Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Menningarwitinn, Gottsunda, norska Succession
    Menningarwitinn hefur sett sér það markmið að sækja einn menningarviðburð á hverjum degi, og sýnir frá því á Instagram. En hvers vegna? Við förum á menningarviðburð með Hafliða Ingasyni, menningarvita.
    Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, horfði á þætti sem hafa verið kallaðir norska útgáfan af Succession. Fjölskyldudrama, milljarðarmæringar og laxeldi. Þættirnir heita Eyja milljarðamæringanna, og eru á Netflix.
    Ný mynd Loran Batti var sýnd á RIFF um helgina, G - 21 sena frá Gottsunda. Við hittum Loran, sem ólst upp í fjölmenningarlega hverfinu Gottsunda, í Uppsala, og á vini sem leiddust út í glæpi. Myndin fjallar um hverfið, sem honum þykir svo vænt um, en er líka orðið að uppsprettu kvíða.
    56 min
  • Dægurflugur, næst vinsælasti YouTube aðgangurinn, seinustu þrjár myndirnar á RIFF
    Er hægt að búa til stuttmynd á 24 klukkustundum? Á laugardaginn mun hópurinn Dægurflugur halda stuttmyndahátíð í Bíó Paradís, þar sem allar stuttmyndirnar verða búnar til á sólarhring.
    Næst vinsælasti YouTube aðgangur í heimi, á eftir Mr. Beast, er indverska jölmiðlafyrirtækið T series. Við heyrum sögu manns sem byrjaði sem götusali en endaði sem stærsti tónlistarmógúll Indlands.
    Að lokum förum við yfir þrjár myndir sem Gunnar Theódór Eggertsson fór að sjá á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF. Það eru myndirnar DuEls, Hunters on a White Field og Pepe.
    55 min
  • Hlekkur í efstu athugasemd, meiri RIFF-rýni, upplýsingaóreiða
    Af hverju eru allir að deila hlekkjum í efstu athugasemd á Facebook? Við pælum í Meta-algóryþmanum, ritskoðun á færslum tengdum Palestínu og fleiri samfélagsmiðlamálum með Sigurði Svanssyni.
    Haukur Már Helgason, rithöfundur, heldur áfram að pæla í hugtakinu upplýsingaóreiða.
    Kvikmyndirnar No Other Land, Temporary Shelter og Grand Tour verða teknar fyrir í RIFF-rýni dagsins.
    55 min
  • Ofát í streymi, Samherji vs. Odee, ungir listnemar tala
    Mukbang er vinsælt internetfyrirbæri þar sem áhrifavaldar sitja fyrir framan myndavél og borða gríðarlegt magn af mat, háma, gúffa í sig. Þórdís Nadía Semichat segir frá þessari furðulegu suður-kóreska netmenningu.
    Í síðustu viku fór fram fyrirtaka í máli Samherja gegn myndlistarmanninum Odee í Bretlandi. Hann sendi út afsökunarbeiðni í nafni og með merki Samherja, þar sem hann baðst afsökunar á spillingarmálum fyrirtækisins í Namibíu. Í málinu er meðal annars tekist á um mismunandi skilning á hugtakinu list.
    Lóa Björk heimsækir Myndlistarskólann í Reykjavík sem flutti á dögunum á Rauðarárstíg. Hún spjallar við nokkra nemendur um stöðu listarinnar í samtímanum og innblástur.
    56 min
  • Fredric Jameson, gott bíó og skringilegt meistaraspjall á Riff
    Gunnar Theódór Eggertsson segir okkur frá þremur myndum sem hann er búinn að sjá á RIFF, og hvernig honum finnst hátíðin hingað til. Við ræðum meistaraspjall með Natösju Kinski og fleira sem hefur verið áhugavert á hátíðinni.
    Fredric Jameson, bókmenntafræðingur og heimspekingur, lést núna í september. Hann er þekktastur fyrir kenningar sínar um póstmódernisma. Magnús Þór Snæbjörnsson, bókmenntafræðingur, þekkir vel til verka hans.
    59 min
  • Úkraínskir flóttamenn á Ásbrú, Natassja Kinski, RIFF-spjall
    Lestin í dag er tileinkuð alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst í dag.
    Hin Úkraínska Anastasiia Bortuali þurfti að hætta í kvikmyndanámi í Pétursborg þegar innrás Rússa hófst í febrúar 2022. Fyrir tilviljun endaði hún sem flóttamaður á Íslandi. Hún byrjaði að skrásetja líf fólksins í kringum sig á Ásbrú á snjallsímann sinn og nú frumsýnir hún heimildamyndina Temporary Shelter, Tímabundið skjól. Við fáum Anastasiiu í heimsókn.
