Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Unaðsdalur Kiru Kiru, Laurie Anderson á TikTok
    Unaðsdalur hlýtur að vera í hópi fegurstu örnefna Íslands og það er því kannski engin furða að Kristín Björk Kristjánsdóttir, Kira Kira, hafi valið það sem nafn á tíundu breiðskífu sína sem kom út á dögunum. En tenging Kristínar við Unaðsdal nær út fyrir fegurð nafnsins því hún á ættir að rekja þangað.
    Við skoðum hljóðbrot sem er vinsælt á samfélagsmiðlinum TikTok um þessar mundir, þar sem listakonan Laurie Anderson kemur við sögu. Lóa Björk ræðir málið við Berglindi Maríu Tómasdóttur.
    Lagalisti:
    Kira Kira - Angantýra
    Kira Kira - Ljósbrá
    Kira Kira - Blessast
    Kira Kira - The Night At The Lighthouse P1
    Kira Kira - Blíða, staðfasta afl
    Kira Kira - Kúra Kúra
    Kira Kira - Trúnó & Trausti
    Kira Kira - Love In Such A Way That The Person You Love Feels Free
    Laurie Anderson - O, superman
    Laurie Anderson - Born, never asked
    Laurie Anderson - Strange perfumes
    Diabolus in Musica - Rúmba í baði
    56 min
  • Innviðir illskunnar, Hvalasöngur, dansarinn Luis
    Hvers vegna er þetta orð 'innviðir' út um allt núna? Hvers vegna eru vinstrimenn farnir að tala eins og hægrimenn í útlendingamálum? Við rýnum í orð Kristrúnar Frostadóttur með Eiríki Bergmann.
    Anahita Babaei komst í fréttir á síðasta ári þegar hún dvaldi í þrjátíu klukkustundir í mastri hvalveiðiskips í mótmælaskini. Hún tilheyrir samtökunum Hvalavinir en þau, auk Ungra Umhverfissinna, standa fyrir viðburðinum Hvalasöngur í Tjarnarbíói á laugardaginn kemur.
    Erna Kanema Mashinkila hefur upp á síðkastið flutt pistla og viðtöl sem tengjast birtingarmyndum litaðra íslendinga á leiksviðum og víðar. Að þessu sinni, í þriðja þætti af Sjáumst og heyrumst, ræðir hún við dansarann Luis Lucas.
    Olga Guðrún Árnadóttir, Ólafur Haukur Símonarson - Það er munur að vera hvalur
    Mac DeMarco - Change The World (Eric Clapton Cover)
    Alex G - Whale
    Cocteau Twins - Whales Tails
    Jessica Pratt - Life Is
    58 min
  • Ízleifur, heterótópía vitavarðarins, afþreyingargildi mannshvarfa
    Við ræðum við ritstjóra hlaðvarpa hér á Rúv, sem vinnur þessa dagana að nýjum þáttum sem fjalla um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar í Dyflinni árið 2019, í samhengi við vinsældir svokallaðra True-crime hlaðvarpa. Hvernig skal gera gott hlaðvarp sem fjallar um mannshvarf? Og hvað ber að varast?
    Guðrún Úlfarsdóttir býr og starfar í húsi sem er lífsbjörg fólks sem hún mun aldrei hitta; hún er vitavörður.
    Á dögunum kom út fyrsta sólóplata Ízleifs, en hann hefur verið afkastamikill pródúser í hipphopp senunni um nokkurra ára skeið. Við hringjum til Berlínar og skyggnumst bak við tjöldin hjá Ízleifi.
    Lagalisti:
    Mukka - Sunday Solo Volume 3
    Elori Saxl - Moss II
    Uriel Villalobos - Tloque Nahuaque
    Ízleifur - 10 Djöflar
    Ízleifur - Og hvað?
    Ízleifur - Síminn dauður
    Ízleifur, GDRN - Ekki bíða
    Ízleifur - Þegar allir eru farnir
    Ízleifur, Daniil - Bossed Up
    56 min
  • Lyktarsafnið, LungA kveður, Fullt hús
    Við kíkjum á fimmtu hæð Grófarhússins og kynnum okkur Lyktarsafnið sem er hluti af Stofunni, sem er verkefni í Borgarbókasafninu. Þar hittum við þau Juan Camilo Roman Estrada og Dögg Sigmarsdóttur.
