Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Fall hjónabandsins, siðfræði fjallgarða, tónleikabrölt
    Við rennum yfir helstu sigurvegara á Óskarnum og svo beinum við sjónum okkar að verðlaunahafanum í flokkinum besta handrit. Það er franska kvikmyndin Anatomy of a Fall, Anatomie d'une chute eða Fallið er hátt. Við veltum fyrir okkur hjónaböndum og kynjajafnrétti, valdi og réttarhöldum og gluggum af tilefni í bókina Communion: The Female Search for Love eftir bell hooks.
    Guðrún Úlfardóttir er landvörður og landfræðinemi og þekkir vel siðfræði fjallgarða. Við fáum að heyra um líkin á Everest og mannætur.
    Það hefur verið vísir að vori í lofti í Reykjavík síðustu daga, dagarnir lengri, bjartari og örlítið hlýrri - og það sama má segja um tónleikalíf borgarinnar, helgin sem leið var alla vega mjög viðburðarík. Bjarni Daníel sá þó nokkuð af hljómsveitum hér og þar í bænum á föstudaginn var.
    54 min
  • Erfitt væb í Söngvakeppninni + besta myndin á Óskarnum
    Við förum yfir atburðarrásina í kringum Söngvakeppnina og þau ólíku sjónarmið sem takast á hvort sniðganga eigi keppninna eða ekki. Við ræðum líka kynþáttafordómana í kommentakerfinu í kjölfar keppninnar og upplifun tveggja kvenna af erlendu bergi af því, þeirra Miriam Petru og Kristínar. Eru kynþáttafordómar að aukast eða eru þeir einungis sýnilegri? Og yrði Bashar Murad einhverntímann nógu íslenskur til þess að sigra Söngvakeppnina?
    Að lokum fáum við lokapistil í Óskarsyfirferð Pálma Freys, hann fer yfir flokkinn besta myndin.
    55 min
  • Gummi Emil í köldum potti, No Other Land, Pálmi sér loks Poor Things
    Við byrjum í bakgarðinum hjá líkamsræktarfrömuðinum Guðmundi Emil sem hefur vakið athygli fyrir áhugaverð myndbönd á samfélagsmiðlum. Og þar höldum við áfram að velta fyrir okkur víkingum og tilhneigingu ungs fólks til að líta til fortíðar eftir svörum við vandamálum nútímans.
    Pálmi Freyr Hauksson var staddur á ferðalagi í Marokkó og átti í stökustu vandræðum með að sjá kvikmyndina Poor Things til að geta fjallað um hana í Óskarsyfirferð Lestarinnar. Nú hefur hann hins vegar séð myndina, og í dag fer hann yfir flokkinn Besta leikkona í aðalhlutverki.
    No Other Land nefnist ný heimildarmynd sem var frumsýnd á Berlinale kvikmyndahátíðinni núna í febrúar. Hún er framleidd af palestínskum og ísraelskum kvikmyndagerðarmönnum, og fjallar um hernumið fjallaþorp á Masafer Yatta svæðinu á Vesturbakkanum. Myndin hefur vakið mikið umtal í kjölfar frumsýningarinnar, ekki síst vegna ræðu sem aðstandendur hennar fluttu þegar þeir tóku á móti verðlaunum fyrir bestu heimildarmynd á hátíðinni en myndskeið af þessari ræðu hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum nýverið.
    59 min
  • Söngvaskáld á SoundCloud, Taugadeildin, Natatorium rýni
    Kolbeinn Rastrick, kvikmyndarýnir Lestarinnar, rýnir í Natatorium, fyrstu mynd leikstjórans og handritshöfundarins Helenu Stefánsdóttur í fullri lengd.
    Á vefsíðunni SoundCloud þrífst blómlegt samfélag ungra söngvaskálda sem eru við það að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Sigríður Langdal er ein þeirra.
    Þórður Ingi Jónsson mælti sér mót við meðlimi Taugadeildarinnar. Um er að ræða goðsagnakennda nýbylgjusveit sem hefur haft mikil áhrif á jaðarrokk hér á landi þrátt fyrir afar stuttan feril.
    Lagalisti:
    neonme, Ilmur - Hvers vegna varst’ ekki kyrr?
    Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varst’ ekki kyrr?
