Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Lestin vaknar & hugsjónaskáldskapur Octaviu E. Butler
    Við höldum áfram að rýna í hugarfarsbreytingar og tískustrauma á samfélagsmiðlum. Við ræðum nú við hlaðvarpsþáttastjórnandann Bergþór Másson, um feminisma, meninisma, andleg málefni og peninga.
    Allt sem þú snertir - breytirðu; allt sem þú breytir - breytir þér; breytingin er hinn eini varanlegi sannleikur; guð er breytingin sjálf. Nokkurn veginn svona gætum við þýtt eitt fleygasta vers bandaríska rithöfundarins Octaviu E. Butler, sem birtist í bókinni Parable Of The Sower frá 1993. Um er að ræða dystópíska vísindaskáldsögu sem á í óþægilegu samtali við okkar samtíð, og hefst sumarið 2024.
    Lagalisti:
    Ike White - Changin’ Times
    Dorothy Ashby - Come Live With Me
    Erik Bo Jonsson & The Northern Lights - This Time Around
    Apples - Time For Me To Go
    56 min
  • GDRN finnur sig, Aldrei fór ég suður-áhrifin, rappari frá St. Louis
    Við hringjum vestur á Ísafjörð og ræðum við Matthildi Helgadóttur Jónudóttur. Hún er ein þeirra fjölmörgu Ísfirðinga sem gera það kleift að tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, verði að veruleika.
    GDRN, Guðrún Ýr Eyfjörð, sendi frá sér nýja plötu í síðustu viku, Frá mér til þín. Platan er poppuð og hress. Hún varð til skömmu eftir fæðingarorlof Guðrúnar. Á því tímabili fattaði hún að henni er slétt hvað öðrum finnst.
    Að lokum heyrum við í Þórði Inga Jónssyni, sem ræddi nýverið við rapparann 3300 Grim frá St. Louis.
    56 min
  • Vondi hirðirinn, vorið, Lucky Lo
    Vondi hirðirinn eru nýjir þættir úr smiðju Friðgeirs Einarssonar sem frumfluttir verða um Páskana á Rás 1. Við spjöllum við hann um hluti og tiltekt og drasl. Konráð sonur hans er með í för, kominn í páskafrí.
    Við rifjum líka upp innslag frá árinu 2019, þar sem Eiríkur Guðmundsson veltir fyrir sér vorinu. Var íslenska vorið fundið upp í Kaupmannahöfn? Kemur vor á Íslandi? Eru fjórar árstíðir?
    Að lokum segir Katrín Helga Ólafsdóttir okkur frá Lucky Lo, tónlistarkonu sem hún heldur mikið upp á.
    55 min
  • Falsspámenn, tónlistarunnandinn Marc, rýnt í Dune: Part 2
    Lóa opnar Biblíuna og rifjar upp Guð sem hún lærði um í Sunnudagaskólanum. Hvað á hann sameiginlegt með þeim Guð sem er í tísku á samfélagsmiðlum núna. Guð sem er minnst á í sömu andrá og vöðvar og völd?
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, fór á Dune: Part 2 og rýnir nú í verkið.
    Marc Wilde er þýskur tónlistaráhugamaður, sem skrifar greinar fyrir veftímaritið Kaput í hjáverkum. Í gær tók hann viðtal við Bjarna Daníel, sem verður hluti af umfjöllun hans um íslensku tónlistarsenuna - en í dag snerum við hlutverkunum við.
    Lagalisti:
    Kim Gordon - I’m A Man
    Robin Ward - Dream Boy
    Spacestation - Fokking lagið
    Mammút - Prince
    Kvikindi - Úthverfi
    Trailer Todd - Skjálfhent
    Adrianne Lenker - Free Treasure
    56 min
  • Bandaríkjaher á tónlistarhátíð, spjallmenni vill ekki hvítt fólk, Helgi lærir að kaupa skó
    Nýtt spjallmenni Google, Gemini, varð óvænt að að bitbeini í menningarstríðinu. Ástæðan var sú að spjallmennið virtist varla vera fært um að framleiða myndir af hvítu fólki. Við reynum að skilja af hverju og fáum fleiri fréttir af gervigreind.
    Tónlistarhátíðin South By Southwest eða SXSW fór fram í borginni Austin í Texas um helgina sem leið, og hefur verið haldin þar árlega síðan 1987. Í ár vakti athygli að fjöldi listafólks ákvað að sniðganga hátíðina vegna tengsla hennar við bandaríska herinn og vopnaframleiðandann RTX (áður Raytheon), sem hefur bein tengsl við Ísraelsher.
    Helgi Grímur Hermannsson hefur lengi haft þann ósið að kaupa sér alltaf of stóra skó. Hann veltir fyrir sér því sem við lærðum aldrei á barnsaldri, og því sem við lærðum kannski en reyndist svo vera tóm vitleysa.
    55 min
  • Tannlæknastofan, upphaf ræflarokksins, leikhúsfólk framtíðar
    Í úthverfi í Kópavogi er lítil tannlæknastofa, sem Bjarni Daníel hefur heimsótt reglulega frá þriggja ára aldri. Við heimsækjum tannlæknastofunna í Lestinni í dag.
    Þessa daganna stendur sviðslistahátíðin Reykjavík Cringe Festival yfir. Hún fer fram í Listaháskóla Íslands og á henni eru útskriftarverk Sviðshöfunda sýnd. Við ræðum við þrjá nemendur sem eiga öll eftir að frumsýna, leikhúsfólk framtíðarinnar, og ræðum leikhús, er það í krísu?
    Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður og einn af pistlahöfundum Lestarinnar, segir frá áhrifamiklum tónleikum bresku nýbylgjusveitarinnar The Stranglers hér á landi seint á áttunda áratugnum.
    Lagalisti:
    DRINKS - Blue From The Dark
    A.C. Marias - Just Talk
    57 min
  • Vampírur á Músíktilraunum og Björk, að sjálfsögðu
    Nú á laugardaginn var íslenska leikritið And Björk of course sýnt í síðasta skipti í Samkomuhúsinu á Akureyri, að minnsta kosti í bili. Næst á dagskrá er að setja verkið upp í Borgarleikhúsinu, eftir Páska. Verkið er skrifað af Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi, leikskáldi og myndlistarmanni, frumsýnt árið 2001 í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. 2004 kom út sjónvarpsmynd, þá var leikstjórn í höndum Lárusar Ýmis Óskarssonar. Og nú er verkið í höndum leikstjórans Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Rúm tuttugu ár eru liðin, hvað hefur breyst? Við ræðum sértrúarsöfnuði og ákallið í verkinu við leikstjórann Grétu og leikkonuna Maríu Hebu Þorkelsdóttur sem fer með hlutverk Ástu í verkinu.
    En við byrjum í Hörpu.
    Það var margt um dýrðir í Norðurljósasal Hörpu síðastlðið laugardagskvöld á Úrslitakvöldi Músíktilrauna, sem haldnar voru í fertugasta sinn í ár, fjörutíu og tveimur árum eftir að þessi merka hátíð var fyrst sett á laggirnar 1982. Sigurhljómsveitin í ár heitir Vampíra, og leikur nístingskaldan, gotneskan svartmálm.
    55 min
  • Fjölheimar, karlmennska á TikTok, hvenær drepur kona mann?
    Við förum í heimsókn í FB og ræðum við sérstakan samfélagsmiðlaráðgjafa Lestarinnar, fatahönnunarnemann Reyni Ólafsson, Við ræðum algórythmann, fyrir-þig síðuna á TikTok, karlmennskuímyndir og hljóð sem borga fyrir mannúðaraðstoð.
    Við höldum áfram að ræða myndina Anatomy of a Fall eða fallið er hátt. Að þessu sinni er það fræðikonan Berglind Rós Magnússdóttir sem veltir vöngum yfir henni.
    Elín Halldórsdóttir hefur verið iðin við tónsmíðar og tónlistarútgáfu undanfarin ár, og hafa nokkur laga hennar hlotið mikla hlustun á streymiveitum, þó mest erlendis. Nýjasta plata Elínar nefnist The Multiverse, fjölheimurinn, fyrirbæri sem hún hefur mikinn áhuga á.
    Lagalisti:
    Brenda Ray - Sweet Romance
    Cleo Sol - Don’t Let Me Fall
    Elín Halldórsdóttir - The Fairy Queen
    Elín Halldórsdóttir - The Multiverse
    Jóhanna Björg M. Írisardóttir - Sorgarsöngur Sædísar (úr Ævintýri Sædísar skjaldböku)
    Elín Halldórsdóttir - Under Your Skin
    Elín Halldórsdóttir - Stay Healthy
    Elín Halldórsdóttir - Save The Children
    Elín Halldórsdóttir - Love Key
    59 min
  • Dune: Part Two, Íslensku tónlistarverðlaunin og verðlaunahátíðir
    Hver er bestur í tónlist? Er það sá sem getur spilað flóknasta gítarsólóið, snúnustu selló-svítuna? Eða hraðasta trommutaktinn? Er það höfundur margslungnasta eða jafnvel lengsta tónverksins, eða söngvarinn sem kemst upp á hæsta flaututóninn? Eða er það sá sem selur flestar plötur - nær mestum fjölda spilana á streymiveitum? Alla þessa þætti getur reynst erfitt að mæla, en þó eru haldnar hátíðir víða um heim um þessar mundir ár hvert, verðlaunahátíðir sem leitast við að lyfta því upp sem þótti skara fram úr á nýliðnu tónlistarári.
    Við mælum okkur mót við framkvæmdarstjóra Nexus til þess að ræða Dune: Part Two. Finnst Dúnu aðdáendum myndin góð? Hverju úr bókinni er sleppt? Hvaða áhrif hefur það á söguna?
    Lagalisti:
    Björk, Rosalía - Oral
    Kári - Something Better
    ex.girls - Manneskja
    hist og - Umlíðun
    Sleepyhead - Passion Pit
    58 min
  • Hvítur feminismi, þjóðlagahryllingur, Elvis-brúðkaup
    Vatnið brennur er nýjasta skáldsaga Gunnars Theodórs Eggertssonar. Hér er á ferðinni tónlistarhrollvekja sem kannar samband tónlistar og ofbeldis, meðal annars, og er innblásinn að hluta af framsækinni sænskri þjóðlagatónlist frá áttunda áratugnum.
    Hjalti Freyr Ragnarsson pistlahöfundur varð nett stressaður þegar hann las fréttir um að það ætti að banna Elvis-eftirhermur í hjónavígslum í Las Vegas.
    Á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna þann 8.mars síðastliðinn var haldinn ganga og samstöðufundur fyrir Palestínu. Af því tilefni ætlum við að velta fyrir okkur hvítum feminisma. Eru konur ekki frjálsar fyrr en allar konur eru frjálsar. Sólveig Ásta Sigurðardóttir þekkir sögu þessa hugtaks.
    Lagalisti:
    Pugh Rogefeldt - Här Kommer Natten
    Spjärnsvallet - Pojkarna
    Anders Rosen & Roland Keijser - Springlek
    56 min