Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Grindvíkingar - ári seinna
    Það fer bráðum að verða komið ár síðan að Grindavíkurbær var rýmdur vegna eldgosahættu.
    Fyrir rétt tæpu ári síðan höfðum samband við fjóra íbúa bæjarins og fengum þau til þess að taka reglulega upp hljóðdagbækur á símana sína. Þau deildu hversdagsleikanum sínum, hugsunum sínum og áhyggjum á óvissutímum. Við klipptum það svo saman og fluttum í Lestinni yfir nokkurra mánaða skeið. Körfuboltaleikir, safnskólar, svefnleysi og maturinn sem varð eftir í frystikistum var meðal þess sem þau sögðu frá. Þannig gátum við sett manneskjur og líf í samhengi við fréttir af náttúruhamförum.
    Í Lestinni í dag fáum við Grindvíkingana sem við kynntumst vel hér í Lestinni, en höfum aldrei hitt, til að setjast niður með okkur og segja okkur hvað er að frétta. Hvað hefur breyst. Hvernig líður þeim. Þetta eru Sigríður Gunnarsdóttir, Teresa Birna Björnsdóttir, Siggeir Fannar Ævarsson og Andrea Ævarsdóttir.
    55 min
  • Fleiri hlusta á Diddy, tækni án hindrana, Pan-arctic vision
    Undanfarna mánuði hefur bandaríski tónlistarmaðurinn og útgefandinn Sean Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða Diddy, verið reglulega í fréttum. Ástæðan eru holskefla hryllilegra ásakana um ofbeldi, kynferðisofbeldi, kúganir - ákærur fyrir mansal og skipulagða glæpastarfsemi. En þrátt fyrir ásakanirnar hafa hlustunartölur Diddy á streymisveitum rokið upp síðustu vikur - og þetta virðist raunar vera reglan frekar en undantekningin þegar stórstjörnur eru sakaðar um ofbeldi. Við pælum í slaufunum og streymisveitum.
    Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, er doktorsnemi við Háskóla Íslands þar sem hún rannsóknar hvernig stafræn þróun hjá hinu opinbera hefur áhrif á réttindi fatlaðs fólks. Á dögunum fór hún af stað með nýja Facebook síðu, Tækni án hindrana.
    Tónlistarkeppnin Pan-Arctic Vision var haldin í Nuuk þann 12. Október síðastliðinn. Keppnin er svipuð Eurovision í sniði en ólík að því leyti til að hún er yfirlýst pólitísk og hafnar hugmyndum um þjóðríkið og landamæri, en miðjusetur jaðarett þjóðbrot á norðurslóðum. Katrín Helga Ólafsdóttir ræðir við Snæbjörn Helga Arnarson Jack um hátíðina.
    55 min
  • Skaginn er mekka pönksins, Moldin heit, Ari Alexander um Missi
    Kvikmyndin Missir fjallar um mann á efri árum sem er nýlega orðinn ekkill. Hann ákveður að drekka ösku látinnar eiginkonu sinnar. Þegar hann drekkur úr bollanum, birtist hún honum. Við ræðum við leikstjóra myndarinnar, Ara Alexander Ergis Magnússon, sem byggði handrit myndarinnar á samnefndri bók Guðbergs Bergssonar, sem kom út 2010.
    Birgitta Björg Guðmarsdóttir var núna í mánuðinum að senda frá sér skáldsöguna Moldin heit. Birgitta sem einnig er meðlimur í hljómsveitinni Ólafur Kram, er aðeins 26 ára gömul og þetta er hennar önnur skáldsaga. Moldin heit er saga um ást, sorg, og dans. Við förum í göngutúr með Birgittu.
    Svo fáum við tvo hressa skagamenn í heimsókn, en um helgina fer tónlistarhátíð Lilló hardkorfest fram í þriðja skiptið á Akranesi. Kristján og Bergur taka sér far með Lestinni.