    SoundCloud samtíningur
    hljodmaskinavif - kyrrð (desember lag nr. 19)
    Steinka - skolasund
    Stirnir - Mörgæsastrætó
    Einakróna - Stella
    Laglegt - þessi á rennur til sjávar (voice memo demo)
    róshildur - keyra/bremsa
    Laglegt - sárið (voice memo demo)
    Einakróna - safnast upp (í mér)
    hljodmaskinavif - uppí rúmi (desember lag nr. 22)
    Lúkas - Project 12
    HáRún - Enda alltaf hér (upptaka af Músíktilraunum 2022)
    Laglegt - sarið (voice memo demo)
    Taugadeildin - Lög af samnefndri stuttskíf
    56 min
  • Ósýnilegt landslag framtíðar, sjónarhorn Skúla, True Detective
    Invisible Landscapes, ósýnilegt landslag, nefnist nýleg heimildamynd eftir tékkneska leikstjórann Ivo Bystřičan. Myndin byggir á vettvangsupptökum og umhverfishljóðum, og varpar fram spurningum um það sem hljóðin í kringum okkur hafa að segja um framtíðina. Um er að íslenskt-tékkneskt samstarfsverkefni, en einn af Íslendingunum sem tóku þátt í gerð myndarinnar er Pan Thorarensen. Hann stendur fyrir sýningu á myndinni í plötubúð Smekkleysu við Hverfisgötu í Reykjavík á fimmtudaginn kemur.
    Brynja Hjálmsdóttir rýnir í fjórðu þáttaröð bandarísku sjónvarpsþáttanna True Detective, sem voru að stórum hluta teknir upp hér á landi.
    Erna Kanema Mashinkila sendir okkur fjórða þátt úr pistlaröð sinni, Sjáumst og heyrumst, og ræðir að þessu sinni við Skúla Isaaq Quase.
    55 min
  • Natatorium, dapurleg danstónlist, The Zone Of Interest
    Natatorium er ný íslensk kvikmynd í leikstjórn Helenu Stefánsdóttur. Myndin skartar Ilmi Maríu Arnarsdóttur í aðalhlutverki, dóttur Helenu og Elinu Petersdóttur, sem leikur vægast sagt furðulegu ömmu hennar. Myndin er fjölskyldu-sálfræðitryllir og gerist öll inni í sama húsinu. Um er að ræða fyrstu mynd Helenu í fullri lengd.
    Nína Solveig Andersen gaf út sína fyrstu plötu undir nafninu Lúpína í upphafi síðasta árs, og á miðnætti í kvöld kemur út önnur smáskífan af væntanlegri annarri plötu hennar. Lestin býður upp á útvarpsfrumflutning á laginu.
    Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja mynd leikstjórans Jonathan Glazer - The Zone of Interest.
    56 min
  • Víkingar vakna, gítarkaup & stofutónleikar, Strik Studio
    Víkingar vakna - er frasi og jafnvel lífsspeki Guðmundar Emils Jóhannssonar, einkaþjálfara, en hann er betur þekktur sem Gemil. Og þessa lífsspeki boðar hann á samfélagsmiðlum af fullum krafti. Hann er vöðvatröll og brennur heitt fyrir heilsurækt. Og hann vill að víkingar vakni. En hvað eru víkingar og er eftirsóknarvert að líkjast þeim? Við hefjum þá rannsókn á samtali við Þóri Jónsson Hraundal.
    Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona og pistlahöfundur, er búsett í Kaupmannahöfn. Þar hefur hún verslað þungarokksgítara og húsgögn á sölusíðu á netinu, og haldið stofutónleika heima hjá sér.
    Bankastræti 12 er eitt af þekktustu húsum miðbæjarins, en þar hefur Prikið verið til húsa síðan um miðja síðustu öld. Á síðasta ári var ráðist í töluverðar breytingar á húsinu, en efri hæð þess hýsir nú nýja hönnunarstofu sem nefnist Strik Studio. Við kynnumst starfsemi Striks og skoðum okkur um á þessari sögufrægu efri hæð.
    Lagalisti:
    Gemil - Víkingar
    Sly & The Family Stone - If It Were Left Up To Me
    Hand Habits - No Difference
    Haruomi Hosono, Mac DeMarco - Boku Wa Chotto
    55 min
  • Hrægammar Kanyes, Club Zero
    Í rúmar tvær vikur hefur tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson verið að hlusta á og melta nýjasta listaverk Kanye West, plötuna Vultures 1 sem hann gaf út ásamt Ty Dolla $ign. Platan er sjálfútgefin og trónir á toppi vinsældarlista. En hvaða siðferðilegu klemmur fylgja því að vera Kanye West aðdáandi?
