Mannlegi þátturinn

Lífeyrismál, Kraftur stuðningsfélag og Fríða Rún næringafræðingur


Listen Later

Við fjölluðum um lífeyrismál um daginn í Mannlega þættinum með Hörpu Njálsdóttur, sem talaði um breytingar á löggjöf um tekjutengingu lífeyris sem tóku gildi í upphafi síðasta árs. En hvað þýða þær og hvað þýða nýjar breytingar sem tóku gildi í kringum síðustu áramót, sem hægt er að kynna sér á heimasíðu Tryggingastofnunar þar sem mögulegt er að taka 50% ellilífeyri hjá TR á móti 50% lífeyri frá lífeyrissjóðum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Með þessari nýju leið hafa tekjur ekki áhrif á greiðslur hálfs lífeyris frá Tryggingastofnun. Þetta eru flókin mál sem getur verið erfitt að skilja, því kom Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka og fór með okkur yfir þessar breytingar.
Kraftur - Stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur boðaði til átaks sem stendur til 4. febrúar nk og vill með því vekja athygli á málefnum ungs fólks með krabbamein og aðstandenda og afla fjár til að halda úti víðtækri þjónustu félagsins. Með átakinu vill Kraftur benda á þá staðreynd hvað krabbamein snertir marga með einum eða öðrum hætti. Ár hvert greinast 70 einstaklingar á aldrinum 18-40 ára með krabbamein og þess má geta að þriðjungur Íslendinga fær krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Ragnheiður Davíðsdóttir kom til okkar og með henni Sigvaldi Einarsson, faðir krabbameinsveiks manns.
Við höfum fjallað talsvert um lífstílsbreytingar sem fólk veltir fyrir sér í upphafi nýs árs, breytt mataræði og meiri hreyfing, til að koma sér í form, en við eigum það til að vilja fara fullskart í hlutina því hittum við Fríðu Rún Þórðardóttur næringafræðing hjá Landspítalanum og hún fór aðeins með okkur yfir þetta. Allt er best í hófi og við þurfum ekki að kúvenda öllu, heldur frekar að taka viðráðanleg skref í rétta átt.
Umsjón, Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners