Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Persepólis, Luigi Mangione, þjóð er bókaklúbbur
    Hinn 26 ára Luigi Mangione var handtekinn í Pennsylvaniu í fyrradag og sakaður um kaldrifjað morð á forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna í síðustu viku. Allt frá því að morðið átti sér stað hefur honum verið hampað sem hálfgerðri alþýðuhetju á internetinu, og ekki minnkaði aðdáunin eftir að myndir af honum fóru í dreifingu. Kristján og Lóa ræða aftengingu á samfélagsmiðlum, meme, fallega glæpamenn og djúpstæða reiði bandarísku þjóðarinnar.
    Persepólis er einhver þekktasta myndasaga síðari ára. Þetta er uppvaxtarsaga íranska höfundarins Marjane Satrapi þar sem spaugilegar hversdagssenur í lífi höfundar og harmleikur þjóðar fléttast listilega saman. Lóa ræðir um írönsku byltinguna, klerkastjórnina og Persepólis við Kjartan Orra Þórsson, Íransfræðing.
    "Ef hér er eitthvað til sem heitir þjóð þá er hún kannski eins konar bókaklúbbur, fólk sem les, ræðir lesefnið, kemst að sameiginlegum skilningi og snýr sér þá að næstu bók." Þetta segir Haukur Már Helgason meðal annars í síðasta pistli sínum um upplýsingaóreiðu í Lestinni þetta haustið.
    55 min
  • Intermezzo eftir Sally Rooney, rýni í Wicked
    Kolbeinn Rastrick fór á Wicked í bíó og kemur færandi hendi með kvikmyndarýni. Poppstjarnan Ariana Grande leikur góðu nornina Glindu og Cynthia Erivo fer með hlutverk Elphöbu. Leikstjórn er í höndum Jon M. Chu, sem er líklega þekktastur fyrir kvikmyndina Crazy Rich Asians.
    Í september kom út fjórða skáldsaga Sally Rooney, Intermezzo. Ingunn Snædal, sem hefur þýtt bókina Fagri heimur hvar ert þú, sem kom út þar á undan. Við skoðum nokkur þeirra þema sem koma fyrir í bókinni, sorgina, trúnna, skákina og samböndin.
    55 min
  • Íslensk útvarpskona í Ameríku, hjólabrettaskál í Kópavogi
    Við ræðum við Andreu Kristinsdóttur sem er tónlistarkona, útvarpsgerðarkona, og tæknimaður í daglega fréttaþættinum Today, explained frá Vox Media. Hljóð hafa átt hug Andreu allan frá æsku, hún ólst upp á flakki, bjó um tíma í Japan, Pakistan, Zimbabwe og Bandaríkjunum svo eitthvað sé nefnt, en alls staðar hlustaði hún eftir nýrri tónlist og hljóðum.
    Það er loksins komin skál í Kópavog! Una Schram hittir skeiterinn Sigfinn Böðvarsson, eða Siffa. Tilefnið er ný skál, eða bowl, í Kópavogi sem stórbætir aðstöðuna til hjólabrettaiðkunnar á Íslandi.
    59 min
  • Femínismi á tímum Valkyrjustjórnar
    Þessa dagana funda formenn þriggja stjórnmálaflokka og freista þess að mynda nýja ríkisstjórn. Þessi sögulega stjórn hefur verið kölluð valkyrjustjórnin enda eru þetta allt konur, Kristrún Frostadóttir frá Samfylkingu, Þorgerður Katrín frá Viðreisn og Inga Sæland frá Flokki Fólksins, og munu þær líklega skipta með sér valdamestu embættum ríkisstjórnarinnar á næstu árum.
    En það verða ekki bara forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem verða að öllum líkindum konur næstu árin heldur er nú þegar kona í embætti forseta Íslands, kona er biskup þjóðkirkjunnar, kona er ríkislögreglustjóri og konur skipa æðstu embætti í mörgum af menningarstofnunum þjóðarinnar.
    Spurningin sem við ætlum að velta upp í dag, er hvort að kynjajafnrétti sé endanlega náð á Íslandi, eru einhver verkefni eftir fyrir femínismann, er Ísland að stefna í átt að mæðraveldi? Hvernig lítur femínismi út á tímum valkyrjustjórnarinnar?
    Gestir okkar eru Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur og fyrrum þingkona Kvennalistans svo eitthvað sé nefnt, Brynhildur Karlsdóttir, tónlistarkona, og Alma Dóra Ríkharðsdóttir, viðskiptafræðingur og stofnandi smáforritsins Heima.
    57 min
  • Uppruni O.K. og tónlist eftir veðri
    Við hittum veðurfræðing úti í góða veðrinu, eða ágæta veðrinu. Hún heitir Katrín Agla og hún leikur sér að því að finna plötur sem passa við veðrið þegar hún er á vakt á Veðurstofunni.
