Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Plast út um allt og Einskonar ást
    Plast er út um allt, það er allstaðar, nema þar sem við viljum hafa það. Á meðan við þrífum tómatssósuflöskurnar hellist tilgangsleysið yfir. Fólk hvartar yfir flokkunarþreytu, það les enn eina greinina, enn eina skýrsluna, sem sýnir fram á misfellur endurvinnsluiðnaðarins. Í leit að von, í leit að tilgangi, förum við í heimsókn í Plastplan, til að ræða plast við Björn Steinar Blumenstein.
    En við hefjum þáttinn á því að ræða við leikstjórann Sigurð Anton Friðþjófsson og aðalleikkonu í nýrri kvikymd hans, Eddu Lovísu Björgvinsdóttur. Á föstudag verður kvikmyndin Einskonar ást frumsýnd.
    56 min
  • Torfi, þjóðlegur kynusli, salatmeistari í Gerðubergi
    Á jarðhæð Borgarbókasafnsins í Gerðubergi standa nokkur glær borð, og á þau hefur verið raðað fjöldanum öllum af eldhúsáhöldum og borðbúnaði. Þessa dagana stendur nefnilega yfir skiptimarkaður, sem er sérstaklega tileinkaður öllu því sem viðkemur eldhúsinu. Bjarni Daníel kynnti sér málið, og græddi nýjan bolla í leiðinni.
    Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, sendir okkur hugleiðingu um kynusla í klæðaburði goða og garpa í gegnum tíðina, og framtíð kynhlutlauss þjóðbúnings.
    Í næstu viku kemur út ný plata frá unga tónlistarmanninum Torfa, í kvöld spilar hann á Upprásinni í Hörpu, og í dag var hann í danstímum í allan dag. Það er nóg að gera. En það kveður við ferskan tón í textum Torfa, þetta eru hinsegin ástarljóð, samin fyrir hinsegin klúbba sem fyrirfinnast varla á Íslandi.
    Mac DeMarco - Cooking Up Something Good
    Stirnir - Planta
    María Baldursdóttir - Eldhúsverkin
    Fredy Clue - Kärleksvisa
    Kendrick Lamar - Real
    David Bowie - Changes
    Torfi - Mánaðamót
    Torfi - Eiturlyf
    Torfi - Ofurhægt
    Torfi - Örmagna
    Torfi - Hrifnastur
    54 min
  • Kammerkór eða bílskúrsband, fædd kynþokkafull í gær
    Júlíus og Þórbergur eru meðlimir í tiltölulega ungum kór í íslensku kór-flórunni, en það er Kammerkórinn Huldur (fallbeygist eins og Hildur). Huldur hefur frumflutt fjöldann allan af nýjum íslenskum verkum undanfarin tæp þrjú ár, enda er í kórnum er nokkur fjöldi upprennandi tónskálda. Við heyrum sögur af kórstarfinu og veltum fyrir okkur muninum á kammerkór og bílskúrshljómsveit.
    Melkorka Gunborg Briansdóttir, rýnir í hina margverðlaunuðu Poor Things, nýjustu kvikmynd gríska leikstjórans Yorgos Lanthimos með Emmu Stone í aðalhlutverki, útfrá kvikmyndaklisju sem hefur verið kölluð Born Sexy Yesterday eða fædd kynþokkafull í gær.
    Lagalisti:
    Kammerkórinn Huldur:
    Gimbill
    Titania
    Ástarraunir
    Verðandi
    Auglýsing
    Vor hinsti dagur er hniginn
    Tónlist Jerskin Fendrix úr Poor Things
    K.óla - How much would it change?
    59 min
  • Veikindapésarnir, söfn á Instagram, rýnt í GKR 2
    Það er einhver bölvaður óþverri að ganga, veikindi, flensur, veirur, kvefpestar og sýkingar á hverju horni. Það er vont að vera lasinn, en verst af öllu eru leiðindin, þegar maður situr aðgerðarlaus uppi í rúmi meðan pestin gengur yfir. Við heyrum hljóðið í nokkrum mishressum veikindapésum.
    Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu rapparans GKR, sem kom út á dögunum.
    Á morgun verður haldin ráðstefna á Sjóminjasafninu sem ber yfirskriftina Horft til framtíðar. Á henni munu meistaranemar í hagnýtri menningarmiðlun fjallaum miðlun á vegum safna og stofnana, sýningar, minjasvæði og þjóðgarða. Hera Guðmundsdóttir segir frá sínu erindi sem fjallar um söfn á Instagram.
    Lagalisti:
    Mótettukórinn - Veikur maður, hræðstu eigi, hlýddu (upptaka frá 1986)
    10cc - You’ve Got A Cold
    The Beatles - I’m So Tired
    Aldous Harding - Fever
    GKR - Tónlist af GKR 2
    58 min
  • Raunveruleikaþættirnir Æði gerðir upp, Æði-rýni, teikning fyrir aðgerðarsinna
    Lóa fer á rúntinn með Jóhanni Kristófer og Patrek Jaime. Þau spjalla um Æði, það góða, slæma og flókna við að gera þátt um unga menn sem eru að læra að fóta sig í lífinu.