    56 min
  • The Penguin, andlát Liam Payne, 10 ára plötubúð, fyrsti gjörningurinn
    Karitas M. Bjarkadóttir, umsjónarmaður Krakkaheimskviða, var harmi slegin þegar hún fékk fregnir af því að Liam Payne, meðlimur bresku strákahljómsveitarinnar OneDirection, væri látinn. Sveitin, sem lagði upp laupana árið 2016, er ein af söluhæstu hljómsveitum í heimi, og á sér enn marga, trygga aðdáendur. Fréttir bárust af því í gærkvöldi að Liam hefði fallið til jarðar úr hótelherbergi í Argentínu. Við hringdum í Karítas til þess að fá meiri upplýsingar um Liam,
    Tara og Silla eru gjörningatvíeyki sem hafa verið að gera gjörninga saman síðan 2017.
    Þær ásamt Juan Pablo, sem búsettur er í Belgíu, munu halda gjörningakvöld í Ásmundasal á morgun. Þar munu 5 gjörningalistamenn á stokk og endurflytja með sínum hætti, sinn fyrsta gjörning. Planið er að roðna saman.
    Brynja Hjálmsdóttir er að horfa á nýja þætti úr DC Comics heiminum, The Penguin sem koma úr smiðju HBO. Hinn írski Colin Farrel fer með aðalhlutverkið og þykir nær óþekkjanlegur sem Mörgæsarmaðurinn.
    Við fögnum 10 ára afmæli plötubúðarinnar og útgáfunnar Reykjavík Record Shop á Klapparstíg. Við ræðum við nýjan eiganda búðarinnar, Jóhann Ágúst Jóhannsson, sem lét gamlan draum rætast og keypti plötubúð á dögunum.
    56 min
  • Vinstri-hægri-snú, upplýsingaóreiða #3, skrásetti öll smáatriði lífs síns
    Haukur Már Helgason flytur sinn þriðja pistil um upplýsingaóreiðu, að þessu sinni fær hann aðstoð frá gervigreindarspjallmenni.
    Við kíkjum niður í Norræna húsið þar sem stendur yfir sýningin Open house, sem er hluti af grísk-íslensku listahátíðinni Head-2-Head. Í norræna húsinu eru sýnd verk tveggja grískra listamanna og þriggja íslenskra. Meðal annars má þar finna athyglisverðar möppur sem Eiríkur Páll Sveinsson, læknir á akureyri, gerði. Hann skráði niður öll smáatriði lífs síns, skráði inn í tölvu, prentaði og bjó fallega um möppurnar með sérhönnuðum forsíðum. Við ræðum við Evu Árnadóttur, barnabarn Eiríks, og tvo af aðstandendum Open: Hildigunni Birgisdóttur og Örn Alexander Ámundason.
    En við byrjum á því að reyna að skilja vinstri og hægri, og miðju. Við kíkjum niður í Háskóla Íslands og ræðum bæði við kennara og nemendur um þessa flokkun stjórnmálaflokka til vinstri eða hægri.
    56 min
  • Topp 10 möst, jólabókunum slaufað, Jamie XX, Fred again.., Osamu Sato
    Ólöf B. Torfadóttir frumsýndi aðra kvikmynd sína á dögunum, grínmyndina Topp 10 Möst. Í aðalhlutverkum eru Tanja Björk og Helga Braga, sem leika strokufanga og gjaldþrota myndlistakonu. Við heimsækjum Ólöfu upp á Akranes.
    Í september gáfu tveir breskir danstónlistarmenn af svipaðri kynslóð út langþráðar plötur, Jamie XX og Fred again.. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plöturnar í þætti dagsins.
    Við fræðumst um hinn goðsagnakennda og síkadelíska tölvuleik LSD: Dream Emulator. Þórður Ingi Jónsson á tölvupóstsamskiptum við höfund leiksins, tónlistar- og myndlistarmanninn Osamu Sato.
    Og svo setjumst við niður og horfum á Kiljuna eða Silfrið eða Kiljuna eða Silfrið.
    58 min
  • Vafasamar vefsíður hýstar á Íslandi, stjórnmálaflokkarnir á TikTok, ógleymanleg stef
    Netþrjótar frá Norður Makedóníu svíkja peninga frá stuðningsfólki Donald Trump. Nýnasistar svíkja fé út úr transfólki með því að þykjast selja þeim hormónalyf. Rússneskar gervifréttasíður básúna lygum til að reyna að hafa áhrif á kosningar í Bandaríkjunum. Vefsíður allra þessara hópa eru hýstar á sama stað, á skrifstofu fyrirtækisins Withheld for Privacy, á Hafnartorgi í miðborg Reykjavíkur. Við ræðum við Skúla Geirdal, sviðsstjóra netöryggismiðstöðvar Íslands, um hýsingu á vafasömum vefsíðum á Íslandi.