    Listahátíðin LungA var haldin í fyrsta sinn á Seyðisfirði sumarið 2000, og hefur verið stólpi í flóru menningarviðburða á sumrin hér á landi síðan. Í ár verður hátíðin haldin í tuttugasta og fimmta, en jafnframt, síðasta sinn. Við fáum að heyra ástæðurnar fyrir því að skipuleggjendur hafi ákveðið að setja punkt.
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, fór að sjá Fullt hús í bíó, nýja íslenska kómedíu úr smiðju Sigurjóns Kjartanssonar.
    Lagalisti:
    Peter Ivers - Eighteen and Dreaming
    Teitur Magnússon - Allt líf
    The Free Design - Love You
    K.óla - Bless Bless
    TSS - Þér ég ann
    57 min
  • Football Manager, Damo Suzuki og CAN, Besti leikari í aðalhlutverki
    Japanski tónlistarmaðurinn Damo Suzuki féll frá á dögunum, 74 ára að aldri, en hann var líklega þekktastur sem söngvari hinnar áhrifamiklu þýsku súrkálsrokksveitar CAN á fyrri hluta áttunda áratugarins. Magnús Tryggvason Eliassen lék á tónleikum með Suzuki í Reykjavík árið 2012.
    Á næstunni mun Pálmi Freyr Hauksson fara yfir tilnefnda í helstu verðlaunaflokkum Óskarsverðlaunanna. Í dag skoðar hann flokkinn Besti leikari í aðalhlutverki.
    Football Manager er afar vinsæll tölvuleikur og ekki alls ólíklegt að fótboltaaðdáandi í lífi þínu spili hann, jafnvel mjög mikið. Orri Fannar Þórisson er ötull spilari leiksins, og komst í fréttir á dögunum eftir að hann var ráðinn sem þjálfari Knattspyrnufélags Vesturbæjar.
    Lagalisti:
    CAN - Vitamin C
    CAN - Father Cannot Yell
    CAN - Mushroom
    CAN - Paperhouse
    CAN - Vitamin C
    CAN - Peking O
    CAN - Spoon
    Damo Suzuki & Black Midi – Live at the Windmill Brixton
    Sucks to be you, Nigel - Splitta G-inu
    Spilverk þjóðanna - Orðin tóm
    57 min
  • Skært lúðar hljóma, blaðamaðurinn Jakob Bjarnar
    Við höldum áfram umfjöllun um íslenskar grasrótarsafnplötur sem við hófum í síðustu viku. Á árunum 1987-1991 stóð Erðanúmúsík, rassvasafyrirtæki Dr. Gunna, fyrir útgáfu á safnplöturöðinni Snarl.
    Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar býður í kaffi á kaffistofu á Suðurlandsbrautinni. Við ræðum við hann um blaðamennsku og hvaða ógnir steðja að starfsgreininni.
    Lagalisti:
    Kátir piltar - Feitar konur
    Kátir piltar - Heyrðu
    Kátir piltar - Killerinn
    Sogblettir - 5. gír
    Snorra-Gissur Gylfason frá Bólu - Dóp & Kaffi
    The Daisy Hill Puppy Farm - Napalm Baby
    Gult að innan - Gefðu mér frið
    Daisy Hill Puppy Farm - Heart Of Glass (Blondie Cover)
    Parror - Partý
    Sykurmolarnir - Skalli
    Paul & Laura - Heilagur maður
    Afródíta - Taktu mig Karíus
    16 Eyrnahlífabúðir - Betri maður
    Bless - Sunnudagamánuður
    Kanye West, Ty Dolla $ign - Carnival
    56 min
  • Cyber, Á láði og legi, ferðataska Kim Gordon
    Við kíkjum í bollukaffi til hljómsveitarinnar Cyber og veltum fyrir okkur hvað hefur breyst síðan hljómsvetin var stofnuð í MH, líklega árið 2012.
    Vinirnir Sigurgeir og Almar bjuggu til nýtt borðspil, sem heitir Á láði og legi, við heyrum allt um það. Og svo hlustum við á nýtt lag með Kim Gordon.
