Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Á vettvangi, gamalreyndir graffarar, ríki og samfélag
    Jóhannes Kr. blaðamaður er gestur þáttarins. Við ræðum nýja hlaðvarpsseríu, Á vettvangi, en í henni er Jóhannes á Bráðamóttökunni. Hlustunin er streituvaldandi, svo fátt eitt sé sagt. Blaðamanninum þótti mikilvægt að þættirnir kæmu út fyrir kosningar, enda heilbrigðismál stórt kosningamál.
    Þórður Ingi Jónsson ræðir við þrjá gamalreynda graffarar, tilefnið er nýútkomin heimildarmynd um graffítimenningu á Íslandi og undirgöngin við Klambratún, myndin Göngin.
    Hvað er ríki? Hvað er samfélag? Heimspekingarnir Páll Skúlason og Björn Þorsteinsson veltu þessu fyrir sér í þættinum Sunnudagsspjall um hugmyndir, gamlar og nýjar frá árinu 2013, sem var í umsjón Ævars Kjartanssonar. Við rifjum upp hluta af spjallinu af gefnu tilefni, nú þegar styttist í kosningar.
    55 min
  • Hvað er málið með Hygge? Picnic at Hanging Rock, Saso
    Við ræðum við leikstjórann, Dag Kára Pétursson um nýjustu kvikmynd sína, Hygge. Hygge er dönsk endurgerð á ítölsku myndinni Perfetti sconosciuti, sem hefur verið endurgerð hvað oftast af öllum kvikmyndum, oftar en 28 sinnum. Í fyrra kom út íslenska endurgerðin, Villibráð.
    Þórdís Nadia Semichat fjallar um Dóminikanska tónlistarmanninn Saso. Tónlist Saso er meira en bara skemmtun; hún er menningarhreyfing sem ætlað er að kveikja samtöl um kynþátt og varanleg áhrif afrískrar tvístrunar, eða díasporu, á alþjóðlega tónlist, segir Nadia m.a. í pistli sínum.
    Við fáum að lokum upplýsingar um dagskrá Bíóteksins sem verður haldið á sunnudaginn í Bíó Paradís. Esther Bíbí fer yfir dagskránna sem Kvikmyndasafn Íslands stendur fyrir.
    57 min
  • Shrek-reif, leigumarkaður er menningarstefna, Kátt á línunni
    Listamenn velta fyrir sér menningarstefnu stjórnmálaflokka í aðdraganda kosninga. Lóa veltir fyrir sér nýjum íbúðum til sölu og fyrir hvernig líf sé pláss inn í þeim. Svo ímyndum við okkur persónu sem situr í hægindastól og les fréttir af spjaldtölvunni sinni um stöðuna á húsnæðismarkaðnum.
    Um helgina fór fram í Gamla bíó, þemapartý og danstónlistarviðburður helgaður teiknimyndapersónunni Shrek sem birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 2001. Árið 2020 var haldið fyrsta Shrek-reifið í Los Angeles, og síðan þá hefur fyrirbærið breiðst út um allan heim. Og nú um helgina fór fram fyrsta Shrek reifið á Íslandi: “Búðu þig undir að sleppa lausu tröllinu innra með þér í útrúlegasta teiti ársins” segir í kynningatextanum sex klukkutímar af yfirgengilegi skemmtun. Guðrún Úlfarsdóttir fór á reifið og við fengum hana til að segja frá upplifuninni.
    Við kíkjum á Café Catalina í Hamraborg og fræðumst um tónleikaröðina Kátt á línunni sem fer fram á staðnum þriðja fimmtudag í hverjum mánuði. Fyrstu tónleikarnir fara fram á morgun en þá koma fram BKPM, Juno Paul og Sucks to be you Nigel. Við ræðum við Pétur Eggertsson, skipuleggjanda.
    56 min
  • Hver er Vematsu? og Almar með næringu í æð
    Varstu á Twitter árið 2015? Manstu eftir Vematsu? Ekki? Við ræðum við þrjá vini Vematsu og reynum að skilja hversvegna unglingar í MH fóru að spjalla við fullorðinn mann í Japan í frítíma sínum.
    Kristján byrjaði daginn á því að kíkja niður í Tjarnarbíó. Þar hófst útgáfupartý klukkan 6 í gærkvöldi. Og klukkan tæplega 10 í morgun var annar höfundurinn, Almar Atlason, ennþá að lesa upp úr sinni fyrstu skáldsögu, Mold er bara mold: litla systir mín fjöldamorðinginn, sem er hetjusaga í þremur hlutum um erfiðleika, ofbeldi, afleiðingar, sorgir og glórulaust klúður.
