Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Oasis miðasölurugl, upplýsingaóreiða árið 1813, draugagangur
    Undir lok síðasta mánaðar fengu allir unglingar næntísins sameiginlega raðfullnægingu þegar tilkynnt var að þekktustu villingar tjallapoppsins, Oasis, ætluðu að koma aftur saman á nokkrum tónleikum á Bretlandseyjum næsta sumar. Milljónir næntísunglinga hrúguðust inn á vefsíðu miðasölurisans Ticketmaster snemma morguns þann 31. Ágúst og vonuðust til að kaupa miða á rúmlega 11 þúsund krónur, en það var auglýst verð á ódýrustu miðum. En hjá flestum fór það öðruvísi en áætlað var. Við heyrum um síkvikt verðlag, dynamic pricing, á tónleikamiðum og fleiri hlutum.
    Haukur Már Helgason veltir fyrir sér hugtakinu upplýsingaóreiða í pistlaröð í Lestinni. Í fyrsta pistlinum fer hann aftur til ársins 1813 og veltir fyrir sér fréttabanni og ólöglegum brandara.
    Við förum í heimsókn í Bíó Paradís og ræðum við starfsfólk þar, sem hefur orðið vart við draugagang í húsinu. Lausnin er auðvitað að halda miðilsfund. Það verður gert annað kvöld og um leið verður heimildamyndin The Gullspang Miracle frumsýnd. Myndin segir sögu tveggja systra sem komast í kynni við konu sem lítur alveg eins út og systir þeirra sem lést mörgum áratugum fyrr.
    56 min
  • Shogun, samþykki, Þessir djöfulsins karlar
    Sænska bókin Þessir djöfulsins karlar í þýðingu Þórdísar Gísladóttur kom út hjá Benedikt bókaútgáfu snemma í september. Djöfulsins karlar er uppgjör við brösulegt uppeldi í boði 68-kynslóðarinnar og sannsöguleg uppvaxtarsaga þar sem skáldað er í eyðurnar.
    Sjónvarpsþættirnir Shogun voru sigursælir á Emmy-verðlaunahátíðinni á sunnudag. Shogun er 10 þátta sería sem byggir á sögulegri skáldsögu James Clavell um valdabrölt meðal stríðsherra Japans um aldamótin 1600. Við pælum í Shogun og menningu samúræja með Unni Bjarnadóttur.
    Katrín Pálma Þorgerðardóttir, doktorsnemi í heimspeki, veltir fyrir sér samþykki og setur það í samhengi við mál Yazans Tamimi.
    58 min
  • Brotinn barnasáttmáli, samþykki, norskt kókaín og kóngafjölskylda
    Seint í gærkvöldi var Yazan Tamimi, 11 ára palestínskur drengur með taugahrörnunarsjúkdóminn Duchenne, sóttur á Landspítalann, af lögreglunni, sem hafði fyrirmæli um að senda hann ásamt foreldrum sínum úr landi. Á þriðja tug manns fór á Keflavíkurflugvöll til þess að mótmæla og reyna að koma í veg fyrir að Yazan færi með fluginu. Svo fór að Yazan var ekki sendur með fluginu, fyrirmæli úr dómsmálaráðuneytinu komu um að beðið skildi vera með það. Í kjölfar þessara frétta ætlum við að velta fyrir okkur barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Er brottvísun fatlaðs barns á flótta brot á barnasáttmálanum?
    Við forvitnumst um það sem er efst á baugi í norskri dægurmenningu og umræðu. Rapp, hlaðvörp, kókaín og kóngafjölskyldan eru meðal þess sem kemur við sögu. Leiðsögumaður okkar er Snæbjörn Helgi Arnarson Jack.
    Orðið samþykki hefur verið áberandi í umræðunni undanfarin ár í kjölfar Metoo-byltingarinnar. En er samþykki jafn einfalt hugtak og það virðist vera? Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir doktorsnemi í heimspeki fjallar um samþykki.
    57 min
  • Átökin um ölduna í Þorlákshöfn
    Ný landfylling í Þorlákshöfn ógnar bestu og vinsælustu brimbrettaöldu landsins. Í bæjarfélaginu takast á ólíkir hagsmunir - iðnaður, náttúra, peningar - og hópur sörfara hefur fundið sig knúinn til að láta í sér heyra. Við sláumst í för með brimbrettaköppum sem vilja vernda ölduna í Þorlákshöfn.
    53 min
  • Gleymd íslensk kántrýstjarna, Ljósvíkingar (gagnrýni), snillingshugmyndin
    Kvikmyndin Ljósvíkingar fjallar um tvo gamla vini sem reka veitingastað á vestfjörðum, en það reynir á samstarfið og vinskapinn þegar annar þeirra kemur út úr skápnum sem transkona. Þetta er fyrsta leikna íslenska kvikmyndin sem skartar transkonu í aðalhlutverki. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina, og við heyrum brot úr viðtali við leikstjórann Snævar Sölva Sölvason.
    Við kynnum okkur líka gleymda íslenskra kántrýstjörnu, Johnny King, en hann er viðfangsefni nýrrar heimildarmyndar Kúrekar Norðursins. Árni Sveinsson leikstjóri segir frá harmi og gleði kántrýrokkarans Johnny King, en tökur á myndinni stóðu yfir í átta ár.
    Hvað er að vera snillingur? Fjóla Gerður Gunnarsdóttir, nemandi við Menntaskólann í Hamrahlíð, flytur pistil um snillingshugmyndir Immanuels Kants og Þórbergs Þórðarsonar.