    Reynir Ólafsson, 17 ára nemi í FB, fer í gegnum alla aðganga stjórnmálaflokkana á TikTok og metur stöðuna. Hver er með flesta fylgjendur? Hver nýtir miðilinn best? Við tökum stöðuna áður en kosningabaráttan fer á fullt.
    Hjati Freyr Ragnarsson var að keyra Sæbrautina þegar hann fór að pæla í stefi sem hann heyrði á Rás 1. Við fáum að skyggnast með Hjalta á bakvið uppruna nokkra þekktra stefa.
    55 min
  • Grafftí í göngunum, Jóker gagnrýni, hverfandi tónleikastaðir
    Á miðvikudag verður frumsýnd ný heimildarmynd um graffitímenningu Reykjavíkur, Göngin. Björgvin Sigurðarson og Hallur Örn Árnason hafa unnið að myndinni í rúman áratug og veitir hún innsýn í upphafsár íslenskrar graffitímenningar. Við höldum niður í göngin undir Miklubraut og veltum fyrir okkur graffití sem er á sama tíma listræn tjáning og uppreisn.
    Svo fáum við gagnrýni um nýja kvikmynd um Batman-illmennið Jókerinn, Joker: Folie á Deux. Þetta er framhald gríðarvinsællar og umtalaðrar kvikmyndar Todds Phillipp um Jókerinn, mynd sem að tónskáldið Hildur Guðnadóttir fékk óskarinn fyrir. Folie á Deux fer óvæntar leiðir og hefur hlotið bæði lof og last fyrir. Kolbeinn Rastrick ætlar að fella sinn dóm um myndina.
    Og svo ætlum við að ræða um fækkandi tónleikastaði í miðborg Reykjavíkur. Mál sem að okkur í Lestinni er hugleikið, og er nú komið í erlenda fjölmiðla, en The Guardian fjallaði um málið í vikunni. Við spilum brot úr þætti um útrýmingu miðbæjarrottunnar og tónleikastaða í Reykjavík þar sem rætt er við tónlistarmenn og tónleikahaldara.
    59 min
  • Tapararnir, flókinn fréttaflutningur um stríðið á Gaza
    Ef hlustendur Lestarinnar eiga leið hjá finnsku borginni Turku þá standa nú yfir sýningar í sænska leikhúsinu þar í borg, Åbo Svenska Theater, á verkinu Förlorana, Tapararnir, eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur. Verkið er útskriftarverkefni Hallveigar úr meistaranámi í leikstjórn frá leikhúsakademíunni í Helsinki. Verkið hefur hlotið þó nokkra umfjöllun í finnskum fjölmiðlum, en það fjallar um sigur og töp á handboltavellinum.
    Þrír blaðamenn velta fyrir sér flækjunum sem fylgja því að flytja fréttir frá hörmungunum á Gaza. Eðli málsins samkvæmt eru skoðannir almennings á orðavali og innihaldi frétta um þetta stríð, átök, eða þjóðarmorð, sterkari en í öðrum fréttamálum.
    Viðmælendur eru Aðalsteinn Kjartansson, Heimildinni, Ólöf Ragnarsdóttir, Rúv og Hólmfríður Gísladóttir, Vísi.
    56 min
  • Elskling, rýnt í Kött Grá Pje, dægurmenning í Dubai
    Vera Sölvadóttir, kvikmyndagerðarkona, getur ekki hætt að tala um kvikmyndina Elskling eftir Lilju Ingólfsdóttur. Af hverju er þetta fólk í sæta húsinu í Noregi ekki bara hamingjusamt? Lóa og Vera ræða hjónabandserjur og heterónormatífu í þætti dagsins.
    Við hringjum til Dubai og ræðum við Indriða Grétarsson, Didda, sem hefur verið búsettur í borginni undanfarin 5 ár. Hann segir frá dægurmenningunni í Dubai, tónleikamenningu, arkitektúr og ljósmyndabanni í borginni.
    Dulræn atferlismeðferð nefnist nýjasta plata rapparans Kött Grá Pjé, en hana gerir hann ásamt Fonetik Simbol. Davíð Roach rýnir í plötuna.
    55 min