum við Agnesi Ósk og Ásthildi Emmu úr hljómsveitinni.
    Við fáum seinni pistilinn um Hönnunarmars frá Unu Maríu Magnúsdóttur. Sjálfbærniþvaður, djúpblá þörungamálning, og persónulegur absúrdismi í gervigreindarmyndum er meðal þess sem kemur við sögu í pistlinum.
    Við hringjum svo niður í Bíó Paradís, sem var nýlega valið eitt svalasta kvikmyndahús heims af bíómiðlinum Variety. Þar er Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri bransa- og kvikmyndahátíðarinnar Stockfish. Hún segir okkur frá því helsta sem er að gerast á hátíðinni í ár.
    57 min