    Við fáum líka heimsókn frá tveimur ungum kvikmyndagerðarmönnum sem sýna stuttmyndir á RIFF í ár. Tumi Björnsson og Salvör Bergmann ræða um gott og slæmt kvikmyndanám, Tiktok-kvikmyndagerð og stuttmyndir sem listform.
    Pólsk-þýska leikkonan Natassja Kinski er einn af heiðursgestum RIFF í ár. Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur segir frá þessari virtu leikkonu.
    55 min
  • Riff-yfirferð, Dacia Duster, hvaða stétt tilheyrir þú?
    Við ræðum við félagsfræðiprófessor um stéttir, og veltum því fyrir okkur hvernig sé hægt að komast að því hvaða stétt maður tilheyrir. Ef maður upplifir sig í millistétt, er maður þá ekki í millistétt? Tilefnið er fyrirlestur á vegum RIKK, en fyrirlestrarröðin er tileinkuð stéttarhugtakinu í haust.
    Datsía Duster er einhver vinsælasti bíll á Íslandi, að minnsta kosti á bílaleigum landsins. Raunar er hann svo áberandi að hann er orðinn að hálfgerðu tákni - en hvað táknar hann? Bjarni Daníel hélt í bíltúr að leita að merkingu Dustersins.
    Við flettum í gegnum dagskrá Riff og nefnum það sem vekur áhuga okkar þar.
    56 min
  • Notuð merkjavara, tékknesk dægurmenning, einlægni á tæknitímum
    Margrét Unnur lærði að leita uppi gersemar á nytjamörkuðum í Berlín. Nú hefur hún opnað vefverslunina Brot, þar sem hún selur merkjavörur sem hún hefur sjálf fundið í búðum eða á netinu. Við ræðum tísku og flíkur með sál.
    Við hringjum til Prag og forvitnumst um tékkneskt bíó, tónlist og skemmtanalíf. Nikulás Tumi Hlynsdóttir nemi í kvikmyndagerð við FAMU er leiðsögumaður okkar.
    Hvað eiga Charli XCX og Radiohead sameiginlegt? Nína Þorbjörg Árnadóttir setur fram kenningu um einlægt popp á tæknitímum.
    58 min
  • Framhaldslíf SOPHIE, haustlitaferð, pakkhús í Köben
    Um helgina kemur út önnur breiðskífa hinnar áhrifamiklu skosku tónlistarkonu, Sophie. Hún var komin langleiðina með plötuna þegar hún lést af slysförum við heimili sitt í Aþenu í byrjun árs 2021. Sophie var einhver framsæknasti hljóðsmiður popptónlistarheimsins og íkon í transheiminum. Við veltum fyrir okkur áhrifum og framhaldslífi Sophie í tilefni af nýju plötunni.
    Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, heimsækir gamalt pakkhús á Norðurbryggju í Kaupmanna. Þar er starfrækt menningarhús tileinkað Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. K.Óla röltir um húsið með Ástu Stefánsdóttur, verkefnastjóra hússins, meðal annars á sýningu frægustu listakonu Færeyja.
    Við röltum um Fossvogsdal til að komast að því hvernig fólk er að nýta hið fullkomna haustveður. Bestu dagar sumarsins í ár voru um haustið.
    57 min
  • Snjallsíminn: hinn nýi Satan?
    Undanfarnar vikur hafa hörmulegar fréttir dunið á Íslendingum og tilfinning margra virðist vera að óhamingja sé að aukast í samfélaginu, aftenging, kvíði, þunglyndi, einmanaleiki, ofbeldi. Við setningu Alþingis í síðustu viku settu fjölmargir þingmenn og forseti Íslands þetta í samhengi við snjallsímanotkun. Snjallsíminn er nýr djöfull sem allir geta sameinast um að kenna um allt sem úrskeiðis fer. En samt virðist enginn vilja eða geta staðið í vegi fyrir framgangi þessarar tækni. Hið opinbera jafnt og markaðurinn neyðir fólk í að snjallvæðast og nota snjallsímana til æ fleiri verka. Í Lestinni í dag ætlum við að velta fyrir okkur þessum mótsagnakennda þrýstingi. Er snjallsíminn bara hentugur blóraböggull stjórnmálamanna? Eða er hann raunverulega að hola samfélög okkar að innan?
    Lóa og Kristján setjast niður með Atla Harðarsyni, heimspekingi, Viðari Halldórssyni, félagsfræðingi, og Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttir, doktorsnemi.
    57 min