Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Demó-dagar við Rafstöðvarveg, Húsó, er gott að fyrirgefa?
    Í dag var opnað fyrir skráningu í Músíktilraunir 2024. Í aðdraganda keppninnar í ár verður boðið upp á svokallaða demó-daga, þar sem ungu tónlistarfólki gefst kostur á að taka upp demó af lögunum sínum með aðstoð starfsfólks.
    Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, hefur verið að horfa á Húsó, nýja íslenska þætti sem eru í sýningu á RÚV.
    Er alltaf gott að fyrirgefa? Hvað hafa valdatengsl með fyrirgefningu að gera? Og hvað er fyrirgefningarlíkan Nýja-testamentisins. Elín Pjetursdóttir er doktorsnemi í heimspeki í Háskóla Íslands og hún er að skoða fyrirgefningarkröfuna sem hún telur hafa aukist eftir seinni bylgju #MeToo.
    Lagalisti:
    Jakobínarína - This Is An Advertisement
    Mammút - Rauðilækur
    Dúkkulísurnar - Svart-hvíta hetjan mín
    BKPM - Bílalag 1 (Yaris)
    Juno Paul - Brokeboi
    Fókus - Stalker
    Einakróna - safnast upp (í mér)
    Benni Hemm Hemm & Kórinn - Valið er ekkert
    Beyoncé - Sorry
    Laufey - From The Start
    56 min
  • Mennirnir sem ég elska, Justice, áköf mæðrun
    Eftir vægt dramakast í líkamsræktarstöð í gærkvöldi fór Bjarni Daníel að hugsa um alla mennina sem hann elskar, en hefur hægt og rólega verið að fjarlægjast.
    Davíð Roach, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í feril franska raftvíeykisins Justice í aðdraganda plötu þeirra Hyperdrama, sem er væntanleg til útgáfu með vori.
    Við endurflytjum innslag Lóu Bjarkar frá því á síðasta ári, þegar hún ræddi við Auði Magndísi Auðardóttur og Önnudís Gretu Rúdólfsdóttur, fræðikonur á menntavísindasviði Háskóla Íslands, um hugtakið áköf mæðrun.
    Lagalisti:
    Trúbrot - My Friend And I
    Mannakorn - Gamli góði vinur
    Alan Parsons Project - Old And Wise
    Justice - Generator
    Justice - Genesis
    Justice - Let There Be Light
    Justice - Phantom pt 2 (soulwax remix)
    Justice - One Night / All night
    Justice - D.A.N.C.E.
    Simian Mobile Disco - Hustler
    Vitalic - My Friend Dario
    Justice vs, Simian - We Are Your Friends
    Dolly Parton - Coat Of Many Colors
    57 min
  • Krýsuvíkurleiðin, Secret Solstice, hafnar.haus í Mengi
    Það hefur verið svolítið vont veður undanfarið. Í dag fóru margir fyrr heim úr vinnu vegna veðurs, alla vega hér á skrifstofunni okkar. Veðrið spilar líka stórt hlutverk í lífi Grindvíkinga um þessar mundir; veðrið og færð á vegum.
    Sævar Andri Sigurðarson, tónlistarmaður, hefur verið að velta fyrir sér tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem fór fram í Laugardalnum árin 2014-2019, en á dögunum bárust fréttir af því að bandaríska thrash-metal hljómsveitin Slayer hefði sigrað dómsmál gegn aðstandendum hátíðarinnar.
    Hafnar.concert series er tónleikaröð sem José Luis Anderson hefur skipulagt í samstarfi við Hafnar.haus og tónleikastaðinn Mengi. Við kynnum okkur málið og kynnumst jafnframt tónlistarkonunni Ronju Jóhannsdóttur.
