Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Daglega heimsendagangan, Dætur Olfu, aðeins meira um Eurovision
    Við höldum áfram að velta fyrir okkur umræðunni í kringum Eurovision. Á að sniðganga? Eða ekki? Bjarni Daníel rölti út í Kringlu og tók púlsinn á gestum og gangandi.
    Kolbeinn Rastrick fór að sjá myndina Four Daughters sem nú er sýnd í Bió Paradís, en hún hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda. Myndin segir sögu mæðgna frá Túnis og er í leikstjórn Kaouther Ben Hania.
    Í Tjarnabíói annað kvöld fara fram útgáfutónleikar, þar sem plötunni Our Daily Apocalypse Walk verður fagnað, en hún kom út um miðjan september í fyrra. Platan er innblásin af draumadagbók Maríu Carmela, MSEA, sem hún hélt utan um í heimsfaraldrinum - hún kíkti í heimsókn fyrr í dag og sagði frá.
    53 min
  • Hamingjan á Instagram, Pan-Arctic Vision, endalokin nálgast
    Olga Maggý Winther og Cristina Agueda eru dansnemar á þriðja ári við Listaháskóla Íslands. Seinna í þessari viku munu þær, ásamt bekkjarfélögum sínum, flytja tvö dansverk á útskriftarsýningu í Laugarnesinu. Þær segja okkur betur frá.
    Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, flytur pistil um tónlistarkeppnina Pan-Arctic Vision. Keppnin er svipuð Eurovision í sniði en ólík að því leyti til að hún er yfirlýst pólitísk og hafnar hugmyndum um þjóðríkið og landamæri, en miðjusetur jaðarett þjóðbrot á norðurslóðum.
    Gerir vera á Instagram okkur hamingjusamari? Er hægt að vera til án þess að eiga Instagram aðgang? Vigdís Hafliðadóttir, grínisti og söngkona hljómsveitarinnar Flott var að skrá sig inn á miðilinn í fyrsta skipti, langt á eftir flestum öðrum. Við leitum svara við þessum stóru spurningum hjá henni.
    57 min
  • Vargöld í rappheimum: Drake & Kendrick, list í heita pottinum
    Sjaldan hefur verið jafn mikilvægt að opna Genius.com til að skilja rapptexta, skilja samhengi. Það er beef í rappheimum Vestanhafs, og að þessu sinni eru það Kendrick Lamar og Drake sem fljúgast á. En hvers vegna eiga þeir í útistöðum? Hvað gerðist? Hvar endar þetta? Við kryfjum ríginn milli Drake og Kendrick ásamt Gissuri Ara sem er búinn að vera fylgjast afar grannt með málum.
    Að einhverju leyti er hundasundið orðið nokkuð hversdagslegt. Ég ranka reglulega við mér og spyr mig: „hvað er ég eiginlega að gera og hvernig á ég að fara að því?“Svo segir í kynningartexta fyrir myndlistarsýninguna “Á tæpasta vaði” sem opnuð var á fimmtudaginn í síðustu viku. Um er að ræða samsýningu sjö ungra listamanna - en það sem er óvenjulegast við þessa sýningu er sennilega staðsetningin. Við höldum út fyrir hvíta veggi gallerýsins, út í bleytuna, í dáðasta almenningsrými þjóðarinnar, sundlaugina. Vesturbæjarlaug nánar tiltekið.
    56 min
  • Stúdentamótmæli, Skvíz, Draumar, konur og brauð
    Bandaríkin búa yfir langri og djúpri sögu stúdentamótmæla, og nú stendur yfir sérstaklega áberandi mótmælaalda. Stúdentar víða um landið hafa slegið upp tjaldbúðum og krefjast þess að skólayfirvöld rjúfi tengsl við Ísrael. Emil Dagsson er doktorsnemi í hagfræði, og stundar nú rannsóknir við Brown háskóla í Providence í Rhode Island fylki. Hann fór yfir stöðuna með okkur.
    Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar, hefur verið að fylgjast með sjónvarpsþáttunum Skvíz, en um er að ræða nýja örseríu frá Sjónvarpi Símans.