    Cyber - starry night
    Cyber - I'm yo new stepmom
    Cyber - The Event
    Cyber - PORN STARR
    Cyber - NO CRY
    Spilmenn Ríkínís - Strengleikar
    Spilmenn Ríkínís - Eitt sinn fór ég yfir Rín
    Spilmenn Ríkínís - Fyrstu vordægur
    Spilmenn Ríkínís - Syng mín sál
    Spilmenn Ríkínís - Bóndans dóttirin
    Spilmenn Ríkínís - Urtagarðurinn
    Spilmenn Ríkínís - Listhúsakvæði
    Kim Gordon - Bye Bye
    Kim Gordon - Paprika Pony
    Kim Gordon - Sketch Artist
    57 min
  • Joni & Helga Möller, ástarbréf, grasrótarsafnplötur
    Við fáum ástsæla tónlistarkonu í heimsókn til þess að ræða aðra ástsæla tónlistarkonu. Þær hófu tónlistarferla sína á sama hátt, með kassagítar sem þær kenndu sér sjálfar á. Að troða upp á kaffihúsum og börum, ein á Íslandi en hin í Kanada.
    Það líður senn að Valentínusardeginum, degi elskenda, og Guðrún Úlfarsdóttir er að velta fyrir sér ástinni. Hún flytur okkur pistil um eitthvað: bréf, frímerki, minningar, og ást sem felst í orðum og hlutum.
    Hvað er safnplata? Tímahylki? Ljósmynd af tónlistarsenu? Við heyrum fyrsta innslag af nokkrum um íslenska grasrótarsafnplötuútgáfu frá níunda áratugnum til dagsins í dag.
    Lagalisti:
    Joni Mitchell - Both Sides Now (At Newport)
    David Bowie - Letter To Hermione
    Gia Margaret - Lakes
    múm - Prophecies & Reversed Memories
    Múzzólíní - Dýrin í Hálsaskógi
    Egó - Breyttir tímar (úr Rokk í Reykjavík)
    Sigur Rós - Hoppípolla
    Of Monsters And Men - Little Talks
    California Nestbox - Anna í Grænuhlíð
    Tiny Cali Girls - Friðarsúludans
    Dr. Gunni - Jóhann risi
    Vonbrigði - Mannskepnur
    Fan Houtens Kókó - Sundmaðurinn
    S.H. Draumur - Sveifluháls
    WAMA EMA - Let’s Dancc
    Ást - Listamenn
    57 min
  • Torgið, tvöföld meðvitund, skátauppgjör
    Sigríður Halldórsdóttir ræðir við okkur um nýja sjónvarpsþætti í dagskrá RÚV, umræðuþættina Torgið. Í gærvköldi fór þriðji þáttur í loftið og snerist hann um málefni innflytjenda og flóttafólks. Yfirskrift þáttarins var inngilding. Málefnið passaði vel við daginn, sem hófst á skólaverkfalli Hagskælinga, sem héldu niður á Austurvöll með kröfubréf í 6 liðum.
    Erna Kanema Mashinkila heldur áfram að velta fyrir sér birtingarmyndum í örþáttaröðinni Sjáumst og heyrumst. Að þessu sinni er hún með hugan við tvöfalda meðvitund.
    Patrekur Björgvinsson var eitt sinn skáti, en verður hann ávalt skáti?
    55 min
  • Nytjamarkaðurinn, Marvaða, rýnt í Andrésblað
    Við byrjum á því að gera okkur ferð á nytjamarkað í Kópavogi og spyrjum viðskiptavini stóru spurningarinnar, hverju ertu að leita að?
    Hjalti Freyr Ragnarsson nældi sér í nýjasta Andrés Andar-blaðið á dögunum. Hann rýnir í gripinn.
    Marvaða Creations er sköpunarkjarni og tónlistarútgáfa sem hóf störf í Reykjavík á síðasta ári. Arnbjörg María Danielsen segir okkur frá starfseminni.
    Lagalisti:
    neonme - Yet again
    Kónguló, neonme - The Water In Me
    Varna GL - Pilarngar
    neonme - Princess
    Varna GL - Celebration
    neonme - Wait
    Jonathan Hodge - Airwaves
    Kamiya - MU Cristal
    World Brain - The Pangaean Anthem
    55 min