    Lagalisti:
    Slayer - War Ensemble
    SSSól - Vertu þú sjálfur
    SOPHIE - Face Shopping
    Belle & Sebastian - If You’re Feeling Sinister
    Slayer - War Ensemble
    Andervel - Canción de cuna
    Knackered - chatbot slang
    ronja - 240p
    ronja - fast-feedforward
    55 min
  • Chicanas, sjónsteypa handa alþingismönnum, Pitchfork á dánarbeðinu
    Nýtt skrifstofuhúsnæði Alþingis, Smiðjan, sem hönnuð er af Studio Granda, hefur vakið nokkuð umtal upp á síðkastið. Sér í lagi sjónsteypan og vír, sem eru áberandi í byggingunni. Við mælum okkur mót við Óskar Örn Arnórsson, arkitekt og skoðum húsið.
    Þórdís Nadia Semichat pistlahöfundur veltir fyrir sér tískufyrirbæri sem á rætur að rekja til Bandarískra kvenna af mexíkóskum uppruna.
    Fyrr í þessum mánuði bárust fréttir af því að bandaríska veftímaritið Pitchfork, sem um tæplega þriggja áratuga skeið hefur ötullega sinnt umfjöllun um nýja tónlist, myndi sameinast lífstílstímaritinu GQ. Sameiningin hefur verið umdeild meðal tónlistargrúskara en við fáum einn slíkan, Árna Matthíasson, til að rýna í fréttirnar með okkur.
    Lagalisti:
    Murders - John Frusciante
    BELLA - BREESE
    Lalo Guerrero - Marihuana boogie
    Cypress Hill - Latin Lingo
    SadGirl - Active & Attractive
    The Flaming Lips - Race For The Prize
    Sonic Youth - Nevermind (What Was It Anyway)
    Sufjan Stevens - Decatur, or, a round of applause for your Step-mother
    Radiohead - Idioteque
    58 min
  • Engar tjaldbúðir, að lýsa íþróttaleik, hver erum við?
    Hver er kúnstin við að lýsa íþróttaleik? Lóa er að velta því fyrir sér vegna þess að hún fékk það verkefni að lýsa klifurmóti í kvöld. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamenn á RÚV, miðla þekkingu sinni á íþróttalýsingum.
    Tjaldbúðir sem hafa staðið á móti Alþingishúsinu við Austurvöll í rúman mánuð voru felldar í síðustu viku. Kyrrsetumótmælunum sem þær hýstu er þó hvergi nærri lokið.
    Við heyrum fimmta og síðasta þátt örseríu Önnu Marsibil Clausen frá 2022, Á samviskunni. Íslensk yfirvöld hafa aldrei beðist afsökunar á eða beinlínis viðurkennt að hafa hafnað gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni sökum menningarlegs uppruna þeirra. Hvort vegur þyngra, orð eða gjörðir?
    Lagalisti:
    Sabreen - On Man
    Kanye West - Selah
    56 min
  • Djöfullegur flautuleikur, þættir um Sigga Hakkara, palestínskar myndir í Bíó Paradís
    Þættirnir A dangerous boy sem fjalla um Sigurð Þórðarson, eða Sigga hakkara, fóru nýlega í sýningu á Stöð 2. Ættingjar eins þolanda Sigurðs, sem er dæmdur kynferðisbrotamaður, lýstu yfir mikilli óánægju með þættina og sérstaklega atriði í þeim þar sem Siggi fer að leiði drengsins, sem tók sitt eigið líf árið 2016. Við ræðum þetta og þau álitamál sem tengjast þáttunum við Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildinnar, og Hrafnhildi Gunnarsdóttur, heimildamyndagerðakonu.
    Sunnudaginn 28. janúar fer fram fyrsta sýning ársins hjá Bíótekinu, samstarfsverkefni Kvikmyndasafns Íslands og Bíó Paradís, en um er að ræða úrval kvikmynda frá Palestínu; tvær stuttmyndir síðdegis og tvær myndir í fullri lengd þegar líður á kvöld. Við ræðum við Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, verkefnastjóra Kvikmyndasafnsins.
    The Piper er nýjasta kvikmynd leikstjórans Erlings Thoroddsen, en hún byggir á þýsku þjóðsögunni um rottufangarann frá Hameln. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í myndina.
    Fairuz - Aloula
    King Crimson - I Talk To The Wind
    1 hr
  • Skoska bókin Poor Things, sjáumst og heyrumst, af hverju er Ísland svona fátækt?