    Club Zero er níunda kvikmynd Austurríska leikstjórans Jessicu Hausner. Í myndinni fylgjumst við með hópi nemenda við alþjóðlegan heimavistarskóla sem skrá sig í róttækan næringarfræðikúrs hjá hinni undarlegu Ungfrú Novak. Markmiðið er að stunda meðvitað át eða “conscious eating” - sem gengur í grófum dráttum út á að borða minna. Við ræðum myndina við Tinnu Guðjónsdóttur, sem situr í stjórn Félags fagfólks um átraskanir og vinnur töluvert með ungmennum með átraskanir í starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur á BUGL.
    Lagalisti:
    Lög af Vultures 1
    Markus Binder - Gum
    Markus Binder - Auto
    Markus Binder - Moodrum
    Frank Ocean - Self Control
    58 min
  • Von sem varð að ágætis byrjun, Kvæðakórinn, misheppnaðar bíóferðir
    Linus Orri Gunnarsson Cederborg er kórstjóri og einn stofnenda Kvæðakórsins. Kórinn samanstendur af ungu fólki sem hefur metnað fyrir því að setja íslenskan kvæðasöng í samhengi við samtímann.
    Pálmi Freyr Hauksson setti sér eitt markmið á ferðalagi sínu um Norður-Afríku: að fara í bíó og sjá nýjustu kvikmynd gríska leikstjórans Yorgos Lanthimos, myndina Poor Things með Emmu Stone í aðalhlutverki. Þetta hefur ekki gengið sem skyldi.
    Blaðamaðurinn og nú rithöfundurinn Svanur Már Snorrason hefur nýlokið við skrif bókarinnar …það besta sem guð hefur skapað… Von sem varð að Ágætis byrjun – Sagan af Sigur Rós. Bókin fer yfir sögu fyrstu ára sveitarinnar.
    Lagalisti:
    Kvæðakórinn - Þegar allt vill angra mann
    Björn Friðsriksson - Flaskan þjála léttir lund (SÁM 87/1310 EF)
    Þursaflokkurinn - Stóðum tvö í túni
    Savanna tríóið - Það er svo margt
    Þrjú á palli - Efemía
    Kvæðakórinn - Tálið margt þó teflum við
    Kruklið - GP-91/2015A
    Linus Orri - Lífs við stjá
    Melodia Kammerkór - Ljósið kemur langt og mjótt
    Þrjú á palli - Ólafur Liljurós
    Kvæðakórinn - Tálið margt þó teflum við
    The Flaming Lips - Riding To Work In The Year 2025 (You're Invisible Now)
    Jerskin Fendrix - Bella
    Sigur Rós - Leit að lífi (endurunnið af Plastmic)
    Sigur Rós - Avalon
    Sigur Rós - Svefn G-Englar
    58 min
  • Strump, Varði fer á vertíð, erjur Capotes og svananna
    Magnús Axelsson er stundum kallaður Maggi Strump, eftir safnplöturöð sem kom út á hans vegum á tíunda áratugnum.
    Brynja Hjálmsdóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir í nýja þætti Ryans Murphy um erjur rithöfundarins Trumans Capote og svananna svonefndu.
    Varði fer á vertíð nefnist umdeild kvikmynd frá 2001. Bíótekið býður upp á sjaldgæfa sýningu á myndinni í Bíó Paradís á sunnudaginn, og í tilefni af því ræðir Lóa Björk um hana við Arnar Eggert Thoroddsen.
    Lagalisti:
    Dýrðin - Popp & Co.
    Kókópöffs - Ást við fyrstu og einu sýn
    I am round - Guð er eitthvað
    Sjálfsfróun - Bölvað vors land
    Mósaík - Sjáandi
    Kvartett Ó. Jónsson & Grjóni - Þú kemur með mér
    Opp Jors - Jói Gumma (eine kleine kántrý mix)
    Curver - Evening Star
    Paul & Laura - Little Wet Ball
    Il Nuovo Baldur - Ils Ont Une Belle Skoda
    Tilburi - Panic Needle
    The Johnstones Family Orchestra - Þessi maður eltir mig um allt
    Margo Guryan - Kiss & Tell
    56 min