    Brynja Hjálmsdóttir tekur svo við keflinu og rýni í lokaseríuna af Æði, þá fimmtu, og bregður útaf vananum og gefur þeim stjörnur.
    En við byrjum á því að kíkja í heimsókn til Ránar Flygenring, á vinnustofuna hennar vestur í bæ.
    56 min
  • Svipugöngin að bókasafninu, arfleifð andófsmannsins Kurts Cobain
    Í gær voru liðin þrjátíu ár frá andláti einnar skærustu rokkstjörnu síðustu aldar, Kurts Cobain, söngvara, lagahöfundi og forsprakka bandarísku grugg-sveitarinnar Nirvana. Við rýnum í arfleifð þessarar goðsagnakenndu persónu.
    Af hverju fylgir því svona mikil skömm að fá sekt á bókasafninu? Er það vegna þess að við óttumst dómhörku bókavarðanna? Er það vegna þess að okkur finnst við hafa brugðist? Lóa burðast um með skömm í töskunni, bók sem hún er búin að vera með að láni síðan í nóvember.
    Lagalisti:
    Nirvana - Smells Like Teen Spirit
    Nirvana - Come As You Are
    Nirvana - Drain You
    Nirvana - About A Girl
    Nirvana - Lithium
    The Magnetic Fields - The Book Of Love
    55 min
  • Kántrí á Cowboy Carter, hvað á barnið að heita?
    Í nafnaveislu í Hafnarfirði um helgina, yfir kaffibolla, aspasbrauðrétt og marengstertu, vakna hugleiðingar um nöfn og nafngiftir. Hvað á barnið að heita - og af hverju? Við heyrum alls konar sögur af alls konar nöfnum.
    Við ræðum við kántrí tónlistarmanninn Axel O sem hefur náð langt í kántrí senunni í Texas, Axel O, og Önnu Marsibil Clausen, um nýútkomna plötu Beyoncé, Cowboy Carter. Fyrsti singúll plötunnar, Texas Hold’em er kántrílag, en hvað með restina af plötunni?
    Lagalisti:
    Tyler, The Creator, YoungBoy Never Broke Again, Ty Dolla $ign - WUSYANAME
    Milkhouse - Say My Name
    Eminem - My Name Is
    Spilverk þjóðanna - Hvað á barnið að heita?
    Beyoncé - Jolene
    Beyoncé - 16 Carriages
    Beyoncé - Amen
    Beyoncé - Texas Hold’em
    58 min
  • Maðurinn á bakvið Blanksy, niðurgangur internetsins, Söngkeppni framhaldsskólanna
    Hver er Blanksy? Og hverjum datt í hug að búa til karakteri sem lspreyjar tölfræði um aðstæður öryrkja á bíla hjá áhrifavöldum? Við ræðum við Einar Ben hjá Bien og veltum fyrir okkur stafrænni markaðssetningu og vitundarvakningum á TikTok.
    Við heyrum endurflutt innslag Kristjáns Guðjónssonar frá því í fyrra, um hugtakið Enshittification.
    Við bregðum okkur í heimsókn í Hitt Húsið í Elliðaárdal, þar sem undirbúningur fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna er í fullum gangi þessa dagana. Marinó Lilliendahl framkvæmdastjóri keppninnar, og Embla María Möller Atladóttir, forseti Sambands íslenskra framhaldsskólanema, segja okkur frá.
    58 min
  • Kennslustund í fagurfræði, máttur myndasögunnar
    Einar Valur Másson er formaður Íslenska Myndasögusamfélagsins, ÍMS, sem var stofnað síðla árs 2019 með það fyrir augum að hefja myndasöguformið til vegs og virðingar hér á landi.
    Við fáum að vera fluga á vegg í kennslustund í fagurfræði í MH. Þar eru nemendur í umræðutíma að velta fyrir sér listaverkinu, listamanninum og sköpunarferlinu. Stórar spurningar, stórar hugmyndir og róttækar skoðanir. Eru allir listamenn? Hver ákveður hvað er listaverk? Hver ákveður hvað þér finnst flott?
    Flipper’s Guitar - Groove Tube
    Nourished By Time - Hell Of A Ride
    Water From Your Eyes - Buy My Product
    Kæra sumar - Dóri DNA
    57 min
  • 3 Body Problem og Rómeó hjarta Júlía
    Vinsælasta þáttaröðin á íslenska Netflix síðan fyrir páska, er átta þátta sería sem nefnist 3 Body Problem - Þriggja hnatta vandinn. Hér er á ferðinni aðlögun á fyrstu bókinni af þremur úr margrómuðum vísindaskáldsagnaflokki, Remembrance of Earth’s Past eftir hinn kínverska Cixin Liu. Ingi Markússon, rithöfundur og trúarbragðarfræðingur, er mikill aðdáandi þessara bóka.
    Svo kíkjum við í heimsókn á æfingu í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn er að æfa sýninguna Rómeó hjarta Júlía, eftir þær Ernu Ómarsdóttur og Höllu Ólafsdóttur. Verkið var frumflutt í október 2021 á Stóra sviði leikhússins, nú á að setja það upp á Nýja sviðinu, færa áhorfendur nær, nær vessunum, öskrunum og ástinni.
    57 min