Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Fatlað fólk og forsetaframbjóðendurnir, Glerhúsið og díalektísk efnishyggja
    Við heimsækjum skrifstofur Átaks og ræðum við þau Atla Má og Ingu Hönnu um viðtöl þeirra við forsetaframbjóðendur. Átak er félag fólks með þroskahömlun og í viðtölunum við forsetaframbjóðendur er lögð sérstök áhersla á málefni fatlaðra.
    Því næst förum við á Vesturgötuna í heimsókn í galleríið Glerhúsið, ræðum við Kristínu Ómarsdóttur, skáld, og myndlistarkonuna Sigrúnu Hrólfsdóttur.
    55 min
  • Menntaskóla-reunion, bækur forsetaframbjóðenda, formaður húsfélagsins
    Menntaskólar landsins eru í óða önn að útskrifa nemendur í massavís um þessar mundir. En það sem fylgir þessum árstíma líka fyrir sum okkar, eru útskriftarafmælin, svokölluð menntaskóla-reunion, viðburðir þar sem heilu árgöngunum er boðið á stefnumót við fortíðina.
    Helgi Grímur Hermannsson býr í fjölbýli og hann er formaður húsfélagsins. Hann er að velta fyrir sér mannlífi milli íbúða, nánd milli veggja.
    Forsetaframbjóðendur voru beðnir, af Amtsbókasafninu á Akureyri, að mæla með bók. Steinunn Ólína mælti með Passíusálmunum, Katrín Jakobsdóttir með Bréfi til Láru eftir Þórberg. Baldur Þórhallsson valdi hins vegar barnabók eftir Astrid Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta. En hvaða merkingu hefur þetta? Hvernig má skilja þetta? Jóhannes Ólafsson, bókmenntafræðingur og þáttastjórnandi bókmenntaþáttar Rásar 1, Bara bækur, gerir tilraun til þess að greina listann.
    56 min
  • Dansdagar, áttavilt átta á Skjaldborg, húsa- og lagasmíðar
    Streetdance, sem væri hægt að þýða sem götudans, þó þetta sé í daglegu tali einfaldlega kallað streetdance, er þema Dansdaga, sem eru nú haldnir á annað sinn. Við kíkjum í heimsókn á Dansverkstæðið og spjöllum við Gígju Jónsdóttur og Liinu Magneu um hátíðina í ár, dansböttl og fjölskylduþerapíu.
    Ásgeir H. Ingólfsson klárar yfirferð sína á Skjaldborgarhátíð þessa árs.
    Kári Kresfelder er tuttugu og tveggja ára gamall tón- og húsasmiður sem býr og starfar á Neskaupsstað. Hann er í progg-metal hljómsveit sem heitir Chögma, og vakti verðskuldaða athygli á músíktilraunum núna í vor, en gefur líka út tónlist undir eigin nafni og sendi frá sér plötuna Words á síðasta ári.
    58 min
  • Una Schram snýr aftur, 25 ára rapphundar, Lærdómstími ævin er
    Á miðnætti í kvöld kemur út nýtt lag eftir tónlistarkonuna Unu Schram. Una hefur áður sent frá sér þó nokkrar smáskífur, eina stuttskífu og eina blandspólu á árunum 2019 til 2022 og þetta nýja lag er því það fyrsta sem heyrist frá Unu í einhver tvö ár. Það ber titilinn titilinn 1999 (There You Go) og verður frumflutt í útvarpi hér í Lestinni í dag.
    Rappsveitin XXX Rottweiler hundar hafði mikil og mótandi áhrif á íslenskt rapp uppúr aldamótum, og fögnuðu nú um helgina tuttugu og fimm ára starfsafmæli með stórtónleikum í Laugardalshöll. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
    Af gefnu tilefni rifjum við upp þátt Eiríks Orra Ólafssonar frá 2009, Lærdómstími ævin er, sem fjallar um stórsöngvarann Jón Þorsteinsson, en Jón féll frá fyrr í þessum mánuði.
    55 min
  • Bókverkamarkaðurinn, meiri Skjaldborg
    Bókverkamarkaðurinn í Reykjavík eða Reykjavík Art Book Fair opnar á morgun. Joe Keys og Edda Kristín Sigurjónsdóttir taka á móti okkur í Hafnarhúsinu og segja frá.
    Ásgeir H. Ingólfsson, menningarblaðamaður og menningarsmyglari, sá allar myndirnar á Skjaldborgarhátíðinni um helgina. Í dag flytur hann okkur fyrri pistil af tveimur um upplifun sína af þessari merku hátíð.
    55 min
  • Bíó í beinni, Starafugl
    Joe Bini og Maya Daisy Hawke eru bæði par og samstarfsfélagar, og hafa síðan á tíunda áratugnum fengist við að klippa kvikmyndir. Þau voru heiðursgestir á Skjaldborg í ár og í þætti dagsins kynnumst við þeim betur - ræðum við þau um Grizzly Man og Navalny, myndir sem þau klipptu, og listgreinina sem klippið raunverulega er.