    55 min
  • Í göngutúr með háhyrninginn Keikó
    Nú um hegina kom út sex þátta röð frá einu þekktasta og virtasta hlaðvarpsfyrirtæki heims Serial, sem er hluti af New York Times fjölmiðlasamsteypunni. The Good whale sem fjallar um háhyrninginn Keikó.
    Hlaðvarpsþættirnir rekja sögu Keikós sem varð að alþjóðlegu tákni um illa meðferð á háhyrningum og hvölum almennt þegar hann lék í Hollywood-kvikmyndinni Free Willy árið 1993. Þá bjó hann i skemmtigarði í Mexíkó þar sem hann naut mikilla vinsælda en bjó við þröngan kost og slæma heilsu. Sú brjálæðislega hugmynd kviknaði að láta lífið líkja eftir listinni og reyna að koma dýrinu aftur út í náttúruna, gera húsdýrið villt aftur. Framkvæmdin var gríðarlega flókin, rándýr og umdeild. Keikó var fyrst fluttur til Oregon í Bandaríkjunum í hálfgerða endurhæfingu, og svo til Vestmannaeyja í september árið 1998.
    Í Lestinni í dag ætlum við að ræða við einn helsta þjálfara og umönnunaraðila Keikós á síðustu æviárum hans, Þorbjörgu Valdísi Kristjánsdóttur.
    56 min
  • Witch Club Satan, Eftirleikir, Útilega
    Nýja íslenska bíómyndin Eftirleikir var í 8 ár í bígerð. Við hittum leikstjóra myndarinnar, sem er lýst sem ógnartrylli, Ólaf Árheim.
    Sviðslista- og danshátíðin Reykjavík Dance Festival er hafin. Við kíkjum í Iðnó á norska svartmetalhljómsveit, sem er að fara að troða upp í kvöld, Witch Club Satan.
    Brynja Hjálmsdóttir rýnir í nýja íslenska grínþætti, Útilega, sem sýndir eru á Sjónvarpi Símans.
    57 min
  • Heimatilbúið stjörnuhrap, vinsæl gervigreindartónlist, menningarstjórnun
    Við höldum áfram að ræða tónlist sem er smíðuð með skapandi spunagreind. Nú lítum við út fyrir landssteinana og skoðum dæmi gervigreindartónlist sem hefur náð inn á vinsældalista í nokkrum löndum, t.d. í Þýskalandi, Noregi og Svíþjóð. Við pælum líka í því hvort tónlist geti orðið að samskiptaaðferð, ekki einstaklings við hóp hlustenda, heldur bara milli tveggja einstakling.
    Haukur Már Helgason fylgdist með heimatilbúnu stjörnuhrapi yfir suðvesturríkjum Bandaríkjanna síðustu helgi. Sjónarspilið varpar meðal annars ljósi á það hversu alltumlykjandi Elon Musk er orðinn í samtímanum, og hvernig það er hvergi hægt að vera "úti."
    Njörður Sigurjónsson ræðir erindi sitt á Þjóðarspeglinum 2024 sem heitir Hinsvegar: Ólík gildi innan menningargeirans eins og þau koma fyrir í orðræðu stjórnenda. Hverjar eru helstu áskoranir þeirra sem vinna við að stýra menningarstofnunum?
    56 min
  • Woke er búið, það besta á Airwaves, tíminn og netið
    Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fór fram í miðborg Reykjavíkur um helgina. Davíð Roach Gunnarsson var útsendari Lestarinnar á hátíðinni. Hann fer yfir allt það besta í þætti dagsins.
    Hefurðu einhvern tímann heyrt að allt sem þú setur á internetið muni verða þar að eilífu? Sigríður Þóra Flygenring veltir fyrir sér netinu og tímanum.
    Kristján og Lóa rífast svo um hvort woke-ismi sé mikilvægt mál í komandi þingkosningum. Er gullöld woke-ismans búin?
    54 min
  • The Apprentice, japönsk trésmíði, Polka bistro
    Kvikmyndin The Apprentice sem fjallar um mótunarár verðandi bandaríkjaforseta Donalds Trump er sýnd í bíóhúsum þessa dagana. Trump sjálfur hefur fordæmt myndina og segir hana vera pólitíska árás á sig. Kolbeinn Rastrick rýnir í Lærlinginn.
    Í september hélt vöruhönnuðurinn Jón Helgi Hólmgeirsson til Kyoto til að fara á námskeið í hefðbundinni japanskri húsgagna og innréttingasmíði. Þetta er forn aðferð til að smíða úr tré án þess að nota nagla, lím eða aðra aukahluti til að halda viðnum saman. Kristján fékk Jón Helga í heimsókn til að ræða japanska trésmíði, viskuna í náttúrunni og listina að brýna sporjárn.
    Við heimsækjum pólska pop-up matarmarkaðinn Polka Bistro.
    55 min