    55 min
  • 69 ástarlög, íslensk heimspeki á miðöldum, Taktu flugið beibí
    Um helgina voru 25 ár frá því að platan 69 Love Songs með hljómsveitinni The Magnetic Fields kom út, 7. September 1999. Platan öðlaðist költstöðu á því augnabliki sem hún kom út, brjálæðislegt verkefni sem gengur fullkomlega upp.
    Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir er að fara að frumsýna nýtt leikrit á fimmtudaginn í Kassanum. Taktu flugið, beibí er byggt á lífshlaupi og lífsreynslu höfundarins. Lóa ræðir við Kolbrúnu um verkið.
    Ýmis ummerki eða spor eftir heimspekilega hugsun er að finna í miðaldarbókmenntum Íslendinga, hvort heldur í kvæðum, sögum eða lögum. Við ræðum við Gunnar Harðarson, heimspeking, sem hefur verið að leita að fingraförum spekinnar í íslenskum miðaldatextum.
    56 min
  • Kapítalískt raunsæi (í bókaklúbbi), grísk menning
    Hvað er að gerast í grískri menningu? Hvaða tónlist eru Grikkir að dansa við, hvaða bækur eru þeir að lesa, og hvað finnst þeim um nýjustu bíómyndina frá Yorgos Lanthimos? Við hringjum í Auði Ýr Sigurðardóttur sem er í Þessaloniki í norður Grikklandi og forvitnumst um gríska dægurmenningu.
    Við förum og hittum bókaklúbbinn Bók í dós, sem var að enda við lesa bókina Capitalist Realism: Is there no alternative? eftir breska heimspekinginn og menningarrýninn Mark Fisher. Kapítalískt raunsæi er hugtak yfir það að kapítalisminn er ekki einungis eina efnahagskerfð í heiminum, heldur er óhugsandi að ímynda sér að nokkuð annað gæti komið í staðinn. Bókin er stutt ritgerð en full af flóknum hugtökum og frönskum heimspekingum. Inn á milli fléttar Fisher inn pælingar úr bíómyndum og sjónvarpsþáttum sem auðveldara er að skilja. En hún er einhvers konar ákall til vinstrisins, að hætta að velta fyrir sér sögunni og liðnum atburðum og fara að ímynda sér nýja möguleika.
    59 min
  • Að rawdogga, dekurrófu-sumar, Ljósbrot
    Haustlægðirnar eru farnar að níðast á landanum og Davíð Roach Gunnarsson ætlar að kveðja með pistli um tónlistarsumarið, um nostalgíu og nýjabrum, tónlistarhátíðir og dekurrófur. Charli xcx, tónleikastaðurinn Kex og Rottweiler hundar koma við sögu.
    Kolbeinn Rastrick fjallar um Ljósbrot, nýja kvikmynd Rúnars Rúnarssonar og svo heyrum við viðtal við Rúnar og aðalleikkonu myndarinnar, Elínu Hall.
    Við fjöllum um fyrirbærið að 'rawdogg-a' eitthvað, og hvaða áhrif það hefur að vera snjallsímalaus í nútímasamfélagi.
    Að lokum minnumst við á bókina Capitalist Realism, eftir Mark Fisher sem hlustendur gætu lesið eða kynnt sér fyrir bókaklúbb sem verður í þættinum í næstu viku.
    55 min
  • Nýnasistar gera leikhús, innflytjendur með uppistand, ratleikur
    Árið 1999 ákvað eitt þekktasta leikskáld heims, svíinn Lars Norén, að búa til leikrit í samstarfi við þrjá fanga sem afplánuðu langa dóma í öryggisfangelsi - þar af tvo nýnasista. Leikritið 7:3 vakti mikla athygli og umtal en ferlið endaði með tveimur morðum. Þessu verkefni eru gerð skil í nýrri leikinni þáttaröð, Sársaukapunktur, Smärtpunk. Við ræðum söguna á bakvið þættina við Hlín agnarsdóttur.
    Daniel Roh segir okkur frá uppistandssýningunni Belonging? sem verður haldin í Salnum í Kópavogi næstkomandi föstudagskvöld. Fram munu koma 6 manns sem öll eiga það sameiginlegt að vera erlendis frá en nú búsett hér á landi, sem þekkjast úr alþjóðlegu uppstandssenunni í Reykjavík.
    Ratleikur Hafnarfjarðar er hafinn í 27. sinn. Markmið leiks er að leiða þátttakendur vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar til að njóta útivistar og náttúru. Lögð eru 27 merki vítt og breitt um uppland Hafnarfjarðar. Þemað í ár er; þjóðsögur og ævintýri.
    56 min
  • Lesbíu-endurreisnin, íslenskt afróbeat, Extreme Chill
    Þeir eru eflaust fáir sem hugsa um okkar kalda sker í Norður-Atlantshafi þegar þeir heyra afróbeats-tónlist - en héðan sprettur þó slík tónlist. Nonykingz er rúmlega þrítugur tónlistarmaður, fæddur og uppalinn í Nígeríu en búsettur hér undanfarin 8 ár. Frá 2016 hefur hann sent frá sér fjölda laga um ástina, kynlíf og partý. Við ræðum við Nonykingz um afrobeat, tónlistarbransann, um Nígeríu og ástina sem dróg hann til Íslands frá Filippseyjum.
    Hvað þýðir það þegar sjálfsmynd kemst í tísku? Er lesbíu-endurreisn í gangi? Ein vinsælasta poppstjarna sumarsins var hin bandaríska Chappel Roan, sem syngur á einlægan hátt um ástarsambönd sín við konur. Við ræðum þetta, Billie Eilish og Lady Gaga við Steinunni og Katrínu Lóu, sem hafa velt þessu mikið fyrir sér.
    Og við forvitnumst um Extreme Chill, sveimtónlistarhátíðina, sem hófst í gær í fimmtánda sinn.
    57 min