    Vi[ rifjum upp vefrit um menningu sem var upp á sitt besta fyrir um áratug og hristi rækilega upp í íslenskri menningarumræðu. Lóa Björk ræðir við Eirík Örn Norðdahl um Starafugl.
    55 min
  • Hús fundur, Skjaldborg, versta plata í heimi
    Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði í sautjánda sinn um helgina, og við ætlum að hefja Lestina í dag á því að taka stöðuna á skipuleggjendum hátíðarinnar.
    Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, fjallar um hljómsveitina The Shaggs. Fyrsta plata þeirra, The Philosophy of the World, kom út seint á sjöunda áratugnum og þykir ýmist meistaraverk, eða ein versta plata allra tíma.
    Við heimsækjum Gallerý Port sem er flutt í glænýtt húsnæði við glænýja götu í Reykjavík. Gallerý Port er listamannarekið gallerý og um þessar mundir stendur yfir sýning Narfa Þorsteinssonar, Hús fundur.
    55 min
  • Hljóðfærasafn Tryggva Hansen, ættarmót, Fallout-rýni
    Tryggvi Hansen hefur um áratuga skeið lagt stund á myndlist, torfhleðslu, og tónlist, en hann er mikill áhugamaður um þjóðhætti, þjóðfræði, sögu og heimspeki. Við kíkjum í heimsókn til Tryggva á Gufunesi, ræðum við hann um lífið og listina, og skoðum hluta úr hljóðfærasafni hans.
    Brynja Hjálmsdóttir spilaði Fallout tölvuleikinn á sínum tíma. Nú hafa verið gerðir samnefndir sjónvarpsþættir byggðir á leiknum, sem gerast eftir 200 ár og kjarnorkustyrjöld. Brynja rýnir í þættina.
    Við kíkjum líka í Ásmundarsal og ræðum við Önnu Margréti Ólafsdóttur sem er með opna vinnustofu í Gryfjunni. Hún er að rannsaka ættarmót og vill endilega spjalla við sem flesta um málið. Einnig leitar hún að fólki sem gæti tekið það að vera í ættarmótsnefnd, en hún sér fyrir sér að halda ættarmót næsta sumar.
    1 hr 3 min
  • Stafræna fallöxin, gervigreindarmeðferð, ástin sigrar allt
    Glamúrinn á hinu víðfræga Met Gala-kvöldi í New York í síðustu viku hefur farið öfugt ofan í netverja síðan í síðustu viku. Myndir af stórstjörnum í skrautlegum og íburðarmiklum tískufatnaði fara um miðlana eins og eldur í sinu, og er gjarnan stillt upp andspænis myndum af hryllingi stríðsátaka og hungursneyðar. Nú er kallað eftir því að við blokkerum stjörnur og áhrifavalda á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hvers vegna?
    Baldur og Erla Hlín kynntust í djasshljómfræðitíma í MÍT, og stofnuðu í kjölfarið hljómsveitina Amor Vincit Omnia, sem kemur til með að senda frá sér sitt fyrsta lag á föstudaginn. Við tökum púlsinn á Baldri og Erlu, og frumflytjum lagið.
    Gervigreindin færist inn á sífellt fleiri svið lífs okkar, það getur bæði vakið spennu og forvitini. Í sumum tilfellum vekur það upp siðferðislegar spurningar eða jafnvel ótta. Í dag er hægt að leita sér hjálpar við andlegum kvillum sínum, sækja meðferð hjá gervigreindarspjallmennum sem hafa þá sérhæfingu að leiða fólk í gegnum allskonar sjálfsvinnu eða þerapíu. Og ein slík þjónusta er á vegum íslendings, Gunnars Jörgens Viggósonar og heitir Heartfelt services.
    57 min
  • Baby Reindeer, Hugsanlegur garður
    Bresku Netflix þættirnir Baby Reindeer, úr smiðju skoska grínistans Richards Gadd, hafa verið á allra vörum síðan þeir litu dagsins ljós fyrir rúmum mánuði, enda lang vinsælustu þættirnir á þessari stærstu streymiþjónustu heims. Guðrún Elsa Bragadóttir kemur í heimsókn og ræðir við okkur um þessa athyglisverðu þætti og átökunum sem hafa einkennt umræðuna í kringum þá.
    Við heimsækjum höggmyndagarð Myndhöggvarafélagsins á Nýlendugötu og ræðum við Agnesi Ársælsdóttur myndlistamann. Hún er hætt að persónugera plöntur. Gestum sýningarinnar Hugsanlegur garður er boðið að stíga inn í plöntufrumu og búa til fræbombu. Og með fræbombunni geta gestir haft áhrif á gróður í borgarlandslaginu.
    Mort Garson - Swingin' Spathiphyllums
    Mort Garson - A Mellow Mood for Maidenhair
    Mort Garson - Symphony for a Spider Plant
    Harry Nilsson - One
    The Association - Never My Love
    Bee Gees - I Started A Joke
    58 min