    Fyrir helgi opnaði ný sýning í Nýlistasafninu, sem ber titilinn Af hverju er Ísland svona fátækt? Í sýningunni er nýjum verkum Sæmundar Þórs Helgasonar stillt upp í samtali við valin verk úr safneign safnsins og einlægum spurning um fátækt á Íslandi velt upp.
    Kanema Mashinkila er nýr pistlahöfundur í Lestinni og í dag flytur hún okkur sinn fyrsta pistil úr nýrri seríu, Sjáumst og heyrumst, þar sem hún veltir fyrir sér birtingarmyndum í sviðslistum.
    Og úr leikhúsinu færum við okkur yfir í bíó og bókmenntir. Á dögunum fór Poor Things í leikstjórn Yorgos Lanthimos í sýningu í íslenskum bíóhúsum. En að baki myndinni liggur frábær bók, frá árinu 1992, eftir skoska höfundinn Alisdair Gray. Ingibjörg Ágústsdóttir, dósent í breskum bókmenntum 19. og 20. aldarinnar hitti Gray út í Glasgow á sínum tíma. Við spjöllum við hana um muninn á bókinni og bíómyndinni.
    57 min
  • Tæknispá 2024, tjaldbúðir á helgum stað, sá sem sagði nei
    Við förum á Austurvöll í heimsókn í tjalbúðirnar og ræðum við mótmælendur sem hafa reist þar tjaldbúðir, sem óvíst er hvort fái að standa áfram.
    Benni Hemm Hemm er gestur Önnu Marsibilar Clausen í fjórða þætti af Á samviskunni.
    Að lokum rýnum við í tæknispá fyrir árið 2024, sem Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri, birti í Heimildinni á dögunum.
    Lagalisti
    Al Fajer - Rubbama
    John Friusciante - Song to sing when I'm lonely
    55 min
  • Lúna, tími heimilisþrifa, Á milli
    Við ræðum við Tyrfing Tyrfingsson leikskáld um nýtt verk hans, Lúna, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu á dögunum. Verkið var orðið umdeilt löngu fyrir frumsýningu, vegna þess að í titli þess var nafn manns sem hlotið hefur dóm fyrir kynferðisbrot, verkið hét áður Kvöldstund með Heiðari snyrti.
    Guðrún Úlfarsdóttir er nýr pistlahöfundur í Lestinni. Í sínum fyrsta pistli veltir hún fyrir sér sambandi heimilisþrifa við línulega, kapitalíska tímaskynjun.
    Í október opnaði nýtt listamannarekið gallerý við Ingólfsstræti í miðbæ Reykjavíkur - Á milli. Katerina Spathi er ein þeirra sem sjá um rýmið.
    Lagalisti:
    Norah Jones - Unchained Melody
    Giovanni Venosta - Woman in Late
    The cleaners from venus - I fell in love with a cleaner
    Sault - Air
    Donnell Pitman - Burning Up
    58 min
  • Bölvunin, Eurovision-mótmæli, Frönsk kvikmyndahátíð
    Tæplega 550 íslenskir tónlistarmenn hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem RÚV er hvatt til að sniðgganga Eurovion taki Ísrael þátt í keppninni. Í dag var fékkst það svo endanlega staðfest frá EBU að Ísrael yrði með í keppnni. Töluverð umræða hefur skapast um málið og við tókum stöðuna á mótmælendum fyrir utan Útvarpshúsið í dag.
    Anna Margrét Björnsson hjá Franska sendiráðinu á Íslandi fer yfir dagskrá Frönsku kvikmyndahátíðarinnar sem hefst í kvöld í Bíó Paradís.
    Brynja Hjálmsdóttir, skáld, fjallar um nýútkomna seríu Nathan Fielder og Benny Safdie, sem skartar þeim og Emmu Stone í aðalhlutverki.
    Lagalisti:
    Systur - Með hækkandi sól
    Celebs - Dómsdags dans
    Olga Guðrún, Lay Low - Myndin hennar Lísu
    Guided By Voices - As We Go Up We Go Down
    Sting - Shape Of My Heart
    56 min