    Um þessar myndir er myndin Draumar, konur og brauð í sýningu í Bíó Paradís.
    Myndin fléttar saman viðtölum við leikinn söguþráð; sagan af sýni sem þarf að sækja fyrir Hafrannsóknarstofnun og handrit sem þarf að drífa sig að klára fyrir Sólstöðuhátíð á Arnarstapa, fléttast saman við heimsóknir á kaffihús sem rekin eru af konum víðsvegar um landið.Lóa Björk fór í bíó og ræddi við aðstandendur myndarinnar.
    Lagalisti:
    The Beach Boys - Student Demonstration Time
    Emitt Rhodes - Somebody Made For Me
    slummi - trsx
    56 min
  • Fimm fræknu á Fimmvörðuhálsi, ex.girls klára verkið
    Við ætlum í fjallgöngu. Fjallgöngu sem mögulega breytir öllu. Fimm vinkonur, fimm fræknar, fóru yfir Fimmvörðuháls seinasta sumar. Upptakan hefur setið ónsert í tölvunni síðan í júlí í fyrra. En nú er kominn tími til að skoða hvað gerðist þegar Fimmvörðuháls varð að Everest.
    Hljómsveitin ex.girls er í hópi áhugaverðustu rafsveita Reykjavíkursenunnar, og eftir margra ára vinnu leit fyrsta plata þeirra í fullri lengd dagsins ljós á seinni hluta síðasta árs. Platan heitir Verk og á henni leitast sveitin við að varpa ljósi á þetta mannlega og þetta hversdagslega, þetta grámyglulega, reglubundna, fallega og þetta íslenska. Guðlaugur og Tatjana litu við í hljóðveri í dag til að klára verkið.
    Lagalisti:
    Feel - Robbie Williams
    Tuscan Leather - Drake
    Jammin'- Bob Marley
    Buffalo Soldier - Bob Marley
    Fjallganga - Egill Ólafsson
    ex.girls - Æð
    ex.girls - 90 Oktan
    ex.girls - Hundrað í hættunni
    ex.girls - Vont er það venst
    ex.girls - Innri ytri
    ex.girls - Drepa mann
    ex.girls - Manneskja
    ex.girls - Halda áfram
    59 min
  • Gullslegnir útlagar, DJ Shadow, listamenn í forsetaframboði
    Listafólkið Snorri Ásmundsson og Elísabet Jökulsdóttir eiga það sameiginlegt að hafa boðið sig fram til embættis forseta Íslands. Snorri árið 2004 og Elísabet árið 2016. Elísabet stofnaði Mæðraveldi og fór á puttanum að safna undirskriftum, Snorri lenti í fjölmiðlaskandal sem sneri að fortíð hans. Að gefnu tilefni rifjum við upp framboðstímana.
    Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, fjallar um bandaríska plötusnúðinn DJ Shadow, sem hefur boðað komu sína hingað til lands í sumar.
    Útlagar eftir Einar Jónsson þykir brautryðjendaverk í íslenskri höggmyndasögu. Verkið hefur staðið við Hólavallakirkjugarð, á horni Hringbrautar og Suðurgötu, í um sextíu ár. Í síðustu viku var styttan spreyuð með gullhúð. Við ræddum málið við Jón Proppé, listheimspeking og gagnrýnanda.
    56 min
  • Fórnarlamb í einkaþotu, Vangadans, Hljóðið, Einskonar ást
    Hljóðið nefnist ný tónlistarhátíð sem verður haldin í miðbæ Reykjavíkur í fyrsta sinn síðar í vikunni. Viðburðurinn er hugsaður sérstaklega fyrir ungmenni, og skipulagður af þeim Önnu Eir Uggadóttur, Atlas Njálssyni og Hróa Sigríðar sem öll eru í tíunda bekk. Við slógum á þráðinn til þeirra til að forvitnast um framtakið.