    Ókei, okay, ok, O.K. ókídókí, allt í kei. Ókei hefur verið hluti af íslenskri tungu í einhver 90 ár. Þetta slangur úr ensku á sér dularfullan og óljósan uppruna. Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, hefur í hálfa öld grafið upp ótal kenningar um uppruna þessa þekktasta orðatiltækis í heimi. Við heyrum í Sigurði og veltum fyrir okkur hvaðan ókei kemur.
    56 min
  • Nýja platan frá Kendrick, Kneecap knésetja breska ríkið
    Það er bara rapp í Lestinni í dag, Norður-Írskt og Norður-Amerískt rapp.
    Nýjasta plata Kendricks Lamar, GNX, mætti óvænt á streymisveitur 22. nóvember síðastliðinn. Lög af plötunni hafa raðað sér á topp vinsældalista en viðtökurnar eru þó blendnar. Pitchfork gaf plötunni meðal annars lægstu einkunn sem nokkur plata frá K.Dot hefur fengið frá miðlinum. Við kíkjum á Prikið og rýnum í gripinn með Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams.
    Við kynnumst írsku rappsveitinni Kneecap, sem unnu fyrir helgi mál gegn breska ráðherranum fyrrverandi, Kemi Badenoch, sem hafði reynt að stöðva styrkveitingu til þeirra. Ástæðan sem var gefin upp var sú að þeir hefðu óheppilegar pólitískar skoðanir, nánar tiltekið, styðja þeir sameinað Írland.
    55 min
  • Tapaði vinstrið kosningunum?
    Hvað þýða niðurstöður Alþingiskosninganna fyrir vinstrið? Samfylkingin fékk flest sæti á Alþingi en 9,2% atkvæða sem fóru til flokka sem teljast til vinstri urðu að engu vegna 5% reglunnar. Eiga vinstrimenn fulltrúa á Alþingi? Við veltum fyrir okkur spurningunni: vann vinstrið eða tapaði það? í þætti dagsins. Viðmælendur eru Elísabet Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Pírata og tölvunafræðingur, og Ævar Kjartansson, útvarpsmaður og frambjóðandi Sósíalista.
    54 min
  • xTwitch, hvað sameinar þjóðina? Rýnt í Hygge og Eftirleiki
    Íslenskir stjórnmálamenn eru mættir á Twitch, Kristrún Frostadóttir spilaði skotleikinn COD í beinni útsendingu hjá Gametíví og Bjarni Benediktsson mætti í tveggja tíma beint streymi hjá tengdasyni sínum, tónlistarmanninum og áhrifavaldinu Lil Binna. Lestin sökkvir sér ofan í twitch og pólitík.
    Hvað sameinar þjóðina? Snorri Páll Jónsson veltir því fyrir sér hvort það sé eitthvað sem sameini þjóð meira en sundrung og skautun.
    Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær kvikmyndir eftir íslenska leikstjóra sem eru nú í sýningum í bíó. Hygge er nýjasta kvikmynd Dags Kára, en myndin er dönsk endurgerð á hinni ítölsku Perfetti sconosciuti eftir Paolo Genovese. Sú mynd hefur verið endurgerð oftar en nokkur önnur mynd, meðal annars á íslensku undir heitinu Villibráð. Hin myndin sem Kolbeinn segir frá er Eftirleikir eftir Ólaf Árheim, lítill og ódýr en yfirgengilegur ógnartryllir með kómísku ívafi.
    55 min
  • Allt er áróður, xTiktok, útvarpsskóli LungA
    Hvernig birtast stjórnmálaflokkarnir á samfélagsmiðlum fyrir kosningarnar um helgina? Lóa Björk og Reynir Ólafsson, 17 ára framhaldsskólanemi, halda áfram að skrolla niður Tiktok og greina pólitískt efni.
    Haukur Már Helgason heldur áfram að velta fyrir sér hugtakinu upplýsingaóreiða, sem hann telur reyndar bara vera annað orð yfir áróður. Hann segir undanfarinn áratug hafi hlutskipti persóna í æ auknum mæli að flytja áróður á samfélagsmiðlum, ýmist fyrir tilteknum skoðunum eða einfaldlega fyrir sjálfum sér.
    Við hringjum á Seyðisfjörð og fræðumst um nýja útvarpsbraut í LungA-skólanum.
    53 min
  • Flokkarnir á TikTok, stjórnmálamaðurinn fagri Alkibíades
    Við förum yfir flokkana á TikTok og greinum hvað þeir eru að bjóða upp á rétt fyrir kosningar. Það hefur mikið breyst síðan að kosningabaráttan hófst, en hversu vel virkar það? Reynir Ólafsson, nemi við FB, rýnir í stöðuna.
    Alkibíades var einhver alræmdasti stjórnmálamaður Grikklands til forna, einstaklega fagur, hrífandi og vel að máli farinn. Hann leiddi Aþenu út í tilgangslaust stríð og endaði á því að gera út af við lýðræðið í borgríkinu. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á samræðunni Alkibíades eftir Platón, en þar segir frá fundi heimspekingsins Sókratesar og stjórnmálamannsins unga. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, bókmenntafræðing, þýðanda og bókaútgefanda.
    53 min