    Á dögunum sendi Taylor Swift frá sér plötuna Tortured Poets Department. Platan sló met á Spotify og var mikið lagt í markaðssetningu hennar. Við veltum fyrir okkur póstfeminisma og fórnarlambinu á einkaþotunni með Katrínu Pálma Þorgerðardóttur.
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýja íslenska kvikmynd, Einskonar ást.
    Vinirnir Hákon Örn Helgason og Inga Steinunn Henningsdóttir, sviðshöfundar og grínistar, kíktu í heimsókn og sögðu frá uppistandssýningunni Vangadans sem þau verða með í Þjóðleikhúskjallaranum á föstudaginn.
    56 min
  • Krakkaveldi x Lestin
    Í tilefni að setningu Barnamenningarhátíðar tekur Krakkaveldi við stjórnartaumunum í Lestinni í dag. Væb, Halldóra Geirharðs, Eurovision-sniðganga og pistill um fangelsismál eru meðal þess sem krakkarnir bjóða upp á.
    Borghildur, Sóley og Margrét tóku viðtal við bræðurna Matta og Hálfdán en saman eru þeir í hljómsveitinni VÆB. Hvað er uppáhalds bragðarefurinn þeirra? Hvernig gengur þeim að vinna saman? Og hver er apinn?
    Fangelsi eru stofnanir sem ætlað er að refsa og endurhæfa einstaklinga sem hafa framið glæpi. En hver er raunveruleiki málsins? Jakob Friðrik, pistlahöfundur, veltir fyrir sér málefnum fanga í þætti dagsins.
    Halldóra Geirharðsdóttir er ein ástsælasta leikkona landsins. Yrsu langaði mjög mikið að tala við hana um leiklist og fá hjá henni góð ráð.
    Nína leiðir umræður um Eurovision og sniðgöngu. Á Ísland að taka þátt í keppninni? Á að meina Ísrael þátttöku? Á maður að fylgjast með? Nína, Yrsa, Jakob og Margrét ræða þessi mál í þaula.
    56 min
  • 300 ára Kant, ný Tónlistarmiðstöð, krakkar stýra Lestinni
    Fáir hafa haft jafnmikil áhrif á vestræna heimspeki og Immanuel Kant, og í dag eru einmitt þrjú hundruð ár frá fæðingu hans. Emma Björg Eyjólfsdóttir og Björn Þorsteinsson heimspekingar líta við í tilefni dagsins.
    Barnamenningarhátíð hefst í vikunni, og til að fagna því verður umsjón Lestarinnar í höndum Krakkaveldis á morgun. Við heyrum hljóðið í fjórum ungum útvarpsmönnum.
    Á morgun verður opnuð við Austurstræti ný Tónlistarmiðstöð, sem hefur það markmið að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs. Miðstöðin sameinar undir einum hatti Tónverkamiðstöð, Útón og nýstofnað Inntón. Við kíktum í heimsókn og ræddum við Maríu Rut Reynisdóttur, framkvæmdastjóra miðstöðvarinnar.
    56 min
  • Herbergið hennar Tove, rappstyrjöld, Juno Paul
    Juno Paul er listamannsnafn tónlitstarmannsins Andra Franz Baldvinssonar, sem skaust fram á sjónarsviðið á síðasta ári. Andri hefur verið áberandi í reykvísku grasrótarsenunni undanfarið, og nú styttist í útgáfu á hans fyrstu plötu.
    Það standa yfir miklar deilur í rappheimum vestanhafs þessa stundina, en Kendrick Lamar og Drake hafa meðal annars átt í útistöðum upp á síðkastið. Þeir hafa gripið til þess að kveðast á, komið skotum hvor á annan með grimmilegum níðvísum, diss-lögum. Sævar Andri Sigurðarson fer yfir stöðuna og segir frá sögu diss-lagsins.
    Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og þýðandi hefur þýtt tvær bækur eftir danska höfundin Tove Ditlevsen. Um þessar myndir er í sýningu myndin Tove's værelse, í Bíó Paradís, þrúgandi stofudrama byggt á bók eftir Tove. Við ræðum myndina og líf þessarar merkilegu skáldkonu.
    59 min